Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1992, Qupperneq 30

Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1992, Qupperneq 30
Fjórhjólaslys í Hvammstangalæknishéraði 1987 og 1988. Flutt á Norrœnni slysavarnaráðstefnu 1991. Haraldur Tómasson, heilsugœslulœknir. Markmið skýrslu þessarar er að vekja athygli á slysahættu þeirri sem notkun fjórhjóla hefur í för með sér. Hvammstangalæknishérað er á Norðurlandi vestra, það er víðlent og þjónar Vestur-Húnavatnssýslu og Bæjarhreppi í Strandasýslu. Ibúafjöldi árin 1987 og 1988 var um það bil 1750 og helstu atvinnuvegir eru landbúnaður og sjávarútvegur og þjónusta tengd þeim. Ein heilsugæslustöð er í héraðinu og þangað leita allir sem lenda í slysum á svæðinu. Skýrsla þessi er byggð á gögnum stöðvarinnar og jafnframt voru fengnar upplýsingar um fjölda fjórhjóla hjá Bifreiðaeftirlitinu á Blönduósi. Haustið 1986 voru fyrstu fjórhjólin flutt inn í héraðið, fjöldi þeirra jókst hratt árið 1987 og í lok ársins 1988 voru 49 fjórhjól skráð í héraðinu. Á árunum 1987 og 1988 leituðu 9 slasaðir ökumenn fjórhjóla meðferðar á heilsugæslustöðinni á Hvammstanga. Áverkar þeirra hlutust er þeir köstuðust annað hvort fram eða aftur fyrir hjólin og stundum lentu hjólin ofan á þeim. Þeir slösuðu voru allir karlmenn, búsettir á svæðinu. Nánar um slysin: Spítala- Slysa- vist bætur Mán./ár Aldur Áverki (dagar) (dagar) 02.87 21 Kinnbeins- og augntóftarbrot/ andlitsáverkar 7 21 06.87 42 Tognun í baki 7 36 10.87 25 Liðhlaupsbrot milli axlarhymu og viðbeins, heilahristingur 5 95 02.88 24 Liðhlaupsbrot milli axlarhymu og viðbeins 3 115 06.88 36 Nef- og kinnbeinsbrot. Andlitsáverkar 11 75 09.88 26 Mar á bijóstkassa 2 0 09.88 58 Tognun í baki 0 6 09.88 55 Tognun í læri 0 25 11.88 30 Mar á upphandlegg 0 0 Átján prósent ökumanna lentu í slysum á þessu tveggja ára tímabili. Slysin voru misjafnlega alvarleg eins og fram kemur í töflunni. Fyrir utan áverkana og persónulegt tjón er kostnaður þjóðfélagsins töluverður. Sjúkrahúsdagar urðu samtals 33 og slysabætur greiddar í samtals 373 daga. Slysin gerðust bæði við leik og störf. Áfengisneysla var ekki til staðar. Hjálmanotkun var engin. Sum slysanna stöfuðu af hraðakstri, óvarkámi og ungæðishætti, en önnur má rekja til reynslu- og æfingaleysis. Síðan þessi skýrsla var tekin saman, hefur mikið vatn runnið til sjávar. Sú tískubóla sem fjórhjólin vissulega voru hefur hjaðnað. Fjórhjólaslys gerast þó enn og í Hvammstangalæknishéraði hafa nokkur slys átt sér stað eftir 1988. Ennfremur hafa komið fram síðkomnar afleiðingar slysanna hjá nokkrum ökumönnum. 26
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.