Fréttablaðið - 22.10.2022, Side 90
[...] enda erum við alla
daga að tæta hvert
annað niður á sam-
félagsmiðlum og
hneykslast á hinu og
þessu sem okkur
kemur ekki rassgat við.
Mér finnst áhugaleysi
íslenskra fjölmiðla á
því að fjalla um það
sem er að gerast í
löndunum í kringum
okkur vera bara alvar-
legt mál.
Tilvist í sítengdum heimi
út frá kenningum danska
hugsuðarins Sörens Kierke
gaard er sérgrein dr. Guð
mundar Björns Þorbjörnsson
ar. Guðmundur segir íslenska
fjölmiðla þurfa að gera betur
í umfjöllun um erlend frétta
mál.
ninarichter@frettabladid.is
Guðmundur Björn Þorbjörnsson
er lesendum helst kunnur sem
fjölmiðlamaður. Hann hefur sinnt
fréttamennsku og dagskrárgerð á
RÚV um árabil, meðal annars sem
meðstjórnandi þáttarins Heims
kviður.
Samhliða fjölmiðlaferlinum er
Guðmundur Björn nýútskrifaður
doktor í heimspeki. Hann varði
doktorsritgerð sína í Brussel í byrj
un júlí og hélt doktorsfyrirlestur
við heimspeki, sagnfræði og
fornleifafræðideild Háskóla Íslands
um miðjan mánuðinn. Gráða Guð
mundar er sameiginleg doktors
gráða Vrije Universitet í Brussel og
Háskóla Íslands.
Varð sér úti um prestsréttindi
Upphaf ið að doktorsgráðunni
má rekja til guðfræðináms Guð
mundar. „Ég ætlaði á einhverjum
tímapunkti að verða prestur,“ segir
hann. „Ég missti áhugann á því. Ég
hef alltaf haft áhuga á heimspeki
og guðfræði og kláraði embættis
próf í guðfræði þegar ég var tuttugu
og fjögurra ára,“ segir Guðmundur.
„Ég er því með prestsréttindi,“ segir
hann glettinn.
Á vef Háskóla Íslands segir um
ritgerðina: „Í doktorsritgerðinni
rannsakar Guðmundur Björn til
vist okkar í sítengdum heimi út frá
hugsun Sörens Kierkegaard. Með
hugmyndum sínum um endurtekn
ingu og endurminningu kortleggur
Kierkegaard tvær ólíkar, en um leið
nátengdar, leiðir til að tjá mannlega
tilvist sem lifaða reynslu.“
Doktorsgráðan tók níu ár
Guðmundur kynntist verkum
Kierke gaards í guðfræðinni. „Ég
skrifaði báðar lokaritgerðirnar
mínar um hann. Ég fór í framhald
inu í meistaranám í heimspeki í
Kaupmannahöfn og þá skrifaði ég
að sjálfsögðu líka um Kierkegaard.“
Aðrar hliðar heimspeki danska
hugsuðarins urðu þá fyrir valinu hjá
Guðmundi, þá helst þær sem sneru
að fjölmiðlum og gagnrýni á fjöl
miðla. „Út frá því fæ ég áhuga á að
skrifa doktorsritgerð um þetta. Ég
hef samband við prófessor í Belgíu
sem var eiginlega eini maðurinn
sem var að pæla í Kierkegaard og
internetinu.“ Guðmundur byrjaði
í doktorsnáminu fyrir níu árum
síðan, árið 2013.
„Ég lendi svo í alls konar styrkja
veseni. Þannig að ég er eiginlega að
vinna allan tímann með þessari rit
gerð,“ segir hann.
Kierkegaard og internetið
Þá liggur við að spyrja Guðmund
hvort vinna að doktorsritgerð um
fjölmiðla hafi haft áhrif á störf
hans í fjölmiðlum og hugmyndir
um vinnuna.
„Nei, alls ekki neitt. Fjölmiðlar
er kannski ekki rétta orðið hérna.
Kannski frekar miðlun og tækni,
internetið og allt þetta. Gagnrýni
Kierkegaards á 19. öldinni beindist
að dagblöðum og blaðamönnum
sem voru þá „mass media“ síns tíma.
Í dag er þetta miklu fjölbreyttara. Ég
var alltaf að vinna í fjölmiðlum en
tengdi þetta tvennt aldrei saman,“
segir hann.
Guðmundur er þó ekki sá fyrsti
sem snertir á málefninu. „Þetta er
eitthvað sem hefur verið skrifað um.
Hvað Kierkegaard hefði þótt um
internetið. En það er allt mjög nei
kvætt, um að hann hefði verið pess
imisti sem hefði hatað internetið.“
Dr. Guðmundur Björn Þorbjörnsson kallar á áherslubreytingu í íslenskum fjölmiðlum þegar kemur að umfjöllun um
erlent fréttaefni. Hann telur átök innan íslensku verkalýðshreyfingarinnar mega bíða. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Við erum alltaf tengd og
við erum alltaf ínáanleg
Tvær tilvistarlegar hreyfingar
Að sögn Guðmundar er Kierkegaard
fyrsti exístensíalistinn. Hann segir
alla heimspeki og hugsun danska
heimspekingsins ganga út á það
hvernig við getum tjáð það að vera
manneskja og vera til. „Það hlýtur
að vera hægt að nota hans hugsun
til að varpa ljósi á það hvernig við
erum til, í því sem ég kalla síteng
ingu. Við erum alltaf tengd. Og við
erum alltaf ínáanleg,“ útskýrir Guð
mundur.
„Ég tiltek í ritgerðinni tvær leiðir
sem ég kalla tilvistarlegar hreyfing
ar. Endurtekningu og endurminn
ingu. Ég sýni þar hvernig maðurinn
hefur val um að lifa í endurminn
ingu eða endurtekningu, innan
þessarar sítengingar, samkvæmt
skilgreiningum Kirkegaards,“ segir
Guðmundur.
Skilur þetta ekki enn þá
Aðspurður hvað taki við að dokt
orsgráðu lokinni, svarar hann:
„Ég f lutti út í sumar, fór að vinna í
Brussel. Það er ágætt að fara að gera
eitthvað annað,“ segir Guðmundur
hugsi.
„Ég skil þetta enn þá ekki. Ég
skil Kierkegaard ekki enn þá, en ég
byrjaði að lesa hann þegar ég var 22
ára. Ég mun örugglega aldrei skilja
hann.“
Aðspurður um mest krefjandi
hliðar kenninganna, svarar Guð
mundur að Kierkegaard hafi að
mörgu leyti verið slæmur ritstjóri
á sjálfan sig og hefði mátt stytta og
breyta oftar.
Áhugaleysi íslenskra fjölmiðla
Sé talinu vikið að fjölmiðlum á ný,
má spyrja hvernig sýn Guðmundar
á fjölmiðlaumhverfi á Íslandi sé
háttað í dag.
„Ég hef mjög sterkar skoðanir á
íslenskum fjölmiðlum. Mér finnst
áhugaleysi íslenskra fjölmiðla á því
að fjalla um það sem er að gerast í
löndunum í kringum okkur vera
bara alvarlegt mál. Kannski hefur
Ísland alltaf verið svona af því að við
erum mjög einangrað málsvæði, lítil
og út af fyrir okkur.“
Guðmundur bendir á að ekkert
sé fjallað um átök í verkalýðshreyf
ingum í fjölmiðlum í útlöndum.
„Af hverju fjallar enginn Íslend
ingur um Evrópusambandið? Er
þetta af því að Ísland er ekki í Evr
ópusambandinu? Hafa ákvarðanir
Evrópusambandsins ekki áhrif á
hvernig lífi okkar er háttað hér á
Íslandi? Jú, það gerir það, þetta hefur
mjög mikil áhrif á það,“ segir hann.
Skylda að segja frá heiminum
„Það er auðvelt að segja: Það getur
hver sem er leitað sér sinna frétta og
farið á BBC eða Guardian eða eitt
hvað. En fólk gerir það ekkert endi
lega. Það á að vera skylda íslenskra
fjölmiðla að segja frá því sem er að
gerast í heiminum á íslensku.“
Guðmundur segir að jafnvel þótt
fólk skilji ensku, séu skilaboðin þau
að erlendar fréttir skipti ekki máli.
„Eiga átök í verkalýðshreyfingunni
meira erindi við fólk en stríðið í
Úkraínu eða hækkandi orkuverð?“
Gagnrýnin hugsun mikilvæg
Hann segir fjölmiðla hafa mikil
áhrif á það hvernig fólk sér heim
inn og skynjar veruleikann. „Þeir
stjórna því að mörgu leyti hver
okkar heimsmynd er. Ef ég ætti
að tala eins og Kierkegaard er svo
mikilvægt að einstaklingurinn sem
les fjölmiðla geri sér grein fyrir því
hvaðan þessar upplýsingar koma,
hvers vegna þær eru framsettar eins
og þær eru framsettar og sé á varð
bergi gagnvart því sem hann er að fá
upplýsingar um. Ef hann gerir það
ekki getur bara orðið illt í efni.“
Er lausnin í menntakerfinu?
„Örugglega. Ég veit ekki hvernig
það er. Í grunninn er þetta eitthvað
sem er hægt að heimfæra upp á
allan veruleika mannsins. Maður
beitir gagnrýnni hugsun á allt. En
það er ekkert auðvelt. Það er oft
mjög þægilegt að gera það ekki og
það sparar manni alls konar,“ segir
Guðmundur Björn Þorbjörnsson,
doktor í heimspeki. n
Hvernig var vikan í
fjölmiðlum?
Freyr Eyjólfsson
„Þó maður hafi horft upp á áfram
haldandi fall breska heimsveldis
ins, hrun nýfrjálshyggjunnar og
þvæluna og klúðrið sem Bretar eru
að ganga í gegnum út af djöfla
sýrunni Brexit, þá stinga mig
mest fréttir af einelti,“ segir Freyr
Eyjólfs son, tónlistarmaður og
fyrrverandi fjölmiðlamaður.
„Einelti í skólum er að aukast og
orðið grófara. Hinsegin börn og
unglingar verða fyrir aðkasti, ætt
leidd börn fá að kenna á rasisma
í skólum og börn íhuga sjálfsvíg,“
segir hann. „Ég þekki allt of margt
fólk sem er með sár á sálinni út af
einelti og því miður líka fólk sem
hefur hreinlega dáið úr einelti.
Það er eitthvað sérkennilegt
í gangi, einhvers konar bakslag
í mannréttindabaráttu sem við
ættum að huga að. Þetta er ein
hver hegðun og árátta sem ungt
fólk apar upp eftir okkur sem
eldri erum – enda erum við alla
daga að tæta hvert annað niður á
samfélagsmiðlum og hneykslast
á hinu og þessu sem okkur kemur
ekki rassgat við,“ segir Freyr.
„Við erum enn þá svolítið svona
lítið sjávarþorp á norðurhjara
veraldar sem á erfitt með fólk
sem er öðruvísi. Það mikilvægasta
sem ég lærði þegar ég bjó í New
York er þessa einfalda setning:
Just do your shit. Gerðu það sem
þig langar og vertu ekki að abbast
upp á aðra þótt þeir séu öðruvísi
en þú.“ n
Ekki abbast
upp á aðra
n Spurningin
Freyr Eyjólfsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Truss hefur sagt sig úr embætti.
54 Lífið 22. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 22. október 2022 LAUGARDAGUR