Leikhúsmál - 01.12.1995, Page 36
LEIKHÚSMÁL
GOTT AÐ VITA!
-VEITÁGOTT!
Stjórnir, nefndir og ráð sem leiklistarfólk
varða eru margvísleg og ef til vill ekki öllum
ljóst hvernig sú flóra lítur út. Leikhúsfólk er
trúlega ennfremur misjafnlega frótt um þá
möguleika sem gefast til fjárframlaga úr sjóð-
um og af opinberu fé. Skal þess nú freistað að
tína til þessar upplýsingar og verða hér taldar
upp helstu stoíhanir sem leiklistina varða og
og getið nokkurra styrkja.
NEFNDIR OG RÁÐ
Stjórn FÍL
Edda Þórarinsdóttir, formaður, endurkjörin
1995,
Randver Þorláksson, varaformaður, endur-
kjörinn 1994,
Theodór Júlíusson, gjaldkeri, endurkjörinn
1994,
Hilmar Jónsson, ritari, kjörinn 1994 (til
tveggja ára),
Sigrún Guðmundsdóttir, meðstjórnandi,
kjörin 1995
Kjörtímabil hvers stjórnarmanns er 3 ár.
Varamenn stjórnar eru: Þórdís Arnljóts-
dóttir, Snorri Freyr Hilmarsson og Magnús
Steinn Loftsson. Varastjórn var kosin 1995
og situr 3 ár.
Trúnaðarmannaráð FÍL 1995-96
í því situr stjórn FÍL og formenn deildanna:
1. deild Jóhann Sigurðarson
2. deild Ari Matthíasson
3. deild Sigurþór Albert Heimisson
4. deild Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
5. deild Hlín Gunnarsdóttir
6. deild Stefán Arngrímsson (Magnús Steinn
Loftsson)
7. deild Birgitta Heide.
Hlutverk trúnaðarmannaráðs er að fjalla um
kjarasamninga og önnur þýðingarmikil
hagsmunamál félagsins, þar með að taka
ákvarðanir um vinnustöðvanir í því skyni að
knýja á um kjarabætur.
Bandalag íslenskra listamanna
Fulltrúi FÍL þar er Edda Þórarinsdóttir.
Bandalagið er samband félaga hinna ýmsu
listgreina og tilgangur þess fýrst og fremst:
a) að styðja vöxt og viðgang íslenskra lista
bæði utan lands og innan,
b) að gæta hagsmuna íslenskra listamanna,
c) að efla samvinnu með íslenskum lista-
mönnum.
Leiklistarráð
I ráðinu eru 32 fulltrúar skipaðir af mennta-
málaráðuneyti eftir tilnefningum frá félög-
um og stofnunum tengdum leiklistarlífi.
Ráðið kemur saman einu sinni á ári en 3ja
manna framkvæmdastjórn fer með málefni
ráðsins milli funda. Stjórnina skipa nú:
Hávar Sigurjónsson, Vilborg Valgarðsdóttir
og Þórhallur Sigurðsson.
í núgildandi leiklistarlögum frá 1977 og
í reglugerð frá 1982 er kveðið á um starfs-
svið ráðsins: það skuli vera vettvangur um-
ræðna og stuðla að því að leiklistarstarfi
séu búin þroskavænleg skilyrði, ráðgefandi
aðili fýrir ráðuneyti, sveitarfélög og leik-
listarstofnanir, stuðla að útgáfu og ritun
leikrita og loks (í 7. grein reglugerðar):
„Framkvæmdastjórn Leiklistarráðs gerir
tillögur til menntamálaráðuneytisins um
úthlutun samkvæmt reglum sem hún setur
sér.“
Hávar formaður ráðsins segir: „1 reynd
hefur starfsemi framkvæmdastjórnar ráðs-
ins að mildu leyti snúist um ofangreinda ár-
lega úthlutun sem heitir nú á fjárlögum „Til
atvinnuleikhópa". Árin 1994 og 1995 voru til
ráðstöfunar 14 milljónir hvort ár, þar af voru
tæpar 15 m. bundnar í starfssamning við Frú
Emilíu. Til annarra leikhópa var því úthlut-
að u.þ.b. 13 m., þ.e. 4 m. árið 1994 og 9 m.
árið 1995.
Fjármagn til annarrar starfsemi á vegum
leiklistarráðs er elckert og því er ráðið ófært
um að sinna öðrum lögbundnum skyldum
sínum, svo sem útgáfustarfsemi. Ráðgjafar-
og umsagnarhlutverk framkvæmdastjórnar
um erindi þau sem berast menntamálaráðu-
neytinu og tengjast leildist er óvéfengjanlegt
samkvæmt lögum og reglugerð, en hefur í
reynd verið háð geðþótta starfsmanna ráðu-
neytisins. Einnig má segja að leiklistarstofn-
anir þær sem eiga aðild að ráðinu hafi lítt
eða ekkert nýtt sér ráðið eða framkvæmda-
stjórn þess til að koma málum sínum fram
gagnvart stjórnvöldum. Gagnger endur-
skoðun á leiklistarlögunum í heild og hlut-
verki leiklistarráðs sérstaklega er því löngu
tímabær. “
Við þetta má nú bæta:
Nefnd um endurskoðun leiklistarlaga
(formaður Sveinn Einarsson) lauk störfum
nú snemma í ágúst og hefur afhent ráðherra
skýrslu sína.
Leiklistarsamband íslands
Stjórn: Sigrún Valbergsdóttir, formaður;
Þórhallur Sigurðsson, ritari; Ingibjörg
Björnsdóttir, gjaldkeri; Árni Ibsen og Edda
Þórarinsdóttir, meðstjórnendur.
Leildistarsamband íslands er sameiginleg-
ur starfsvettvangur allra þeirra starfsgreina
og stofnana sem vinna að leikhúsmálum á
Islandi og því er ætlað að örva samstarf og
kynningu þeirra. Það er aðili að Leiklistar-
sambandi Norðurlanda (NTU) og að Al-
þjóða leikhúsmálastofnuninni (ITI) og tek-
ur fyrir Islands hönd þátt í samstarfí á þeim
vettvangi. Formaður og ritari sitja í stjórn
NTU. Aðild að Leildistarsambandi Islands
eiga félög íslenskra leikara, leikstjóra, leik-
skálda, listdansara og leilchúsfræðinga, Leik-
listarskóli Isl., ísl. dansflokkurinn, Bandalag
atvinnuleikhópa, Bandalag ísl. leikfélaga,
Ríkisútvarpið, Leikfélag Akureyrar, Leikfélag
Reykjavíkur, Alþýðuleikhúsið og Þjóðleik-
húsið. Aðilar tilnefna fulltrúa og varamann
hans í fulltrúaráð, sem síðan kýs stjórn úr
sínum röðum. I 3. grein laga LSl segir: „Öll
íslensk atvinnusamtök leifhúsfólks, at-
vinnuleikhópar og stofnanir sem vinna að
leiklistarmálum á íslandi geta sótt um aðild
að Leiklistarsambandi Islands. Aðalfúndur
tekur ákvarðanir um aðildarumsóknir.“
Sem dæmi um starfsemi á vegum LSl má
nefha nokkuð af því sem kemur fram í
skýrslu síðasta starfsárs: Árlegt leildistar-
þing; útgáfa og dreifing árbókarinnar Theat-
er in Iceland; alþjóða lerkhúsdagurinn
27.mars; grein um íslenskt leikhús
1992-1994 í World of Theater (kemur út
annað hvert ár á vegum ITI ), allar upplýs-
ingar í World Theatre Directory (uppsláttar-
rit á vegum ITI), kynning á 1. bindi WECT
(World Encyclopedia of Contemporary Theat-
er), sem fjallar um Evrópu; upplýsingar í
Nordisk Teater Katalog; samskipti við
Frauen im Theater í Berlín; aðild að nefnd til
endurskoðunar leiklistarlaga; umræður um
Leiklistarsögusafn; kynning á íslensku leik-
húsi á Bonner Biennale; undirbúningur nor-
rænna leiklistardaga í Kaupmannahöfn
1996; norræn leikskáldaverðlaun 1996; und-
irbúningur vegna þátttöku í heimsþingi ITI í
Caracas, Venezuela í júní sl. o.fl. o.fl.
Sigrún Valbergsdóttir núverandi formað-
ur LSl:
„Mjög mikið er leitað eftir upplýsingum
um leiklistarstarfsemi hér á landi og teljum
34