Leikhúsmál - 01.12.1995, Blaðsíða 29
SVIÐSSTARF
STARFSSVIÐ
Messíana Tómasdóttir
um standi fólk upp með skrifaðar ræður ef
það er að eigin frumkvæði. En að skipu-
leggjendur þings af þessu tagi skuli sjálfir
leita uppi gagnrýnendur á eina ákveðna
stofnun, setja þessa ræðumenn inn í svo-
kallaðar almennar umræður og auglýsa
það ekki í fundarboði, það finnst mér
óheiðarleg vinnubrögð.
Við boðuðum til almenns félagsfundar í LR
27. mars. Þar kynntum við í stjórninni laga-
breytingahugmyndir okkar. En þær voru
helstar að rýmkað yrði um inntökuskilyrði í
félagið og ráðning leikhússtjóra færðist frá
stjórn og aðalfundi til leikhúsráðs. Það
virðist í fyrstu mikið fyrir félagsmenn að
kyngja því að ráðning leikhússtjóra flytjist til
leikhúsráðs.
Eftir páska var alveg orðið Ijóst hvað við
í samstarfsnefndinni myndum násamkomu-
lagi um. Þá var bara að setjast niður og
vinna lokafrágang skýrslunnar. Hitann af
því starfi bar ÖrnólfurThorsson. Við skiluð-
um svo af okkur til borgarstjóra 28. apríl."
Að lokum kvaðst Kjartan hlakka til að
takast á við næsta verkefni í þessu sam-
hengi, en það er að ganga frá nýju sam-
komulagi um rekstur Borgarleikhússins við
Reykjavíkurborg og vinna úr þeim hug-
myndum, sem miða að því að skjóta nýjum
og traustari stoðum undir reksturinn í hús-
inu.
Hugmyndir viðræðunefndarinnar munu
meðal annars gera ráð fyrir slíku samkomu-
lagi eða endurskoðun á samkomulaginu frá
1992. Þar er einnig lagt til að í samstarfs-
samningnum verði ákvæði um fastan styrk
Reykjavíkurborgar til leiklistarstarfsemi á
vegum LR í Borgarleikhúsi. - Ennfremur er
þarna að finna tillögur um hækkun á styrkj-
um til félagsins og sérstaka fjárhæð vegna
erfiðrar fjárhagsstöðu nú um stundir. í til-
lögunum felst ennfremur:
1. Nefndin hvetur til að endurskoða sam-
komulag um rekstur Borgarleikhúss frá
1992 og lög LR með eftirfarandi breytingar
fyrir augum:
a) Skipan, starfsvettvangur og hlutverk
leikhúsráðs verði skilgreint í samkomu-
lagi aðila um rekstur Borgarleikhúss.
b) Leikhússtjóri verði ráðinn af leikhúsráði.
c) í samstarfssamningi aðila verði ákvæði
um fastan styrk Reykjavíkurborgar til
leiklistarstarfsemi á vegum LR .í Borgar-
leikhúsi.
d) Núverandi samráðsnefnd aðila verði að
Rekstrar- og byggingarnefnd Borgarleik-
húss.
2. Leikfélag Reykjavíkur fái 15 miljón kr.
árlegan styrk til annarrar starfsemi í Borgar-
leikhúsi en leiklistarstarfs á vegum LR.
Sem oftar er ég beðin að taka að mér
að skálda leikmynd og búninga í leik-
húsi. Fyrstu viðbrögð eru forvitni,
blandin tregðu, löngun til að segja
nei, vitandi of vel af vökum, fórnum og
svikum við sína nánustu þegar leikhúsið er
tekið fram yfir allt. En þessi dans á hnífs-
oddi, að gera það ómögulega mögulegt,
kveikir í enn og aftur. Eftir langt samtal við
leikstjórann lofa ég að hugsa málið. Verkið
er lesið, fyrstu hugmyndir rissaðar. Þær eru
mikilvægastar, ferskastar. Stemningar byrja
að melda sig: litir, rými, form í rýminu,
hreyfmg í rýminu, ljós. Það logar nú vel í
mér og litirnir, fyrst og fremst litirnir,
þrengja sér hver fram fyrir annan og um-
skapast. Grunnlausn leikmyndar fæðist í
gönguferð við sjó. í roki. Gaman. Langt
samtal við leikstjórann. Rýnt saman í undir-
textann, rýnt og rýnt. Nú logum við í sama
bálinu. Gaman. Örlíkan gert. Glápt með
leikstjóra. Heyrðu, en hvernig ... hvort ætti
... hvað ef... Andvökunótt. Farið á Þingvöll.
Hugsað, teiknað, hugsað, teiknað, hugsað.
Ný hugmynd um efnisnotkun fæðist. Til-
raunir. Langt samtal við leikstjórann. Nýtt
örlíkan gert, eða tvö, eða þrjú. Glápt með
leikstjóra, síðan með ljósahönnuði. Farið á
flug. Hlustað á tónlist, helst nýja. Litirnir
skýrast, útlínur að búningum verða til.
Slappað af með uppáhalds myndlistarbæk-
urnar, bara flett og notið: Rothko, Malevich,
Ad Reinhardt, Alechinsky, Josef Albers,
Beuys, Anish Kapoor, Afríkumyndir Matisse,
sem fundust nýlega í Rússlandi. Bara flett.
Lesið svolítið í Craig. Sofið og sofið. Endan-
leg hugmynd að leikmynd fæðist og síðasta
örlíkan er gert. Langt samtal við leikstjór-
ann sem heldur líkaninu til að leika sér
með. Gaman. Stórt líkan byggt. Viðað að sér
upplýsingum um efni og rætt við smiði og
leiksviðsfólk með leikstjóranum. Samlestur.
Leikararnir gefa persónunum fyrsta hald-
bæra lífsmark. Gaman. Endurskoðun á
búningahugmyndum. Langt samtal við
leikstjórann. Búningar teiknaðir. Rætt
ásamt leikstjóra við hvern leikara um bún-
ing hans og gervi. Reynt að bíða með út-
færslu eins lengi og stætt er á. Verið á æfing-
um og glápt og rissað og hugsað og talað
lengi við leikstjórann. Síðan útfærsluvinn-
an, maníska stigið. Hlaupið milli verkstæða.
Hlaupið milli tebolla. Gaman. Enn hlustað á
tónlist, helst nýja. Enn gengið að sjónum,
helst í roki. Það er ekki alveg smollið. Tár og
sviti. Þetta tekst ekki. Langt samtal við leik-
stjórann. Síðustu lagfæringar á leikmynd.
Ljósatilraunir með ljósahönnuði og leik-
stjóra. Búningar tilbúnir. Sýningin endan-
lega lýst. Small hún? Á frumsýningu er
leiksins e.t.v. loksins notið. Glaðst. Beðið
með að syrgja það sem ekki tókst. Síðan
tómið, þreytan, léttirinn lætur standa á sér.
Fjölskyldan bíður með opinn faðminn, til-
búin að hugga, enn og aftur ...
27