Fréttablaðið - 22.10.2022, Blaðsíða 68
Ferillinn minn hefur
ekki gengið eftir þeirri
tímalínu sem ég hefði
helst kosið. En ég hef
fengið stórkostleg
tækifæri.
Bresk listakona sem stödd er
hér á landi talar umbúðalaust
um baráttu sína við átröskun
arsjúkdóminn, hvernig ljós
myndun bjargaði henni frá
alvarlegu þunglyndi og safn
ljóða um íslenska veturinn
sem kemur út á næsta ári.
Katie Metcalfe er breskur
rithöfundur og ljóð
skáld, búsett í Osmoth
erly í North Yorkshire
á Englandi. Katie sló
óvænt í gegn með bókinni Anor
exia: A Stranger in the family. „Rit
ferillinn minn byrjaði þegar ég var
unglingur og fékk átröskun. Ég var
fjórtán ára þegar ég veiktist og lá
á spítala í níu mánuði,“ segir hún.
Katie byggði bókina á dagbókar
skrifum. Hún var sautján ára þegar
verkið kom út.
Fyrsta bók varð verðlaunaleikrit
Að sögn Katie var útgefandinn
óreyndur. „Ég dró samninginn til
baka og endurskrifaði hana nokkr
um árum seinna. Hún varð rosalega
vinsæl miðað við hvað mér finnst
hún slæm.“ Katie kveðst undrandi á
velgengninni. „Ég var samt ofsalega
veik þegar ég skrifaði hana og heil
inn ekki að starfa sem skyldi.“ Hún
segist hafa viljað gera reynslunni
skil. Svo fór að samlandi hennar og
leikskáld útsetti verkið fyrir svið.
„Leikritið túraði á milli skóla á Eng
landi og vann til einhverra verð
launa,“ segir Katie.
Fjölmiðlar sýndu bókinni og
Katie mikinn áhuga. Hún fór í við
töl við stóra miðla á borð við BBC
og Cosmopolitan, auk sjónvarps
viðtals hjá Good Morning Britain
þættinum. Katie segist þó hafa verið
gríðarlega veik þegar hún mætti í
þau viðtöl og segist alls ekki hafa
verið í bata þrátt fyrir að hún hafi
gefið fólki ráð á opinberum vett
vangi. „Það liðu mörg ár eftir útgáfu
bókarinnar þangað til ég jafnaði
mig á sjúkdómnum.“
Orti ljóð um Grýlu
Katie lauk framhaldsskóla en segist
hafa verið frekar áhugalaus um
námið. Hún hóf nám í skapandi
skrifum á háskólastigi sem leiddi til
útgáfu fyrstu ljóðabókarinnar, sem
hún lýsir sem eins konar bæklingi,
árið 2010. „Ég útskrifaðist síðan með
fyrstu einkunn sem mér finnst alveg
með ólíkindum. Ég glímdi við erfið
veikindi á þessum tíma og var um
svipað leyti greind með geðhvarfa
sýki og geðrof.“
Fyrsta ljóðasafn Katie Metcalfe
innihélt ljóð um hina íslensku
Grýlu. „Íslensku áhrifin voru sterk.
Á næstu misserum var ég mikið að
gefa út sjálf en var líka með stöku
útgefendur, aðallega að ljóðum. En
öll skrifin tengdust inn í norðrið.“
Andleg veikindi hafa litað feril
Katie að miklu leyti. „Stundum
gengur vel en öðrum stundum þarf
ég að stíga nokkur skref til baka
og byggja mig upp. Ferillinn minn
hefur ekki gengið eftir þeirri tíma
línu sem ég hefði helst kosið. En ég
hef fengið stórkostleg tækifæri,“
segir hún.
Tengdist íslenskri náttúru
Tengsl Katie við Ísland eiga sér langa
sögu. „Ég hef alltaf haft áhuga á nor
rænni menningu. Ég fór í Waldorf
skóla þegar ég var krakki og skól
inn var undir áhrifum frá Noregi,
Íslandi og Danmörku. Landið hefur
verið á radarnum síðan ég var barn.“
Katie sótti landið fyrst heim árið
2011 sem sjálfboðaliði í umhverfis
verndarverkefni. „Ég ferðaðist um
eyjuna og hafði hvorki með mér
síma né úr. Ég var í mjög krefjandi
þriggja mánaða verkefni í íslenskri
náttúru og við höfðum mjög tak
mörkuð samskipti við umheiminn.
Ég var bara í samskiptum við átta
manna teymi sem þá innihélt fyrr
verandi kærasta minn,“ segir Katie.
Verkefnið fól í sér viðgerð á
byggingum og f leiru í íslenskum
þjóðgarði. „Við vorum að lagfæra
Linsan ljáði rithöfundi nýja
rödd í hyldýpi þunglyndis
Breski rithöfundurinn Katie Metcalfe vakti mikla athygli fyrir fyrstu bók sína sem fjallaði um reynslu af átröskunar-
sjúkdómi. Hún hefur tekist á við erfið andleg veikindi með listina að vopni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Nína
Richter
ninarichter
@frettabladid.is
skemmdir eftir ferðamenn, raka
yfir steina og gróður sem túristar
höfðu raskað á stórum Landró
verum. Þetta var sumar sem breytti
lífi mínu.“
Katie segist ekki hafa kynnst
Reykjavík eða öðrum þéttbýlis
kjörnum í ferðinni. „En ég myndaði
þetta ofsalega sterka samband við
íslenska náttúru, fegurð hennar og
einangrunina. Ég vissi að ég þyrfti
að koma hingað aftur.“
Frábært kynlíf í Reykjavík
Ári seinna heyrði Katie af hátíð á
Kex hosteli í miðbænum. „Þetta var
einn dagur og snerist um að fagna
dekkri hliðum listarinnar með tón
list og f leiru. Ég hafði samband og
bað um að fá að vera með.“
Örlögin gripu í taumana og á
f lugvellinum var Katie synjað um
inngöngu í landið vegna ófull
nægjandi sóttvarnagagna. Hún
komst því aðeins á f lugvöllinn og
flaug aftur heim. „Ég var algjörlega
eyðilögð. Viku seinna hugsaði ég
síðan: Fjandinn hafi það, ég ætla til
Íslands. Þannig að ég keypti annan
flugmiða og kom aftur.“
Katie dvaldi á Kex hostelinu. „Ég
fór síðan á Tinder og hitti slatta af
fólki, eignaðist þar góða vini og
stundaði frábært kynlíf,“ segir hún
og hlær.
Residensía í Gröndalshúsi
„Í framhaldinu fékk ég innblástur.
Það er svo mikið af frábæru fólki
hérna og margt í gangi sem mig
langar að taka þátt í. Íslenska nátt
úran kallaði á mig og ég sótti um rit
höfundaresidensíu í Gröndalshúsi.
Það gekk eftir, ég kom aftur og sagði
þeim að ég myndi vinna að ljóða
bók um íslenska veturinn.“ Verkinu
var ætlað að teygja sig frá landnámi
til dagsins í dag og, að sögn Katie,
skoða hinar fjölmörgu og ólíku
hliðar íslenska vetrarins. „Ég fór í
mikla rannsóknarvinnu og eyddi
desembermánuði í það. Ég reyndi
sömuleiðis að kynnast fólkinu og
senunni hér. Þegar tvær vikur voru
eftir af residensíunni hitti ég íslensk
an mann. Þá fékk ég Covid á þessum
tíma og var rúmliggjandi restina af
residensíunni sem var algjör synd.“
Í skugga sambandsslita
Katie segist hafa stefnt að útgáfu
bókarinnar í lok þessa árs. „Það
dró verulega úr hrifningu minni á
Íslandi þegar ég hætti með íslenska
kærastanum mínum fyrir nokkrum
vikum. Hann braut mig gersamlega
niður og ég hugsaði: Hvers vegna
ætti ég að skrifa um heimalandið
hans? En á sama tíma veit ég að
ég ætti ekki að láta hann standa í
vegi fyrir því að ég skrifi um þetta
dásamlega land,“ segir hún.
Katie stefnir á verklok á næsta ári.
„Ég er að fá ástríðuna fyrir Íslandi
til baka. Ég ætla til Íslands í byrjun
næsta árs og bind vonir við að finna
útgefanda hér á landi sem hefur
áhuga á þessu,“ segir hún.
Ljósmyndunin var bjargræði
Dvöl Katie á Íslandi þessa stundina
kemur þó til vegna annarrar ástríðu,
sem er ljósmyndunin.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
á ljósmyndun. En það hefur alltaf
verið í öðru sæti á eftir ritlistinni.
Eftir sambandsslit í Svíþjóð hrundi
ég í ofsalega djúpt þunglyndi í tvö
ár, 2020. Ég var svo veik að ég gat
eiginlega ekki myndað setningar.
Mamma mín þurfti að svara vinum
mínum á Messenger. Ég gat ekki
mótað hugsanir. Svona var ég mán
uðum saman. Það var ómögulegt
að skrifa og ég var í sjálfsvígshættu.
Ég var á skelfilegum stað og eyddi
dögunum við lestarteinana,“ segir
Katie.
Hún ákvað að ljósmynda sorg
ina til að reyna að fá útrás. „Ég tók
myndir af vanlíðaninni og það var
rosalega heilandi fyrir mig. Ég vissi
að ég gæti ekki skrifað en ég gat gert
þetta. Ég tók ljósmynd á hverjum
degi. Þetta var ástæða til að fara
fram úr á morgnana. Ég þurfti að
taka mynd, ef ég gerði ekkert annað
þá var það í lagi svo lengi sem ég tók
bara eina mynd,“ segir hún.
„Hægt og rólega fór ég að skrifa
um ljósmyndirnar sem ég tók. Hægt
og rólega kom röddin mín til baka.
Þetta var alveg ógeðslega, hryllilegt
hægfara ferli en svona gerðist þetta.“
n
Ef þú, eða einhver sem þú þekkir,
glímir við sjálfsvígshugsanir hvetj-
um við þig til að leita aðstoðar.
Félagasamtök á borð við Píeta og
Geðhjálp geta veitt mikilvægan
stuðning og er hjálparsími Píeta,
552-2218, alltaf opinn, sömuleiðis
Hjálparsími Rauða krossins, 1717,
og netspjallið, 1717.is. Sorgarmið-
stöð, sími 551 4141, sinnir stuðningi
við aðstandendur og Heilsugæslan
getur jafnframt veitt aðstoð.
32 Helgin 22. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ