Skessuhorn


Skessuhorn - 26.10.2022, Síða 1

Skessuhorn - 26.10.2022, Síða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 43. tbl. 25. árg. 26. október 2022 - kr. 950 í lausasölu Ert þú í áskrift? Sími 433 5500 www.skessuhorn.is Opið alla daga ársins 699 3444 molby@fastlind.is Löggiltur fasteignasali ÁRALÖNG ÞEKKING OG REYNSLA AF FASTEIGNAMARKAÐI Á VESTURLANDI BOGI MOLBY Allir kaupendur og seljendur fá Vildarkort Lindar hjá fjölmörgum fyrirtækjum sem veitir 30% afslátt Þinn árangur Arion Alls eru 44 fyrirtæki, eða um 5% af heildarfjöldanum, á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki í ár staðsett á Vesturlandi. Fimm efstu sæti listans á Vesturlandi eru öll í flokki stórra fyrirtækja en þau eru KG fiskverkun á Hellissandi, Hrað­ frystihús Hellissands, Borgarverk í Borgarnesi, Límtré Vírnet í Borgar­ nesi og Vignir G. Jónsson á Akra­ nesi. Þessi fyrirtæki hafa öll verið á listanum áður. Bæði Hellissandur og Ólafsvík eru með óvenju hátt hlutfall framúrskarandi fyrirtækja að þessu sinni. Á Hellissandi eru 10% fyrirtækja sem eiga ársreikn­ ing fyrir 2021 sem uppfylla kröfur Creditinfo, eða 6 af 54 fyrirtækjum. Í Ólafsvík er hlut­ fallið sömuleiðis 10% en þar eru 8 fyrirtæki af 79 á listanum. Aðeins eitt fyrir tæki á Vestur landi hefur verið á listanum á hverju ári síðan hann kom fyrst út árið 2010 en það er jarðvinnu­ verktakafyrirtækið Bjarmar á Akra­ nesi. Tvö fyrirtæki á Vesturlandi koma ný inn á listann í ár, leigufé­ lagið Bríet í Borgarnesi og Endur­ skoðunarstofan Álit á Akranesi. Þetta er í þrettánda sinn sem Creditinfo veitir framúrskarandi fyrirtækjum í íslensku atvinnu­ lífi vottun fyrir góðan og traustan rekstur en listinn í ár var gerður opinber á viðburði í Hörpu í síðustu viku. Alls hafa 1.881 fyrirtæki einhvern tímann komist á listann en aðeins 54 þeirra hafa hlotið nafnbótina öll árin. Þegar Creditinfo metur hvort fyrirtæki teljist framúr skarandi er m.a. horft til þess hvort ársreikn­ ingi hafi verið skilað á réttum tíma, og þegar litið sé til síðustu þriggja ára sé rekstrarhagnaður, ársniður­ staðan jákvæð, rekstrartekjur að lágmarki 50 millj. kr. og eiginfjár­ hlutfall a.m.k. 20%. Um 39 þúsund fyrir tæki skila ársreikningi en þegar litið er til allra annarra skilyrða sem fyrirtæki þurfa að uppfylla, þá tel­ jast aðeins um 2% fyrirtækja fram­ úrskarandi. Þess skal að lokum getið að tvö fyrirtæki birtu lista í síðustu viku. Auk Creditinfo birti Keldan og Viðskiptablaðið í sameiningu lista í síðustu viku. Á síðarnefnda listanum voru 48 fyrirtæki af Vesturlandi, fjórum fleiri en náðu í gegnum nál­ arauga Creditinfo. mm 44 fyrirtæki framúrskarandi á Vesturlandi samkvæmt Creditinfo Hellissandur og Ólafsvík með óvenju hátt hlutfall framúrskarandi fyrirtækja Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og frú Eliza Reid voru á ferð í ofanverðum Borgarfirði síðastliðinn fimmtudag. Með þeim í för voru finnsku forsetahjónin; Sauli Niinistö og Jenni Haukio. Ekið var frá Þingvöllum um Kaldadal, farið á Langjökul, í Húsafell og að Hraunfossum. Meðfylgjandi mynd var tekin á þeim stað sem jökulrönd Langjökuls var árið 2020. Síðan hefur jökullinn hopað talsvert, en fjær sést móta fyrir núverandi jökulrönd. Sjá nánar frétt á bls. 4. Ljósm. Riikka Hietajärvi. Hátt hlutfall fyrirtækja í Snæfellsbæ uppfyllir skilyrði um fyrirmyndarrekstur. Ljósm. úr safni/af.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.