Fréttablaðið - 22.10.2022, Blaðsíða 22
Breska
þjóðin
hefur
engan
áhuga á
Boris.
BJORK@FRETTABLADID.IS
Við þurf-
um oftar
en ekki
einhvern
utanað-
komandi
til að
benda á að
keisarinn
sé klæð-
laus.
n Í vikulokin
Ólafur
Arnarson
Halldór Gylfason bregður
sér nú um helgina í hlut-
verk þriggja lækna í þremur
ólíkum sýningum Borgarleik-
hússins. Leikarinn er einnig í
óðaönn að undirbúa tónleika
um komandi helgi þar sem
hann leikur eigin lög sem
hann segir blöndu af gamani,
einlægni og alvöru.
bjork@frettabladid.is
Ég leik krabbameinslækn-
inn Kalla í verkinu Fyrr-
verandi og í Níu lífum
leik ég nafntogaðan fíkni-
lækni, svo mun ég nú um
helgina stökkva inn fyrir Jóhann
Sigurðarson í hlutverk héraðslæknis
í Emil í Kattholti,“ segir Halldór sem
gerir lítið úr álaginu við að klæðast
svo mörgum sérfræðingasloppum
á einni helgi.
„Það er þó aldrei að vita hvað ger-
ist, það er auðvitað ákveðin hætta
á að ég rugli saman sérgreinum og
kannski að læknirinn í Kattholti fari
að greina alla sem alkóhólista,“ segir
hann og hlær.
Halldór rif jar það upp að á
menntaskólaárunum hafi marga
félagana dreymt um að læra til
læknis en sjálfur hafi hann f ljótt
áttað sig á að það lægi ekki fyrir
honum.
„Læknar þurfa að vera með allt
á hreinu og ég er ekki þannig. Þeir
þurfa líka að vera góðir námsmenn,“
segir hann og skellir upp úr.
Partílög síðustu þrjátíu ára
Næstkomandi föstudag heldur Hall-
dór tónleika á Ölveri þar sem hann
ásamt hljómsveit mun f lytja lög
sem hann sjálfur hefur samið allt
frá unglingsaldri.
„Sumt af því sem ég hef samið
hefur ratað inn í Geirfuglana,“ segir
Halldór og á þá við hljómsveitina
sem hann hefur nú sungið með í
aldarfjórðung.
„Þar sem ég hef verið í hljóm-
sveit með vinum mínum í 25 ár er
gaman að spila líka með einhverjum
öðrum og ráða öllu sjálfur. Þetta er
einvörðungu mín músík, nýleg og
gömul kassagítarslög. Það verða
engir tölvuheilar á sviðinu og eng-
inn barnakór, þetta verða bara vinir
mínir sem spila undir. Þetta er svo-
lítið einfalt í eðli sínu.“
Halldór hefur tvisvar áður haldið
slíka tónleika. „Það var alveg stór-
kostlega skemmtilegt.“
Aðspurður um yrkisefnin, segir
Halldór þau úr ýmsum áttum.
„Þarna eru lög sem eru hálfgerðir
brandarar um mín hugðarefni eins
og uppáhaldssjónvarpsþættina
og gamla vini. En svo er ég líka að
syngja um konuna mína og nána
fjölskyldumeðlimi sem hafa fallið
frá, eins og systur mína og pabba
minn, svo þetta er líka á einlægu
nótunum. Gaman, alvara og ein-
lægni,“ segir hann og blaðamaður
kemst að því að loks sé hann á leið í
hljóðver eftir áramótin.
„Þetta eru lög sem ég er búinn að
vera að spila í partíum í þrjátíu ár en
hef aldrei tekið þau upp,“ segir Hall-
dór og samsinnir blaðamanni um
að ekki geti hann haldið einn utan
um partíspilið með þessa þéttu dag-
skrá í leikhúsinu.
„Já, það er rétt, ég á oft erfitt með
að mæta í partí um helgar – enda
alltaf að leika.“ n
Maður margra sloppa
Halldór flytur í Kattholt um helgina og leysir Jóhann Sigurðarson af sem héraðslæknir. Þar með bætist þriðji læknir-
inn við verkefnalista hans þessa helgina, um leið og hann undirbýr tónleika með eigin lögum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Halldór í hlutverki sínu sem krabbameinslæknirinn Kalli í verkinu Fyrrverandi.
MYND/AÐSEND
Ferðafélag Íslands var töluvert til umfjöllunar
undir lok síðasta mánaðar þegar þáverandi
forseti félagsins, Anna Dóra Sæþórsdóttir, pró-
fessor í ferðamálafræði, sagði af sér eftir aðeins
rúmlega árs setu á forsetastóli.
Anna Dóra segir frá aðdraganda uppsagnar frá
sinni hlið en hún upplifði mikla mótstöðu þegar hún
að eigin sögn ögraði ríkjandi menningu í stjórn félags-
ins. Anna Dóra, sem byrjaði að ferðast með félaginu
á barnsaldri, fékk snemma áhuga á útivist í náttúru
Íslands og menntaði sig á því sviði, skoraðist ekki
undan þegar hún var hvött til að verða fyrsta konan til
að leiða hartnær aldargamalt félagið.
Nýju fólki fylgja oftar en ekki nýjar áherslur og
Anna Dóra, sem kom inn í stjórnina úr akademísku
umhverfi háskólans, vildi bæði útbúa reglur og verk-
ferla þegar kæmi að kynferðislegri áreitni og spurði
spurninga um reksturinn. Hún upplifði mótstöðu
og útilokun hjá stjórn þar sem stór hluti hefur setið
lengi og meðalaldur er í hærri kantinum, auk þess sem
Anna Dóra mat það svo að vinskapur og vensl stæðu
framþróun fyrir þrifum.
Það er nú einmitt það. Við þurfum oftar en ekki
einhvern utanaðkomandi til að benda á að keisarinn
sé klæðlaus.
En þá er lykilatriði að kunna að taka fréttunum – og
klæða keisarann í föt! n
Ögraði ríkjandi menningu
Ekki á af Bretum að ganga.
Margir töldu að brotið væri blað
er Boris Johnson hrökklaðist með
skömm úr stóli forsætisráðherra
eftir að hafa fyrirgert trausti þjóðar-
innar með galgopaskap og virðing-
arleysi fyrir reglum lýðræðisins og
raunar reglum almennt.
Síðan eru liðnar rúmar sex vikur
og arftaka hans, Liz Truss, hefur
tekist hið ótrúlega – hún virðist hafa
greitt götu hins siðlausa og trausti
rúna Borisar aftur inn í forsætisráð-
herrabústaðinn.
Það er, ef þau jaðaröfl sem virðast
ráðandi í breska Íhaldsflokknum
fá ráðið. Breska þjóðin hefur engan
áhuga á Boris.
Löngum þótti Bretland vagga
lýðræðis og þingræðis í heiminum.
Heldur betur hefur hallað undan
fæti í þeim efnum síðustu árin.
Kannski er það dæmigert fyrir
þá braut sem Bretland er á að fyrsti
forsætisráðherra Elísabetar II. var
Winston Churchill en sá síðasti Liz
Truss.
Fjórir síðustu forsætisráðherrar
Bretlands koma úr Íhaldsflokknum.
Fyrstur í röðinni var David Came-
ron – maðurinn sem ber ábyrgð á
því óheillaspori Bretlands að ganga
út úr Evrópusambandinu.
Theresa May tók við af honum og
þótti veikur og verklítill leiðtogi. Þá
kom Boris Johnson, sem reyndist
enn verri leiðtogi en svartsýnasta
fólk hafði óttast. Hann hafði rekið
mikinn áróður fyrir Brexit og ekki
látið staðreyndir þvælast mikið
fyrir málflutningi sínum.
Hann setti alls kyns reglur sem
almenningur skyldi fara eftir á
tímum Covid en fór ekki eftir þeim
sjálfur. Boris var sannkallaður
Leiðin greið fyrir flautaþyrilinn
flautaþyrill úr forgarði helvítis.
Þegar eftirmaður Borisar var val-
inn kom í ljós að Íhaldsflokkurinn
hefur stimplað sig út úr veruleik-
anum. Fyrir valinu varð Liz Truss,
sem í blindri aðdáun sinni á stefnu
Margaretar Thatcher, á annarri öld
við aðrar aðstæður, keyrði Bretland
næstum í þrot á örfáum dögum.
Nú lítur út fyrir að Boris geti átt
endurkomu í stólinn. Gerist það fær-
ist Bretland endanlega í ruslflokk.
Staðan kallar á lýðræðislegar
kosningar til að breska þjóðin geti
valið sér leiðtoga sem hún treystir. n
Dæinn kaffihúsi og vínbar
Í Urriðaholti í Garðabær leynist
gullmolinn Dæinn þar sem ríkir
góð stemning, hvort sem er fyrir
saumaklúbbinn, rómantískt kvöld
eða ljúfa stund með fjölskyldunni.
Á Dæinn er boðið upp á dýrindis
dögurð á sunnudögum sem hefur
slegið í gegn hjá íbúum hverfisins
sem og hinir vinsælu ostabakkar
sem eru í boði alla vikuna.
Við mælum með
Sæta húsinu
Ísrúllurnar á Sæta húsinu eru sér-
staklega ljúffengar og svo er gaman
að fylgjast með því þegar þær eru
búnar til. Innihaldi íssins er hellt á
ískalda plötu þar sem ísinn verður
til fyrir augum þér. Sæta húsið er á
Laugavegi 6 en húsið er næstelsta
húsið við götuna. Á Sæta húsinu eru
einnig í boði ljúffengar vöfflur, kaffi,
kakó og vegan ís. n
22 Helgin 22. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 22. október 2022 LAUGARDAGUR