Skessuhorn - 19.10.2022, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 2022 9
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
2
Hunda- og kattaeigendur athugið
Samkvæmt 15. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002 er
hunda- og kattaeigendum skylt að láta ormahreinsa dýr sín árlega.
Gunnar Gauti Gunnarsson dýralæknir annast hreinsunina og er
ormahreinsun hunda og katta innifalin í leyfisgjaldi.
Hundahreinsun verður frá kl. 13.00-20.00
mánudaginn 24. október
Kattahreinsun verður frá kl. 13.00-20.00
þriðjudaginn 25. október
Staðsetning: Þjónustumiðstöð Akraness
að Laugarbraut 6 (gamla slökkvistöðin)
Dýralæknir býður einnig upp á bólusetningar
• Smáveirusótt (Parvo), lifrarbólgu, hótelhósta og hundafári,
verð kr. 4.000
• Örmerkingu hunda og katta, verð kr. 5.000
• Ófrjósemissprauta í hunda og ketti, verð kr. 3.000-7.000
fer eftir þyngd
• Bólusetningu gegn kattafári, verð kr. 4.000
Seinni hreinsun laugardaginn 5. nóvember.
Athugið að greiða þarf með peningum
- enginn posi verður á staðnum.
Nánari upplýsingar veitir dýraeftirlitsmaður
í síma 898-9478 eða dýralæknir í síma 892-3230.
Fyrirtækið Sportbátar er meðal
annars umboðsaðili fyrir Zodiac og
Bombard slöngubáta. Forsvarsmenn
þeirra ákváðu að færa Björgunar-
sveitinnni Oki í Borgarfirði Zodiac
slöngubát að gjöf. Mun hann nýt-
ast vel í leit, björgun og á æfingum
sveitarinnar. Slöngubáturinn er 4.7
metrar á lengd, hefur 2-3 í áhöfn og
hentar fyrir 40 hestafla mótor. Hann
getur borið meira en 10 einstaklinga
í neyð og auðvelt er að setja hann á
flot við ýmsar aðstæður.
Stjórn Oks hafði nýlega ákveðið
að festa kaup á nýjum slöngu-
bát til að leysa eldri bát sveitar-
innar af. Kemur þessi gjöf því á
verulega heppilegum tíma. Bátur-
inn mun koma að góðum notum á
svæði björgunarsveitarinnar sem er
með bækistöðvar sínar í Reykholti í
Borgarfirði. Útköll hennar eru fjöl-
breytt, til dæmis á ám, vötnum og
sjó en einnig koma reglulega upp
beiðnir um aðstoð í öðrum lands-
hlutum.
Lúther Gestsson, framkvæmda-
stjóri Sportbáta, afhenti Jóhannesi
Berg, formanni björgunarsveitar-
innar Oks bátinn nú á dögunum. Að
sögn Jóhannesar er fleyið nú komið
á sinn stað í Reykholti og verið er
að setja það saman og blása upp. Því
næst eru prófanir fyrirhugaðar, áður
en vötn taka að frjósa.
Í tilkynningu á síðu Landsbjargar
segir að björgunarsveitarmenn séu
afar þakklátur fyrir höfðinglega
gjöf Sportbáta og telji mikilvægt
að endurnýja tæki sveitarinnar áður
en þau verða úrelt, til að viðhalda
öryggi félaga þar sem oft er unnið
við erfiðar aðstæður. Báturinn muni
vafalaust koma að góðum notum
fyrir Björgunarsveitina Ok. Hún er
ein þriggja borgfirskra björgunar-
veita sem sinna stóru landssvæði.
Hinar tvær eru Björgunarsveitin
Brák í Borgarnesi og Björgunar-
sveitin Heiðar í Stafholtstungum.
gj
Sportbátar færa Björgunarsveitinni
Oki nýjan slöngubát að gjöf
Góður búnaður er hverri björgunarsveit mikilvægur og getur skipt sköpum við að bjarga mannslífum. Ljósm. Skessuhorn.
Bátur eins og sá sem Sportbátar gefa.
Sportbátar.
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Dagsetning
Garða- og Saurbæjar-
prestakall
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
2
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Dagsetning
Garða- og
Saurbæjarprestakall
Dagsetning
Sunnudagur 23. októbe
Sunnudagaskóli kl. 11
Bleik messa kl. 20
Miðvikudagur 26. október
Bænastund kl. 12:10 – súpa í Vinaminni að
stund lokinni
Opið hús kl. 13:15 – sérstakir gestir eru sr.
Hjálmar Jónsson og Sigurbjörn Þorkelsson
Dagskrá í Hallgrímskirkju í
Saurbæ í tilefni af ártíð Hallgríms
Péturssonar, 27. október.
Fimmtudagur 27. október kl. 20
Torfi K. Stefánsson Hjaltalín flytur erindi, en
hann vinnur nú að ritun ævisögu Hallgríms.
Laugardagur 29. október kl. 16
Tríóið Sírajón flytur verk eftir Katchaturian,
Atla Heimi Sveinsson og Hjálmar H.
Ragnarsson. Aðgangseyrir 2.500 kr.
Sunnudagur 30. október kl. 20
Messa kl. 20
Byggðarráð Dalabyggðar hefur
samþykkt að félagsheimilið á
Staðarfelli fari í sölumeðferð. Á
fundi byggðarráðs 11. október
s.l. var lagt fram lóðarblað með
afmörkun lóðar í kringum félags-
heimilið og samþykkti ráðið lóða-
mörkin fyrir sitt leyti.
Skýrsla
Menningarmálanefndar
Á síðasta ári gerði Menningar-
málanefnd Dalabyggðar ítarlega
skýrslu um félagsheimili í sveitar-
félaginu. Þá voru metnir styrk-
leikar, veikleikar, ógnanir og tæki-
færi og haldnir voru hugarflugs-
fundir í hverju félagsheimili þar
sem íbúum gafst kostur á að koma
með hugmyndir að notkun.
Í niðurstöðu skýrslu Menningar-
málanefndar segir að ástand félags-
heimilisins á Staðarfelli sé nú
þannig að fara þurfi í nokkrar fram-
kvæmdir til að fá endurnýjað starfs-
leyfi, til að geta haldið viðburði þar
sem fólki er stefnt saman. Þá veltir
nefndin því upp hvort sveitarfélagið
eigi að standa fyrir því að koma hús-
inu í það horf að starfsleyfi fáist. Í
skýrslunni segir að það sé samnefnt
með þeim hugarflugsfundum sem
haldnir voru að íbúar Dalabyggðar
virðist vilja fá meira líf í félagsheim-
ilin á svæðinu. Ekki skorti hug-
myndir um notkun á félagsheimil-
inu á Staðarfelli og gátu íbúar m.a.
séð þar fyrir sér kaffihús, vinnu-
stofur fyrir listamenn og sýningar-
sal eða sýningar í tengslum við
byggðasafn eða listasafn.
Skásti kosturinn
að selja húsið
Þrír eigendur eru að húsinu; sveitar-
félagið Dalabyggð á 65% eignarhlut,
Kvenfélagið Hvöt á 20% og Ung-
mennafélagið Dögun á 15%.
Í niðurstöðu skýrslu Menningar-
málanefndar er lagt til að sveitar-
félagið taki samtal um að eftirláta
Kvenfélaginu Hvöt og Ungmenna-
félaginu Dögun húsið til fullrar
eignar. Þá ættu félögin húsið og
myndu sjá um allan kostnað við
rekstur, viðhald og uppbyggingu og
hægt væri að skoða samstarfssamn-
ing við Dalabyggð um rekstrar-
stuðning verði húsnæðið nýtt til
menningarstarfsemi.
Í framhaldinu funduðu sveitar-
stjóri og formaður byggðar-
ráðs með fulltrúum Kvenfélags-
ins Hvatar og Ungmennafélagsins
Dögunar þann 14. júlí 2021 þar
sem farið var yfir stöðuna. Á þeim
fundi kom fram að félögin gætu
ekki tekið húsið yfir og var það
samhljóma niðurstaða fundarins að
skásti kosturinn væri að selja húsið.
Þá segir í minnisblaði frá þeim
fundi að áður en hægt sé að setja
húsið í söluferli þurfi að hnitsetja
lóð í kringum það fyrir sölu og fá
verðmat á það. Það hefur nú verið
gert, eins og áður segir, og er húsið
á leið í sölumeðferð.
gbþ
Selja félagsheimilið á Staðarfelli
Félagsheimilið á Staðarfelli. Ljósm. SSV Séð út á Hvammsfjörð úr félagsheimilinu á Staðarfelli.
Ljósm. SSV