Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1992, Blaðsíða 53
USA, 1991). Sjúkrahúsinnlagnir voru 24% færri meðal ökumanna í
bifreiðum búnum loftpúðum. Þessar niðurstöður eru byggðar á athugun á
tryggingarbótum vegna 4000 framaná-árekstra, þar sem meðal
viðgerðarkostnaður reyndist vera > 300.000 krónur, þ.e. við meiriháttar
árekstra. Loftpúðar eru alldýrir í innkaupum og því er lagt til að
innflutningur verið tollfrjáls líkt og Norðmenn hafa samþykkt frá
01.01.1993.
3. Rannsóknarnefnd umferðarslysa verði tryggt meira rekstrarfé. Þó að nefnd
hafi verið skipuð fyrir nokkrum árum hefur hún lítið starfað vegna
fjárskorts! Rannsóknarnefndir umferðarslysa starfa nú í mörgum
nágrannalöndum og eru taldar hafa svipaða þýðingu og Rannsóknarnefndir
flugslysa.
4. Ökukennsla: Hluti af ökukennslu skal fara fram á malarvegum. Vegir eru
víða slæmir á Islandi. Slys vegna útafaksturs eru tíðari hér á landi en í
nágrannalöndunum, m.a. á malarvegum. Yfirgnæfandi meirihluti unglinga
öðlast ökuskírteini án þess að hafa nokkum tíma ekið á malarvegum! Einnig
ber að kenna ungum ökumönnum hvemig bregðast skuli við í slysatilvikum,
t.d. í hálku eða ef framhjól fer skyndilega út af vegarbrún o.fl.
5. Ökukennsla: Öllum er ganga undir ökupróf ber skylda til þess að taka
námskeið í skyndihjálp á eigin kostnað. Einnig hugsanlegt að tengja þetta
skólastarfinu í 10. bekk grunnskóla. R.K. í. heldur skyndihjálparnámskeið
með jöfnu millibili.
Niðurstöður margra rannsókna, þ.á.m. frá íslandi, sýna að lífshættulega
slasaðir einstaklingar sem fá strax skyndihjálp á slysstað fyrir tilstilli
leikmanna, hafa mun betri batahorfur en þeir er ekki verða aðnjótandi slíkrar
hjálpar.
6. Bifreiðarstjórum og farþegum í leigubílum og skólabílum ber að nota
bílbelti.Víða um lönd em ákvæði um þetta atriði. Alvarleg slys hafa orðið á
leigubílstjórum og í skólabifreiðum vegna þess að bílbelti vom ekki notuð.
Umferðarráð samþykkti á fundi fyrir skömmu að leggja til við ráðherra
eftirfarandi breytingar á umferðarlögum:
1. Að hlífðarhjálmar verði lögbundnir við reiðhjólaakstur 6-12 ára bama.
Foreldrar skulu vera ábyrgir fyrir því að lögin séu haldin.
2. Heimild fyrir ráðherra að gefa út reglugerð um loftpúðabúnað bifreiða nú
þegar.
3. Að rannsóknamefnd umferðarslysa verði tryggt meira rekstrarfé.
4. Um skyldunotkun bílbelta í skólabílum.