Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1992, Page 24
Slysavarnir eða fyrirbyggjandi aðgerðir
Mikil umræða fer nú fram um sparnað í heilbrigðisþjónustunni. Engum blandast
hugur um að málið er viðkvæmt því oftast kemur slíkur sparnaður niður á
þjónustunni. Einfaldasta leiðin til sparnaðar er án efa að gríþu til aðgerða, sem
koma í veg fyrir sjúkdóma eða meiðsl.
Hér verður rætt um fyrirbyggjandi aðgerðir til þess að draga úr áverkum við
umferðarslys, þ.e. skyldunotkun loftpúða (Air bags) í bifreiðum og hjálmanotkun
bama á reiðhjólum.
Loftpúðar (Air Bags) í bifreiðum.
Hver er árangur af slíkum útbúnaði. Verður hér getið niðurstöðu tveggja
rannsókna í Bandaríkjunum.
Dánartíðni ökumanna lækkaði um 28% í bifreiðum með loftpúða við framaná-
árekstur borið saman við dánartíðni ökumanna í bifreiðum án slíks útbúnaðar
(Insurance Institute for Highway Safety. USA. 1991).
Dánartíðni lækkaði um 19% í heild ef miðað var við allar tegundir af árekstrum,
21% fyrir bflstjóra án bflbeltis og 9% fyrir bflstjóra í beltum.
Tíðni meðal- og alvarlegra áverka var 25-29% lægri meðal ökumanna í bifreiðum
af árgerðl990 sem búnir voru loftpúðum, en meðal ökumanna í bifreiðum af
sömu árgerð, sem einungis voru útbúnir með bflbeltum (Highway Loss Data
Institute. USA. 1991).
Sjúkrahúsinnlagnir voru 24% færri meðal ökumanna í bifreiðum með loftpúða.
Þessar niðurstöður eru byggðar á athugun á tryggingabótum vegna 4000 ffamaná-
árekstra, þar sem meðal viðgerðarkostnaður reyndist kr. 300.000, þ.e. meiriháttar
árekstrar.
Víða um lönd hafa nú verið settar reglugerðir um að bifreiðar séu útbúnar með
loftpúðum. í bandarískum bflum er slíkur útbúnaður algengur. Skilyrði fyrir því
að Volvo fær að selja bifreiðar, t.d. í Þýskalandi og í fleiri löndum í Evrópu, er að
bifreiðar þeirra séu útbúnar með loftpúða.
Lagt er til að sett verði ákvæði í lög um að einungis sé leyft að selja bifreiðar með
loftpúðum hér á landi. Við Islendingar höfum verið eftirbátar í
umferðaröryggisaðgerðum borið saman við aðrar þjóðir.
Drögum lœrdóm afað það tók 10 ár að lögfesta bílbelti í bifreiðar hér á landi. Sá
dráttur varð okkur dýrkeyptur í mannslífum.
20
J