Skessuhorn - 26.10.2022, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 202218
Í tillögu að breytingu á
deiliskipulagi fyrir Ölkeldudal í
Grundarfirði, sem auglýst var um
mitt sumar, hefur íbúðalóðum
verið bætt við og nær vestasta lóðin
að aðkomusvæði Skógræktarfélags
Eyrarsveitar. Efasemdir eru meðal
einhverra íbúa um hvort byggja eigi
íbúðir á þeim lóðum sem næstar eru
aðkomusvæði skógræktar félagsins
m.a. vegna brattlendis og votlendis
en einnig vegna þess að hluti
gróður lendis og útivistarsvæðis
myndu fara undir hús. Gunnar
Njálsson á sæti í stjórn skógræktar
félagsins. Hann kveðst ósáttur við
vinnubrögð sveitarfélagsins við
skipulagsvinnuna og segir að lóð
irnar verði á svæði þar sem nú er
aðkomu og bílastæði að skógrækt
inni. Skipulagsfulltrúi Grundar
fjarðarbæjar segir engin bílastæði
vera við aðkomusvæði skógræktar
innar og að nýju lóðirnar fari ekki
yfir á aðkomusvæðið heldur liggi
upp að því.
,,Það sést greinilega í þessu ferli,
að aðkomusvæði skógræktarinnar
er ekki til og hvergi minnst á það í
skipulagslýsingum, né að taka eigi
tillit til þess að það sé þarna. Heldur
hefur hin raunverulega staðsetning
þess verið skilgreind sem bygginga
svæði og laumað inn á síðustu
stigum skipulagsferilsins í lokavinnu
Aðalskipulags Grundarfjarðar 2019
2039 án þess að stjórn Skógræktar
félags Eyrarsveitar hafi haft grun
eða vitneskju um það,“ segir Gunnar
í samtali við Skessuhorn.
Kristín Þorleifsdóttir, skipulags
fulltrúi Grundarfjarðarbæjar, segir
að lóðirnar sem um ræðir nái að
aðkomusvæði skógræktarinnar og
þrengi því vissulega að því en fari
ekki yfir umrætt aðkomusvæði.
Það sé því ekki verið að skipuleggja
lóðir á aðkomusvæðinu. Í gildandi
aðalskipulagi sé svæðið skilgreint
sem íbúðarsvæði og sé nú útfært
í þessari tillögu um breytingu á
deiliskipulagi. ,,Aðkomusvæðið
er utan marka deiliskipulags
ins og því er það ekki sérstak
lega merkt á deiliskipulagsupp
drættinum. Skógræktarsvæðið sjálft
er ofan byggðarinnar og þó nokkuð
langt frá deiliskipulagssvæðinu og
aðkomusvæði skógræktarinnar.
Í deiliskipulaginu eru settir fram
skilmálar um frágang lóðarinnar
sem stendur næst aðkomusvæðinu,
samkvæmt þeim þarf að vanda frá
gang á lóðarmörkunum og hafa þau
sem náttúrulegust. Ég skil vel að
fólk tengist svona svæðum sterkum
tilfinningaböndum þar sem það
hefur t.d. gróðursett og átt góðar
stundir. Nú er unnið að minni
háttar breytingum á tillögunni til
þess að bregðast við athugasemdum
sem bárust, m.a. er verið að skerpa
á skipulagsskilmálum og bætt hefur
verið við ákvæðum um að gróður
verði færður af svæðinu ef mögulegt
er áður en til framkvæmda kemur.
Þeim sem gerðu athugasemdir við
tillöguna í sumar hefur verið svarað
og verður uppfærð tillaga með
þessum minnháttar breytingum
kynnt á heimasíðu sveitarfélagsins
þegar þar að kemur og þeim sem
gerðu athugasemdir gert viðvart,“
segir Kristín.
sþ
Í þessum lið leggjum við fyrir
tíu spurningar til íþróttamanna
úr alls konar íþróttum á öllum
aldri á Vesturlandi. Íþrótta
maður vikunnar að þessu sinni
er badminton maðurinn Hilmar
Veigar frá Akranesi.
Nafn: Hilmar Veigar Ágústsson
Fjölskylduhagir? Ég bý með for
eldrum mínum og eldri bróður á
Akranesi.
Hver eru þín helstu áhuga
mál? Þau eru badminton, golf,
mótorsport og hanga með vinum
mínum á verkstæðinu.
Hvernig er venjulegur dagur
hjá þér um þessar mundir? Ég
vakna, mæti í skólann, kem heim,
fer á æfingu, borða kvöldmat og
hitti strákana á kvöldin.
Hverjir eru þínir helstu kostir
og gallar? Ég er glaðlegur og
skemmtilegur en get verið mjög
tapsár.
Hversu oft æfir þú í viku? Ég
æfi þrisvar sinnum í viku og svo
fer ég á eina æfingu í viku hjá
Badmintonfélagi Hafnarfjarðar.
Hver er þín fyrirmynd í
íþróttum? Brynjar Ellertsson.
Af hverju valdir þú badmin
ton? Ég var nýhættur í fótbolta
og mig langaði að æfa einhverja
aðra íþrótt. Ég ákvað að prófa að
fara með bekkjarbróður mínum á
æfingu og þar kviknaði áhuginn
en ég var níu ára gamall.
Hver er fyndnastur af þeim
sem þú þekkir? Sigurjón frændi
og Óli Rafn og Daði Snær vinir
mínir.
Hvað er skemmtilegast og
leiðinlegast við þína íþrótt?
Skemmtilegast við mína íþrótt er
góður félagsskapur og allir sem ég
er að hitta á mótum en leiðinleg
ast er að tapa á mótum.
Ellefu þingmenn Sjálfstæðisflokks
ins hafa lagt fram frumvarp til laga
um félagafrelsi á vinnumarkaði.
Óli Björn Kárason, þingflokksfor
maður Sjálfstæðisflokksins, mælti
fyrir frumvarpinu á Alþingi í síðustu
viku. Meginmarkmið frumvarpsins
eru að tryggja rétt launamanna til
að velja sér stéttarfélag, leggja bann
við forgagnsréttar ákvæðum í kjara
samningum, vernda rétt launa
manna til að standa utan verkfalla
stéttarfélaga sem þeir tilheyra ekki
og afnema greiðsluskyldu ófélags
bundinna launamanna þar sem þess
er krafist í lögum eða kjarasamn
ingum.
Í greinargerð frumvarpsins er
bent á að þrátt fyrir að félagafrelsi
njóti ríkari verndar skv. stjórnar
skrá hér á landi en í nágranna
löndum hefur almenn löggjöf gert
það að verkum að réttur manna
til að velja sér félag eða standa
utan félags er mun takmarkaðari
en í þeim löndum sem við berum
okkur saman við. Samkvæmt
tölum OECD er stéttarfélaga aðild
á Íslandi mun hærri en í öðrum
löndum.
Verði frumvarpið að lögum
verður lagt bann við forgangsréttar
ákvæði líkt og segir að ofan, en þar
er átt við ákvæði kjarasamnings
sem veita félagsmönnum tiltekins
stéttarfélags forgang að ákveðnum
störfum. „Slík ákvæði hafa í för
með sér að einstök stéttarfélög geta
í raun komið í veg fyrir að stofnuð
verði ný stéttarfélög í sömu starfs
grein á sama félagssvæði, enda
bresta allar forsendur fyrir stofnun
nýs stéttarfélags ef annað félag
hefur forgang að öllum störfum á
svæðinu. Í framkvæmd er enginn
munur á forgangsréttarákvæðum
og hreinum skylduaðildarákvæðum
þar sem niðurstaðan verður alltaf
sú sama,“ segir í greinargerð með
frumvarpi þingmanna Sjálfstæðis
flokksins.
mm
Þykir þrengt að aðkomusvæði Skógræktar Eyrarsveitar
Þessi mynd var tekin í gær og sýnir svæðið þar sem gert er ráð fyrir íbúðarhúsum neðan við skógræktina, en búið er að moka fyrir fyrstu byggingunum á svæðinu.
Inngangur að skógræktinni er í forgrunni til hægri á mynd. Ljósm. tfk
Frumvarp sem
tryggja á félagafrelsi
á vinnumarkaði
Get verið mjög tapsár
Íþróttamaður vikunnar