Leikhúsmál - 01.12.1995, Blaðsíða 42
LEIKHÚSMÁL
MYLSNA
ÍSLÉNSK LEIKLIST II. Nýlega blrtist í Nor-
ífic Theatre Studies langur og lofsamleg-
ur dómur eftir Terry Gunnell um I. bindi
leiklistarsögu Sveins Einarssonar, en
Sveinn mun nú vera að reka smiðshögg-
ið á 2. bindi sem vonandi birtist í bókar-
formi á næsta ári. Þetta bindi tekur við
þar sem hinu fyrra sleppti og fjallar um
árin 1890-1920. Þar kveðst Sveinn
reyna að leiða rök að því að leiklist I nú-
tímaskilningi verði til á íslandi einmitt á
þessum árum. Tekur hann þar fyrir leik-
húsbyggingar og önnur leiksvið, skipu-
lag og fjárreiður þeirra, sem fyrir leik-
starfsemi standa, stöðu leikhússins i
samfélaginu og opinbera viðurkenningu,
mat blaða og áhrifþeirra, verkefnaval og
áhrif á það, fyrstu gullöld islenskrar leik-
ritunar, sem einmitt upphefst á þessum
árum, og loks fjallar hann um list sviðs-
ins, leikstjórn og sviðsetningar, leik-
myndir og búninga, tónlist og dans og
list leikaranna. Sveinn mun hafa unnið
að þessum rannsóknum með hléum síð-
an 1961.
Leiklistarsjóð-
ur Þorsteins Ö.
Stephensen
var stofnaður
að frumkvæði
FÍL til heiðurs
Þorsteini I til-
efni af 50 ára
afmæli Ríkis-
útvarpsins. Til-
gangur sjóðsins er að stuðla að eflingu
Islenskrar leiklistar í landinu.
Þorsteinn Ö. hefði orðið níræður 21.
desember sl. Af þvi tilefni gaf leiklistar-
sjóðurinn I samvinnu við RÚV út geisla-
disk sem ber heitið Ljóð og saga. Þar les
Þorsteinn upp Ijóð eftir ýmis höfuðskáld
okkar, einnig valda kafla úr Fjallkirkj-
unni. Upptökurnar eru frá árunum
1947-77.
Af sama tilefni var veittur styrkur úr
sjóðnum á afmælisdegi Þorsteins. Ásdis
Thoroddsen leikstjóri hlaut styrkinn til
að sækja námskeið I leikstjórn fyrir út-
varp.
HRÓI HÖTTUR
menningar og lista
í tímaritaútgáfu á íslandi?
Menningar-
handbókin
Leikur & List
í ágúst sl. kom út fyrsta tölublað Menn-
ingarhandbókarinnar Leikur og List, tíma-
rits um menningu, mannlif og listir sem
mun koma út mánaðarlega i 63.000 ein-
tökum og verður borið inn á öll heimili á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Tímarit á borð
við Menningarhandbókina eru gefin út i
öllum menningarborgum heims og sann-
arlega tími til kominn að almenningur fái
gagngóðar og aðgengilegar upplýsingar
af þessu tagi á einum stað.
í Menningarhandbókinni fá leikhús-
listamenn sérstakt pláss þar sem þeir
geta komið á framfæri hvers kyns frétta-
flutningi og upplýsingum um starfsemi
sina. Allt sem markvert er að gerast I
myndlistinni fær góða umfjöllun og aug-
lýsingu; tónlistarstarfsemi og hljómleika-
haldi eru gerð skil og vakin athygli á öllu
er viðkemur sönglist, þ.m.t. óperunni og
sjálfstætt starfandi atvinnusöngvurum.
Einnig eiga listdansarar vísan stað i ritinu
auk rithöfunda, bókaútgefenda og margra
annarra.
Aðstandendur útgáfunnar er Upplýs-
ingahópur lausráðinna leikhúslistamanna
(ULL) og ábyrgðarmenn eru Edda Björg-
vinsdóttir ritstjóri, Katrín Snæhólm Bald-
ursdóttir og Margrét Ákadóttir fræðslu-
stjóri.
Leikhópum og öðrum listamönnum
sem njóta litilla eða engra opinberra
styrkja er hér bent á leið til að kynna starf-
semi sína endurgjaldslaust. Hafið sam-
band við Menningarhandbókina!
Þórunn Magnea
Magnúsdóttir
Standklukka
og stofublóm
Mig langaði að vakna á morgnana
við hliðina á þér;
teygja út höndina og snerta þig,
brosa svo við komandi degi.
Mig langaði til að ganga með þér
gegnum líflð;
enfyrst það var ekki hægt
ætla ég að senda þér:
standklukku og stofublóm.
Svo að einhvern tíma
þegarþú ert orðinn gamall
munirðu eftir mér.
Eitt andartak kvikni minning
um eitthvað óljóst
í hálfblindum augum þínum.
Blik sem enginn veit hvað var.
En það var ég.
40