Leikhúsmál - 01.12.1995, Page 40
LEIKHÚSMÁL
Ballett
Ballet státar ekki af langri hefð í Noregi fremur en hér
á landi, en þar á danslistin auknu fylgi að fagna um
þessar mundir og hefur norska ríkisstjórnin ákveðið
að veita þessari listgrein sérstakan forgang í
fjárveitingum. Á ýmsum stöðum hafa verið stofnaðir
danshópar sem starfa að mestu leyti á grundvelli
atvinnumennsku. Má til dæmis nefna staði eins og
Tromso, Harstad, Þrándheim og Skien. - í norska
þjóðarballettinum, sem sinnir einkum klassiskum
dansi, eru 46 dansarar. Margir litlir hópar hafa skotið
upp kollinum og eru þeir sumir hverjir óhræddir við
nýjungar. Og þar í landi hafa komið fram mjög svo
spennandi danshöfundar. Hér sést atriði úr sýningu
Scirocco-dansflokksins á Absence defer. Höfundur er
Ina Christel Johannessen.
Þessi dálkur verður helgaður tíma-
mótaviðburðum í leiklistarsögu líð-
andi stundar. Þar sem ritnefnd get-
ur sjálf ekki verið alstaðar heitir
hún á liðveislu félaganna við aðfá í
hann efni og helst myndir því að
það er samdóma álit reyndra
blaðamanna og hálcerðra fjölmiðla-
fræðinga að svokallaður óskil-
greindur „almenningur“ hafi helst
áhuga á slíkum fréttum og því örvi
þetta sölu - og ekki veitir okkur af
til að hafa inn fyrir prentkostnaði.
HVERJIR VORU HVAR?
Tvífari Baltasars Kormáks kom að máli við
ritnefnd og kvartaði undan því að hvergi
hefði þess sést getið í sumar þótt hann hefði
oft brugðið sér á kaffihús og bari. Ritnefnd
er ljúft að bæta úr þessu; jafnframt ráðlagði
hún tvífaranum að færa sig vestur í bæ, þar
sem frumritið var öllum stundum á kafi að
æfa rokk-hryllinginn sinn.
9
Föstudaginn 25. ágúst sl. sást Þóra Friðriks-
dóttir á gangi eftir norðanverðum Laugaveg-
inum, neðarlega. Ekki tókst ritnefnd að graf-
ast fyrir um hvað hún var að gera þarna, en
hún hélt á stórum plastpoka. Og sléttri viku
seinna, sást Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir inni
í Hagkaupum í Skeifunni með meira en
hálffulla matarkörfu. Þær geta það þessar
fastráðnu...
9
I fyrstu viku septembermánaðar sást Stefán
Baldursson sitja við hringborðið í matsal
starfsfólks Þjóðleikhússins og borða saltfisk.
Við sama borð sat Kristín Hauksdóttir sýn-
ingarstjóri. Einnig hún snæddi saltfisk.
Heimildarmanni blaðsins mistókst að kom-
ast að því hvað þeim fór á milli en kvað þau
bæði hafa haft góða matarlyst (sem skýrir að
hluta hversvegna svo erfitt var að greina mál
þeirra).
Mikil kátína braust út í lokahófi Leikfélags
Reykjavíkur að afstöðnu leikári í vor og
stóð teitið með miklum fagnaði, dansi og
gleðilátum fram í rauðabítið og raunar
miklu lengur. Þarna var margt stórmennið
samankomið. Ágúst Guðmundsson, filmari
38