Fréttablaðið - 22.10.2022, Blaðsíða 72
Við verð-
um að
hætta að
framleiða
nýtt plast
og byrja að
nýta það
sem er
þegar á
yfirborð-
inu.
Björn Steinar
Blumenstein
Plastplan er hönnunarstúdíó
staðsett á Grandanum þar
sem Björn Steinar Blumen
stein og Brynjólfur Stefánsson
vinna hörðum höndum að
því að framleiða vörur sem
búnar eru einungis til úr
endurunnu plasti.
Björn Steinar og Brynjólfur
hafa rekið Plastplan frá
2019 en fyrirtækið sér
hæfir sig í vöruhönnun
og framleiðslu nytjahluta
sem búnir eru til úr endurunnu
plasti. Hugmyndin að fyrirtækinu
kemur frá námsárum Björns þegar
hann fór til Hollands í sérhæfingu
eftir nám sitt sem vöruhönnuður.
„Þetta byggir allt á þekkingu sem
ég fæ frá plastendurvinnslusam
tökum sem heita Precious Plastic
sem ég vann fyrir í Hollandi. Ég
fór þangað til þess að sérhæfa mig
eftir að ég útskrifaðist,“ segir Björn
en hann kom með þessa þekkingu
aftur til Íslands þar sem hann setti
upp fræðslumiðstöð til að miðla
henni áfram.
„Við opnuðum lítið fræðslusetur
í tuttugu feta gámi til að bjóða fólki
að koma með plast og ræða vanda
málið sem hefur skapast í kringum
það. En síðan föttuðum við að ef við
ætluðum að hafa einhver raunveru
leg áhrif þá yrðum við að sýna fram
á hversu gott hráefni þetta getur
verið og hvað hægt er að framleiða
margt,“ segir hann en þeir félagar
byrjuðu með þessu samstarfi sem
síðar meir átti eftir að þróast út í
Plastplan.
Hættum að framleiða nýtt plast
Björn segir það mikilvægt að sam
félagið hætti að hugsa um plast eins
og það hefur gert hingað til og því
sé mikilvægt að hætta að framleiða
það.
„Við verðum að hætta að fram
leiða nýtt plast og byrja að nýta
það sem er þegar á yfirborðinu. En
það hefur verið okkur hlutverk frá
upphafi að sanna að það sé hægt að
vinna eitthvað frábært úr endur
unnu plasti til að skapa hvatann til
að endurvinna,“ segir hann en gífur
legt magn af því plasti sem nú þegar
er til er ekki notað til endurvinnslu.
„Ég held að það séu einhver 98
prósent af plasti sem eru ekki að
fara í viðeigandi farveg. Það er talað
um að bara 2 prósent af plasti fari
í skilvirkt ferli sem þýðir að það er
endurnýtt í jafn góða afurð og það
sem upprunalega var,“ segir hann og
bætir við: „Við viljum vera í þessum
2 prósentum að búa til raunveruleg
verðmæti. Að taka til dæmis plast
poka og framleiða rúðusköfu,“
segir Björn. Sem dæmi um vöru
sem Plastplan hefur framleitt úr
pokum, filmum og öðru úrgangs
plasti má nefna smellu sem var
fyrsta afurð samstarfs Plastplan og
66°Norður. Hún var unnin úr plasti
frá 66°Norður og stuðlar að aukinni
hringrás. Smellan var hönnuð,
þróuð, og framleidd á vinnustofu
Plastplan á Granda með hjálp vöru
hönnuðarins og tónlistarmannsins
Loga Pedro.
Hráefnið kemur víða að
Samhliða tækjaþróun og framleiðslu
eigin hönnunarvöru hefur Plastplan
átt í samstarfi við ótal fyrirtæki með
umhverfisvænar áherslur og hjálpað
þeim að taka græn viðbótarskref í
rekstri með hjálp plastendurvinnslu.
Það felur í sér að Plastplan sækir plast
til þeirra vikulega, þrífur, f lokkar,
kurlar og framleiðir svo nýja nytja
hluti sem nýtast samstarfsaðilum.
„Við förum til dæmis í Íslenska
gámafélagið til að sækja plast en
einnig í textílverksmiðjur, þar sem
við fáum oft mjög góða liti sem eru
okkur mjög dýrmætir því yfirleitt
er plast ýmist glært, svart eða grátt,“
segir Brynjólfur. Hann segir jafn
framt að tekið hafi tíma að vinna
traust fyrirtækja.
„Þegar við byrjuðum fyrst með
starfsemina var mjög erfitt að ganga
inn í fyrirtæki og fá frá þeim hrá
vöru. En við erum rosalega þakk
látir þeim fyrirtækjum sem tóku vel í
þetta á sínum tíma,“ segir Brynjólfur
en þá hafi Plastplan ekki verið komið
langt á veg hvað varðar tækjakost og
framleiðslugetu.
„Þá vorum við að kynna hug
myndir um það sem við ætluðum að
vera. Við vorum ekki með tilbúnar
vörur eða búnir að hanna eða byggja
tækjakostinn sem við erum með í
dag. Við vorum bara með heima
smíðuð mót og það að fólk treysti
okkur var algerlega frábært,“ segir
Björn.
Mánudagar erfiðastir
Mikil vinna liggur að baki bæði því
að sækja plastið sem vinna á úr og
svo að koma því í viðunandi ástand.
Þetta geri þeir Björn og Brynjólfur
iðulega á mánudögum.
„Þá erum við að sækja plastið,
f lokka, þrífa það og kurla,“ segir
Björn og bætir við:
„Við flokkum plastið í sjö flokka
og svo helst eftir lit aukalega svo
við erum kannski að f lokka þetta
í einhverja fjörutíu flokka og síðan
kurlum við það allt hér til að geta
stjórnað öllu sem kemur að hönn
uninni,“ segir hann en þeir hafi
verið nokkurn tíma að koma sér
upp almennilegri aðstöðu til þess.
„Rýmið sjálft er búið að þróast
mjög mikið síðan við komum hing
Höfum framleitt meira en nóg af plasti
Þrívíddarprentari Plastplan getur mótað plast í nánast hvaða form sem er.
Björn hellir tættu plasti í þrívíddarprentarann.
Brynjólfur og Björn Steinar stofnuðu Plastplan árið 2019. Fréttablaðið/anton brink.
Ragnar Jón
Hrólfsson
ragnarjon
@frettabladid.is
að út á Granda,“ segir Björn. „Við
gerum ekki annað en að byggja og
rífa veggi, því það kemur einhver
ný vél sem umbreytir öllu sem við
vorum búnir að hanna þetta út frá.
Það er alltaf nýtt rými sem þarf að
loftræsta eða breyta.“
Þrívíddarprentarinn reynist vel
Björn og Brynjólfur hafa í þrjú ár
unnið að því að hanna og smíða
sinn eigin þrívíddarprentara en
hann nýta þeir í dag til að móta
plastið í hvaða form sem þeir vilja.
„Þetta er svona mesta nýsköp
unin sem er í gangi hjá okkur um
þessar mundir,“ segir Björn en þeir
hafi fengið hjálp víðs vegar að við
að setja prentarann saman og for
rita hann. Þeir séu enn að finna sem
besta nýtingu á hann.
„Við erum að vinna að því að
læra á þessi tæki og reyna að fá það
mesta út úr þeim. Við erum í ferli
við að reyna að velja og greina hvað
er að gefa okkur bestu útkomurnar.
Lykillinn í þessu öllu er að við erum
að reyna að læra af mistökunum og
kosturinn við plastið er að ef við
gerum mistök þá bara hökkum við
það aftur og það fer hringinn.“
Sjálfbærni er markmiðið
Björn og Brynjólfur segja að í fram
tíðinni vilji þeir stefna á frekari
vöruþróun og sölu á eigin hönnun.
„Á síðasta HönnunarMars vorum
við í fyrsta skipti að prófa að selja
okkar eigin vörur en við vorum þar
með vörulínu sem heitir „Every
day“ og er hönnuð úr okkar eigin
plasti fyrir fyrirtækið en ekki fyrir
einhvern annan. Við erum með sjö
vörur í sölu núna, allt frá stólum og
kollum yfir í hillur,“ segir Brynjólfur
en stefna fyrirtækisins sé að vera
sjálfbært en ekki rekið á styrkjum.
„Við reynum að vera einhvers
staðar á milli listar og nýsköpunar
og höfum þá líka mestan áhuga á
að halda áfram að þróa þessa sér
stöðu sem við erum með. Að vera
innlend framleiðsla með sjálfbæran
efnivið og við erum með fjölbreytta
þekkingu til þess að gera það sem
við gerum. Að reka hönnunar
stúdíó sem samt vinnur eingöngu
úr endurunnu plasti. Þetta er mjög
þröngur rammi en við erum stoltir
af því að ná að láta þetta ganga upp,“
segir Björn að lokum. n
36 Helgin 22. október 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið