Fréttablaðið - 22.10.2022, Síða 70
Leikarinn og aðgerðasinn-
inn Sam Knights lagði allt í
sölurnar til að berjast gegn
loftslagsbreytingum með
hreyfingunni Extinction
Rebellion. Hann vill gera
heiminn að betri stað og segir
alla geta lagt sitt af mörkum.
Sam Knights er ungur bresk-
ur loftslagsaðgerðasinni
sem var virkur í loftslags-
hreyfingunni Extinction
Rebellion, eða XR eins og
hún er kölluð. Sam hefur einnig
getið sér gott orð sem leikari undir
nafninu Sam Haygarth og leikið í
þekktum myndum á borð við Jojo
Rabbit og The French Dispatch. Sam
kom á Alþjóðlegu kvikmyndahá-
tíðina í Reykjavík, RIFF, fyrr í þess-
um mánuði til að vera viðstaddur
heimsfrumsýningu heimildar-
myndarinnar Exxtinction Emer-
gency eftir Sigurjón Sighvatsson
sem fjallar um XR.
„Við vorum lítill hópur sem ákvað
að krefjast þriggja hluta af ríkis-
stjórnum. Það var að segja sann-
leikann um loftslagsbreytingar og
lýsa yfir neyðarástandi í loftslags-
málum, að ná nettó losun niður
í núll fyrir 2025 og að koma á fót
borgaraþingi. Enn fremur, leiðin
sem við ætluðum að fara til að ná
þessu fram var sú að leysa úr læðingi
fordæmalausa bylgju af friðsam-
legum borgaralegum mótmælum,“
segir Sam.
Tímabil tvístrunar og hnignunar
Sam var virkur í starfi XR frá 2018-
2019 og segir hann hreyfingunni í
Bretlandi hafa vaxið hratt ásmegin
fyrst um sinn. Einn helsti árangur-
inn í upphafi var sá að frumvarp um
að lýsa yfir neyðarástandi í lofts-
lagsmálum var lagt fram í breska
þinginu vorið 2019 en náði þó ekki
í gegn.
„Hreyfingin byrjaði í október
2018 og í apríl 2019 hafði ríkis-
stjórnin þegar gefið mikið eftir. Við
skipulögðum mótmæli sem gengu
í rúmar tvær vikur þar sem fjöldi
fólks tók yfir fimm þekkta staði
í Lundúnum og gaf ekki eftir fyrr
en kröfum þeirra var mætt. Í raun
komum við ríkisstjórninni í opna
skjöldu, þau vissu ekki hvernig
þau áttu að bregðast við og á end-
anum neyddust þau til að gefa eftir
og fallast á kröfurnar. En það sem
gerðist síðar var tímabil tvístrunar
og hnignunar,“ segir Sam.
Er hreyfingin ekki virk lengur?
„Hún var að hluta til fórnarlamb
sinnar eigin velgengni, að því leyti
að við færðum mælistikuna um
loftslagsbreytingar svo langt fram
að spurningin var, hvað næst? Að
mínu mati mistókst okkur sem
vorum í innsta kjarna hreyfingar-
innar að koma fram með skipu-
lagða forystu um framhaldið. En
nei, hreyfingin heldur áfram og er
enn mjög virk á staðbundnu stigi og
líka á alþjóðlegu stigi.“
Lömuðu Lundúnir í tvær vikur
Þúsundir mótmælenda tóku þátt í
tveggja vikna mótmælum XR í apríl
2019 sem lömuðu hluta af miðborg
Lundúna og voru 1.130 manns hand-
teknir af lögreglu. Meðlimir XR nota
gjarnan handtökur sem herbragð til
að eyða tíma og mannafla lögreglu
vísvitandi. Sam var sjálfur hand-
tekinn í byrjun árs 2019 og dróst
dómsmál hans yfir átta mánuði.
Ert þú enn virkur í starfi XR?
„Nei, ég steig til hliðar í lok árs
2019. Ég hjálpaði til við að koma
hreyfingunni á fót en brann í raun
út. Ég var virkur meðlimur í eitt ár.
Ég var handtekinn í byrjun árs 2019
og dómsmálið dróst endalaust. Að
því leytinu til var persónuleg ástæða
fyrir því að ég steig til hliðar. En það
var einnig pólitísk ástæða að því
leyti að eftir að kröfum okkar var
mætt færði ég rök fyrir því að við
þyrftum að breyta um stefnu.“
Stærstu mistök hreyfingarinnar
Að sögn Sam var það enn eitt helsta
baráttumál loftslagshreyfingar-
innar árið 2018 að sannfæra fólk
um að loftslagsbreytingar væru
raunveruleg ógn. Að hans mati tókst
Extinction Rebellion að vekja fólk
til umhugsunar en hann segir að
stærstu mistökin hafi verið að sýna
ekki fram á raunhæfar lausnir á
loftslagsvandanum er snúa að fram-
kvæmd róttækra stefnubreytinga á
mannlegu samfélagi.
„Hvernig eigum við raunverulega
að tala um kerfi og það hvernig kerf-
in eru að bregðast okkur? Við vitum
að loftslagskrísan er afurð kapít-
alisma og nýlendustefnu. Þannig
að til þess að ávarpa almennilega
rót vandans þurfum við kerfis-
lega gagnrýni á honum. Ég eigin-
lega tapaði þeim rökræðum innan
hreyfingarinnar og steig til hliðar.
Hún heldur enn áfram með sömu
þrjár kröfurnar sem mér finnst
svolítið tilgangslaust, en það er mín
persónulega skoðun.“
Góð og ítarleg heimildarmynd
Eins og áður sagði kom Sam til
Íslands til að vera viðstaddur frum-
sýningu heimildarmyndarinnar
Exxtinction Emergency eftir Sigur-
jón Sighvatsson. Spurður um hversu
mikið hann hafi tekið þátt í gerð
myndarinnar segir Sam:
„Nánast ekki neitt, ef ég á að vera
hreinskilinn. Það var tekið viðtal
við mig en ég sá hana ekki fyrr en
við frumsýninguna fyrir tveimur
dögum. En það var æðislegt, mér
fannst myndin virkilega góð. Hún
er frábært dæmi um það hvernig er
hægt að hópspretta (e. crowdsource)
mynd um alþjóðlega hreyfingu. Þau
eru virkilega að prófa sig áfram með
formið og ólíka viðtalsstíla. Það
sem kemur út úr því er mjög ítarleg
mynd af alþjóðlegri hreyfingu sem
er með margar þversagnir. Þetta er
hreyfing sem er ólík alls staðar og er
mismunandi í hugum allra sem taka
þátt í henni.“
Má ekki nota sitt eigið nafn
Sam er ekki bara aðgerðasinni
heldur upprennandi kvikmynda-
stjarna sem hefur leikið í nokkrum
þekktum myndum og unnið með
fólki á borð við Taika Waititi, Wes
Anderson og Emmu Thompson.
Þú notar tvö mismunandi nöfn,
Sam Knights og Sam Haygarth, af
hverju?
„Leiðinlega svarið er það að
leikarafélagið í Bretlandi leyfir
manni ekki að nota sama nafn og
aðrir leikarar. Alvöru nafnið mitt
er Sam Knights og leikaranafnið
mitt er Sam Haygarth. En það hefur
í raun verið mjög hjálplegt af því ég
hef getað stundað aktívisma undir
mínu eigin nafni, sem alvöru mann-
eskja, og svo skapað mér feril sem
aðeins önnur persóna.“
Sam segir það hafa verið hjálplegt
því þegar fólk er í mótstöðu við sína
eigin ríkisstjórn þá er líklegt að það
komi í bakið á því síðar meir.
„Ég var handtekinn og settur á
lista yfir öfgafólk í Bretlandi bara
af því ég er með skoðanir á lofts-
lagsbreytingum. Það er leiðin sem
ríkið fer til að ákveða hvort maður
sé of róttækur eða öfgafullur að þess
mati. Í raun fannst mér mjög hjálp-
legt að geta aðskilið þessar tvær per-
sónur. En ég vonast til þess að einn
daginn muni ég geta sameinað þær
og gert verk sem eru jafn róttæk og
aðgerðir mínar. En það er erfitt því á
sama tíma ertu líka að berjast gegn
Hollywood-vélinni sem er ekki gerð
fyrir slíkt,“ segir hann.
Þannig að það er annar leikari í
Bretlandi sem heitir Sam Knights?
„Það er Sam Knight sem vinnur
í söngleikhúsi. Ég skrifaði honum
bréf og sagði: Má ég vinsamlegast
nota nafnið þitt? Af því það er
smuga sem segir að ef fólk gefur þér
leyfi þá máttu nota nafnið þeirra.
En hann skrifaði til baka og sagði
nei,“ segir Sam og hlær. „Og ég get
alls ekkert sungið, ég er virkilega,
virkilega lélegur söngvari.“
Allir leggi sitt af mörkum
Áhrifa loftslagsbreytinga er þegar
byrjað að gæta víða um heim.
Spurður um hvað sé næsta skref
fyrir loftslagshreyfinguna segir
Sam:
„Ég held að við verðum að hafa
ofurfókus á lögmál alþjóðaréttlætis.
Við vitum að ein af grundvallarstað-
reyndum loftslagsbreytinga er að
þau lönd sem bera minnsta ábyrgð
á krísunni verða fyrir mestum
skaða. Og löndin, eins og mitt, sem
bera mesta ábyrgð á þessari krísu
og sögulegum útblæstri munu ekki
strax upplifa þennan sársauka. Við
þurfum að ávarpa þetta jafnvægi,
við þurfum að ræða um skaðabætur,
við þurfum að ræða um hvernig við
getum reist upp alþjóðlegt hagkerfi
sem styður manneskjur og blómstr-
andi líf í stað þess að styðja bara við
uppsöfnun einkafjármuna.“
Geta allir lagt sitt af mörkum?
„Algjörlega og við þörfnumst
allra. Af því ef við ætlum að komast í
gegnum storminn, og ég vona virki-
lega að við gerum það, þá mun það
breyta öllu við lifnaðarhætti okkar.
Það sem er virkilega frábært við
þetta og virkilega fallegt, er að hlut-
irnir sem við þurfum að gera til að
tækla loftslagsbreytingar eru hlutir
sem munu gera okkur hamingju-
samari, heilbrigðari og þeir munu
einnig gera okkur betri og vingjarn-
legri manneskjur.“ n
Við vorum fórnarlamb
okkar eigin velgengni
Sam Knights var í innsta kjarna
hreyfingarinnar Extinction Rebel-
lion í ár en steig til hliðar vegna hug-
myndafræðilegs ágreinings í lok árs
2019. Fréttablaðið/Ernir
Loftslagshreyfingin Extinction Rebellion vakti heimsathygli þegar meðlimir hennar lömuðu hluta af miðborg Lundúna í tvær vikur í apríl 2019. Fréttablaðið/GEtty
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
34 Helgin 22. október 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið