Leikhúsmál - 01.12.1995, Síða 30
LEIKHÚSMÁL
Verkefnaskrá „stóru leikhúsanna"
stjóra samíska þjóðleikhússins. Það eru Rósa
Guðný Þórsdóttir og Valdimar Örn
Flygenring sem verða þess heiðurs aðnjót-
andi að leika Blanche og Stanley. í lok mars
frumsýnir LA svo nýjan gamanleik eftir
Kjartan Ragnarsson og Einar Kárason.
Vinnuheiti hans er Heima er best. Þar munu
verða tekin fyrir þekkt klúðurmál í íslensku
samfélagi. Ýmsar smærri uppákomur verða
einnig á dagskrá leikfélagsins nyrðra í vetur.
Til dæmis verður boðið upp á þrjár aðfluttar
barnasýningar.
fræga verki sem væntanlega höfðar bæði til
ungra og gamalla. Þá sætir ekki minnstum
tíðindum að opnunarsýning Listahátíðar 96
á að vera sýning ísl. óperunnar á nýrri
íslenskri óperu. Er það Galdra-Loftur eftir
Jón Ásgeirsson og mun þetta vera önnur
ópera hans í fullri lengd (hin fýrri var
Þrymskviða, flutt 1974). Garðar Cortes
verður hljómsveitarstjóri en söngvarar verða
þau Þorgeir Andrésson, Elín Ósk Óskars-
dóttir, Þóra Einarsdóttir og Bergþór Pálsson.
Leikstjóri allra þessara sýninga verður
Halldór E. Laxness, sem talsvert hefur
starfað með söngskólanemendum og hefur
nú verið fastráðinn hjá fsl. óp. þetta leikárið.
Hulda Kristín Magnúsdóttir er búninga-
hönnuður allra sýninganna en einnig hún
hefur verið ráðin allt leikárið og mun þetta
vera í fyrsta skipti sem fsl. óp. ræður aðra
listamenn en söngvara. - Auk þessara
sýninga verða teknar upp sýningar í haust á
rómaðri uppfærslu ísl. óp. á Carmina
Burana og þá mega menn einnig vænta þess
að geta séð sýningu Þórhildar Þorleifsdóttur
á Ótelló áður en sú sýning fer í leikferð - alla
leið til Japans!
íslenski dans-
flokkurinn
Hjá íslenslca dansflokknum í vetur er ýmis-
legt á döfinni. Fyrst er að telja sýningu í
Borgarleikhúsinu í nóvember. Á efnisskrá
verða ýmsir gullmolar í ldassískum og ný-
Idassískum stíl. Þar á meðal verður eitt verka
hins fræga aðaldansara frá New York City
Ballet, Robert La Fosse, sem kemur hingað
til að setja verkið á svið. Einnig verður þá
frumflutt nýtt verk fyrir tvo dansara eftir
Ingibjörgu Björnsdóttur, sem samið hefur
fjölda verka fýrir Dansflokkinn og Listdans-
skóla fslands.
Um páskana verður önnur sýning Dans-
flokksins í Borgarleikhúsinu. Er þar um að
ræða frumflutning á nýju verki þeirra
Nönnu Ólafsdóttur dansskálds og Sigurjóns
Jóhannssonar leikmynda- og búningahönn-
uðar. Efnið er rammíslenskt og gamalt,
byggir á heimildum sem og hugmyndum
höfunda um Guðmund biskup góða, sem
nánast varð þjóðsagnapersóna í lifanda lífi.
Loks er fyrirhuguð sýning Dansflokksins á
Listahátíð ’96 í samvinnu við Kammersveit
Reykjavíkur. Annað tveggja verka sem flutt
verður þar er Keisarinn og nœturgalinn við
tónlist eftir John Speight. Sýningin verður
líka í Borgarleikhúsinu.
íslenska óperan
Ólöf Kolbrún Harðardóttir hefur látið af
störfum sem óperustjóri og er Garðar
Cortes tekinn við aftur, en Ólöf Kolbrún
gegnir nú starfi framkvæmdastjóra. Mikil
bjartsýni og stórhugur einkennir verk-
efnaskrá komandi leikárs í óperunni. Fyrir
jól á að frumsýna Madama Butterfly og
Leikfélag Akureyrar
LA hefur leikárið með leikgerð af sögunni
um Drakúla greifa eftir írska rithöfundinn
Bram Stoker. En hundrað ár eru nú liðin síð-
an sagan kom út. Leikgerðin er unnin sér-
staklega fyrir LA af írska leikstjóranum
Michael Scott og mun hann jafnframt leik-
stýra. Frumsýning er áætluð 13. október.
Um jólin verður Sporvagninn Girnd eftir
Tenessee Williams frumsýndur á Akureyri í
leikstjórn Hauks Gunnarssonar, leikhús-
munu þau Ólöf Kolbrún og Ólafur Bjarni
leiksyngja elskendurna frægu, japanska
fiðrildið og bandaríska dátann. Er þetta í
fyrsta sinn sem þessi sívinsæla ópera
Puccinis er flutt í ísl. óperunni (Þjóð-
leikhúsið flutti verkið 1965 með Rut
Jacobson og Guðmundi Guðjónssyni). En
strax um jólin eiga svo Hans og Gréta eftir
Humperdinck að komast á fjalirnar og
verður það frumflutningur á íslandi á því
28