Skessuhorn


Skessuhorn - 26.10.2022, Qupperneq 26

Skessuhorn - 26.10.2022, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 202226 Á fundi bæjarráðs Akraness síð­ asta fimmtudag var tekið fyrir erindi frá Knattspyrnufélagi ÍA um að fá að nýta húsið Kirkjuhvol fyrir íþróttafólk á vegum KFÍA og mögulega annarra íþróttafé­ laga þar til bærinn hefur ráðstafað húsinu. Bæjarráð samþykkti að húsnæðið verði nýtt tímabundið af ÍA gegn hóflegri leigu en mikil vægt sé að það verði útfært þannig að unnt sé að losa það með skömmum fyrirvara komi til þess að það verði selt eins og samþykkt hefur verið að gera. Kirkjuhvoll við Merkigerði er án efa eitt af merkari húsum á Akra­ nesi. Það var byggt árið 1923 og fagnar því aldar afmæli á næsta ári. Það voru hjónin séra Þor­ steinn Briem og Valgerður Lárus­ dóttir sem réðust í byggingu þess en yfirsmiður var Páll Friðriksson, bróðir séra Friðriks Friðrikssonar stofnanda KFUM á Íslandi. Séra Þorsteinn Briem bjó í húsinu frá byggingu þess til ársins 1946 eða allt þar til séra Jón M. Guðjónsson flutti inn og dvaldi til ársins 1975. Þá tók séra Björn Jónsson við og bjó þar til 1978. Þegar hlutverki Kirkjuhvols sem prestsbústaðar lauk tók við tímabil þar sem húsið þjónaði sem heimavist Fjölbrautaskólans á Akranesi. Árið 1985 var svo komið að húsið var ekki lengur talið íbúðarhæft og jafnvel talið sýnt að það yrði rifið. Það varð Kirkju­ hvoli til bjargar að hjónin Sig­ urður Ragnarsson og Drífa Björns­ dóttir keyptu húsið af Akranesbæ og endurbyggðu það á aðdáunar­ verðan hátt í því sem næst uppruna­ legri mynd. Séra Jón M. Guðjóns­ son lést 18. febrúar 1994. Hinsta ósk hans var sú að í Görðum myndi rísa listasafn. Byrjunaráfangi að þeirri draumsýn varð að veruleika er nýstofnuðum minningarsjóði um séra Jón tókst með stuðningi Akraneskaupstaðar að fjármagna kaup á Kirkjuhvoli. Stjórn sjóðsins ákvað að þar skyldi starfrækt lista­ setur í anda þess manns er þjónað hafði Skagamönnum af einhug í áratugi. Í aðdraganda þess að Kirkju­ hvoll varð listasetur vann hús­ stjórn skipuð sjálfboðaliðum mikið starf. Á fyrstu árum lista­ seturs í Kirkjuhvoli naut starf­ semin mikils stuðnings frá fyrir­ tækjum og einstaklingum, auk sjálfboðaliða sem unnu ómetan­ legt starf. Listasetrið var form­ lega opnað í janúar 1995 og voru haldnar þar um 150 myndlistar­ sýningar auk annarra uppákoma, svo sem ljóðalesturs, sögustunda og annarra menningartengdra viðburða. Jóhanna L. Jónsdóttir, dóttir séra Jóns, veitti Listasetrinu Kirkjuhvoli forstöðu frá upphafi til enda eða í 18 ár. Árið 2013 hætti Akraneskaup­ staður að reka listasetur á Kirkju­ hvoli og árið eftir tók fyrirtækið Skagaferðir ehf. húsið á leigu og rak þar gistihús auk þess að vera með menningartengda viðburði í húsinu. Hjónin Eggert Herberts­ son og Ingibjörg Valdimarsdóttir hafa frá árinu 2016 verið með gisti­ heimili undir heitinu StayWest á Kirkjuhvoli til leigu en sá samn­ ingur rann út í haust. vaks Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur á undanförnum fundum sínum ályktað um vegamál. Vegakerfið í Dalabyggð er stórt og umfangs­ mikið enda sveitarfélagið mjög víð­ feðmt. Stór hluti vegakerfisins er enn malavegir sem eru í mjög mis­ jöfnu ásigkomulagi. Aðgerða er þörf nú þegar, hvort sem um er að ræða stofn­ eða tengivegi. Á fundi sínum þann 18. október síðastliðinn bókaði sveitarstjórnin svohljóðandi; „Umræða um mikil­ væga stofn­ og tengivegi á lands­ byggðinni hefur verið út undan í almennri umræðu um vegamál um langa hríð. Í því ljósi fagnar sveitar­ stjórn Dalabyggðar frumkvæði því sem fram hefur komið um svokall­ aða „samfélagsvegi“. Þó almennt sé lítill áhugi á því að sett verði á veggjöld þá er ljóst að til þess að einhverjir möguleikar opnist í þá veru að flýta framkvæmdum við Skógarstrandarveg þá þarf að hugsa í nýjum lausnum og þora að nefna aðra valkosti en þá aðferðarfræði sem til þessa hefur verið ástunduð við fjármögnun vega. Sama á við um fáfarnari malar­ vegi eins og víða eru í Dalabyggð. Í þeim efnum þarf einnig að þora að nefna nýja valkosti, ekki bara varð­ andi fjármögnun. Í því tilliti vill sveitarstjórn Dalabyggðar hvetja vegayfirvöld til að huga að því að leggja bundið slitlag þó vegir séu ekki á allan hátt uppbyggðir og vegbreidd sé ekki eins og best ger­ ist. Slit á bílum, dekkjum og annar kostnaður sem heimafólk sem býr við holótta og vonda vegi ber hefur ekki verið metinn til fjár. Eins má nefna akstur skólabarna sem eiga um langan veg að fara eða allt að rúmlega 85 km á dag við oft mjög slæmar aðstæður. Sveitarstjórn Dalabyggðar vill stuðla að auknum lífsgæðum heimamanna og allra þeirra sem um okkar fallega hérað aka. Bundið slitlag er einn þáttur innviða sem skiptir máli í þeim efnum.“ Ágæti lesandi, það er nefnilega þannig að betri vegir auka lífsgæði, það vita íbúar Dalabyggðar á eigin skinni. Það virðist þurfa nýja nálgun og þor til að brjóta upp umræðuna og hreyfa við málum. Að mínu mati er sá tími runninn upp. Brjótum upp verklagið og forgangsröðum verkefnum í þágu þeirra sem enn búa við það að aka á malarvegum. Björn Bjarki Þorsteinsson Höf. er sveitarstjóri í Dalabyggð Pennagrein Gæði vega skipta máli þegar lífsgæði eru metin Vísnahorn Alltaf öðru hvoru kemur upp umræða um lífræna ræktun og ýmislegt henni tengt. Sömuleiðis um erfðabreytt matvæli og reyndar yfirleitt um alla mögulega og ómögu­ lega þætti matvælaframleiðslu. Fyrir nokkrum árum var umræðuþáttur í sjónvarpinu þar sem rætt var um erfðabreytt matvæli. Einn við­ mælenda var doktor Ólafur Dýrmundsson og var hann þeim andsnúinn. Eftir þessa umræðu kvað Gísli Sigurðsson: Án breytinga þú tækifæri tapar til að rísa upp af sárum hnjánum, því mannkynið er erfðabreyttir apar þó ennþá hangi Dýrmundsson í trjánum. Þótt beitarbúskapur fyrri ára sé liðin tíð má alveg velta fyrir sér kolefnissporum þess búskaparlags svona ef þess er gætt að taka alla hluti með í dæmið á báða vegu. Vetrar­ beitin var í raun lífsnauðsyn á þeim tímum og margir sem fylgdu fénu á beit og stóðu yfir. Á reyndar ekki von á að margir stundi þá iðju lengur. Þorsteinn Jakobsson frá Hreðavatni eða „Steini Hreða“ orti þessa í hjástöðunni: Þá ég lá við gljáargjá gráa sá ég hjá mér á snjáinn frá sér flá með tá fá og smá í stráin ná. Ýmsar skoðanir getum við haft á lífsbaráttu forfeðra okkar og sömuleiðis grunar mig að þeir gætu haft einhverjar skoðanir á okkar vandamálum ef þeir kíktu til okkar niður á milli skýjanna en allavega orti Elivoga Sveinn um bændur: Nær þeir taka hinztu höfn til heljar snúa tánum. Geymast þeirra glæstu nöfn í gömlu markaskránum. Það er nú spurning hvort bein þörf er á markaskrám til að munað sé eftir einstak­ lingum. Hvers eiga þeir þá að gjalda sem aldrei hafa átt mark? Kristján Röðuls hét maður og taldi sig til skálda um miðja síð­ ustu öld. Gaf út nokkrar ljóðabækur og við útkomu einnar þeirra var kveðið (veit annars nokkur um höfund?) Kristján Röðuls, kappinn snjalli kveður böðulslega, réttu, hröðu rímnafalli ríður söðulvega. Björn á Löngumýri var vissulega eftirminni­ legur maður og um tíma kaupfélagsstjóri á Skagaströnd. Um hann kvað Lúðvík Kemp: Bátnum snýr og beitir vörn bæði skýr og vitur Ævintýra-óskabjörn undir stýri situr. Sumir hafa tamið sér að nota fleirtölu meira en algengast hefur verið fram undir þetta. Aðrir gagnrýna slíka meðferð móðurmáls­ ins og kalla Fleirtölublæti. Þar um orti Helgi Ingólfsson: Í fleirtölu „hakk“ yrði „hökk“, svo held ég að „flakk“ yrði „flökk“ og „malt“ yrði „mölt“ og „allt“ yrði „öllt“. Að endingu „snakk“ yrði „snökk“. -- (Þið afsakið léttúðug læti, en limrugerð vekur oft kæti. Ljóð byggja á orðum. Hér allt er í skorðum sem ofstuðlað fleirtölublæti.) En svo fyllsta jafnræðis sé gætt skal jafnframt ort um eintöluna enda sagði Helgi svo: Eintala af „kenjum“ er „kenj“ og kannski af „menjum“ þá „menj“, af „buxum“ er „buxa“... (Nú þarf ég að hugsa því þegar við grenjum fæst „grenj“). Reiðhallir hafa vaxið mjög að vinsældum á undanförnum árum og þykja nú lífsnauðsyn á öllum betri hrossabúum (og jafnvel hinum líka). Ekki voru þær þó fullkomlega óum­ deildar í upphafi og höfðu menn á þeim sem fleiru ýmsar og breytilegar skoðanir. Jóhann Guðmundsson frá Stapa var frekar jákvæður: Reisur víða um fjöllin fríð fjörga lýða sinni. En geri hríð og garra tíð gott er að ríða inni. Jón Sigurðsson í Skollagróf í Hrunamanna­ hreppi var ekki alveg eins jákvæður enda ekki þekktur að því að elta skoðanir annarra umfram þarfir: Fer ég létt um fjallaleið fjötrum sprett af sinni. En heims í þéttri hallarreið hef ég pretta kynni. Óvíst hins vegar hvort Páll Kolka hefur þurft fullþroskaða reiðhöll fyrir sínar andans tamn­ ingar: Brátt má heyra skelli og skrölt skvettist sjór á vanga. Fyrir Skaga, Gerpi og Gölt geisar skeið til fanga. Stör er bleik og fergin fölt fölskvuð lauf á götu. Ljóðabykkjan, löt og hölt lítur tóma jötu. Þó mun heyrast bráðum brölt blakkar stappa og frísa. Ljóðafákur fer á tölt fram um glæra ísa. Á árunum uppúr 1950 voru fjárskipti á Suður­ landi og víðar og eðli málsins samkvæmt umtals­ verð vinna fyrir flutningabílstjóra að flytja lömb úr Þingeyjarsýslum til Suðurlands. Ekki var þó ekið í einum áfanga heldur gist á Akureyri. Þætti þó væntanlega ýmsum nógu langur flutningur nú eins og vegakerfi landsins var á þeim tímum. Einn bílstjóranna hét Sveinn Sveinsson frá Sel­ fossi og orti á þessum ferðalögum: Eitthvað miðar áfram hér oft þó til ég slaki. Reykjaheiði horfin er Húsavík að baki. Okkur bíllinn áfram ber alltaf styttist leiðin. Grá af slyddu orðin er árans Vaðlaheiðin. Norðurlandi flutt er frá féð og lambaspörðin. Sól og blíða blikar á bjartan Hrútafjörðinn. Það hefur lengi verið siður vinnufélaga að gantast svolítið hver við annan og þykir mörgum ástæðulaust við þær aðstæður að bregða því betra ef menn vita hið verra. Piltur úr nágrenninu vann um hríð með Guðmundi Ólafssyni sem kallaður var „prestaskáld“ og einhvern tímann kom gamall sveitungi og spurði hvort pilturinn væri ekki röskur til verka. ,,Jú, það hlýtur að vera. Hann er alltaf fyrstur í mat,“ var svarið. Nú stóð svo á að pilturinn átti erindi af staðnum og fékk skyndilega far sem hann greip á stundinni. Þá sagði Guðmundur: Þó að Kristján fái far og ferðist vítt um byggðir lands þess mun enginn verða var að vanti mann í staðinn hans. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Hrísum, 320 Reykholt S 435 1189 og 849 2715 dd@simnet.is En geri hríð og garra tíð ­ gott er að ríða inni Húsið Kirkjuhvoll eins og það lítur út í dag. Ljósm. vaks. Húsið Kirkjuhvoll leigt fyrir íþróttafólk tímabundið

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.