Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1992, Blaðsíða 29
0\ Oi A
nauðsyn. Mikil verkleg þjálfun á æfingasvæði myndi sennilega fækka slysum svo
niikið, að kostnaður við gerð æfingasvæðisins myndi greiðast upp á skömmum
tíma.
Það verður einnig að draga í efa hvort 15 ára unglingar hafi yfir höfuð andlegan
og líkamlegan þroska til að aka bifhjóli svo vel sé. Oft virðast bifhjólin vera notuð
sem leiktæki. Notkun öryggishjálma er algeng enda hafa rannsóknir leitt í ljós að
höfuðáverkum fækkar verulega. Hlífðarfatnaður er til mikilla bóta þar sem
alvarlegum slysum fækkar og meðhöndlun áverkanna verður einfaldari og
ódýrari. Leðurklæðnaður er ekki notaður sem skyldi, enda dýr.
Það verður að draga í efa hvort núverandi tryggingastefna sé rétt, þegar haft er í
huga að slysatíðni bifhjóla er mun meiri en bifreiða. Að auki slasast fólk meira í
bifhjólaslysum en bifreiðaslysum enda miklu verr varið.
Lögregla og Umferðarráð hefur aðeins vitneskju um hluta af öllum
umferðarslysum. Það er nauðsynlegt að samræma skáningu umferðarslysa, sem
og annarra slysa, svo hægt verði að grípa inn í með fyrirbyggjandi aðgerðum.
Kröftugt forvarnarstarf er sennilega besta langtímalausnin, en í því sambandi er
eðlilegt að leita meira til skólanna en nú er gert. Það virðist tímabært að stofna
slysavamaráð.
Samantekt: Orsök bifhjólaslysa er margþætt og slysatíðnin er mjög há. Oft er um
að ræða unga, reynslulitla og illa varða karlmenn, sem aka við fremur hagstæð
skilyrði og utan vinnutíma. Þeir eru oftar í rétti en ökumenn annarra farartækja.
Undirbúning og æfingaaðstöðu fyrir ökuréttindi virðist stórlega ábótavant. Iðgjöld
bifhjóla eru ekki í samræmi við slysatíðnina.
Lokaorð:
Bifhjól eru hættuleg leiktæki og kostnaðarsöm fyrir þjóðfélagið.
tkimildir:
L Einarsson G.H. Vélhjólaslys í Reykjavík 1981-1982. Reykjavík: Landlæknisembættið
1984.
2 ■ Engström A. Causes and consequences ofmoped and motorcycle accidents. A prospective and
retrospective study of clinical series. Scand J Soc Med 1979; (suppl 15):l-88.
2- Guðmundsson K. Höfuðáverkar og umferðarslys: Sjúklingar vistaðir á Borgarspítala 1973-
1980. Læknablaðið 1985;71:50-2.
Mogensen B. Bifhjólaslys og afleiðingar þeirra. Heilbrigðisskýrslur 1986 (fylgirit 1).
Mogensen B. Slysakostnaður á íslandi. Læknablaðið 1990; 76:419.
Torfason B. Umferðarslysin og afleiðingar þeirra. Heilbrigðisskýrslur, Fylgirit nr. 1/1984.
25