Morgunblaðið - 04.08.2022, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.08.2022, Qupperneq 2
ELDGOS Í MERADÖLUM2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h að ve rð ge tu rb re ys ttá n f r del Sol Malaga 595 1000 www.heimsferdir.is 39.900 Flug báðar leiðir frá Flugsæti th .a ð r Co a FLUG 11. TIL 22. ÁGÚST Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Inga Þóra Pálsdóttir Hólmfríður María Ragnhildardóttir Eldgosið sem hófst í Meradölum í gær er fimm til tíu sinnum stærra en eldgosið í Geldingadölum í fyrra. Sprungan sem opnaðist er um þrjú hundruð metra löng og um 20 til 50 rúmmetrar af kviku dælast út á hverri sekúndu. Þetta er mat Magnúsar Tuma Guð- mundssonar, prófessors í jarðeðlis- fræði hjá Háskóla Íslands, en hann fór yfir stöðu mála á blaðamanna- fundi sem almannavarnir boðuðu til í gær. Með Magnúsi á fundinum voru þau Elín Björk Jónasdóttir, hópstjóri veðurþjónustu hjá Veðurstofu Ís- lands, og Víðir Reynisson, yfirlög- regluþjónn almannavarna. Innviðir séu öruggir Á fundinum kom fram að innviðir væru öruggir en gosstöðvarnar eru fjær byggð og vegum en eldgosið í fyrra. Í samtali við mbl.is sagði Elín Björk að eins og staðan væri núna þyrfti ekki að hafa áhyggjur af inn- viðum. „Hraunflæðilíkönin okkar gera ráð fyrir því að það séu að minnsta kosti hundrað og eitthvað dagar þangað til að gosið geti komið nálægt Suður- strandarvegi ef að það heldur áfram á sama eða meiri krafti. Eins og staðan er núna þarf ekki að hafa áhyggjur af því.“ Þá varaði Elín Björk við því að meira gas fylgdi eldgosinu í ár sam- anborið við gosið í fyrra. Skýrist það af því að mun meiri kvika kemur nú upp. Sagði hún mikilvægt að þeir sem ætli að gera sér ferð að gosstöðvunum hugi að gasmengun. „Það skiptir miklu máli, af því að þetta er hættuleg gastegund, að vera ekki með strókinn framan í sér. Fólk þarf að reyna að vera alltaf þannig að það horfi á gosið undan vindi, þannig að það sé alltaf að blása frá þér.“ Höfðu afskipti af fólki Að loknum fundi í gær sagði Víðir við mbl.is að höfð hefðu verið afskipti af fólki með ung börn við gosstöðv- arnar, en ekki er ráðlagt að fara með börn þangað vegna gasmengunar. „Þetta er ekki svæði til að fara með börn á, sérstaklega ekki ung börn,“ sagði Víðir. Einnig er ekki ráðlagt að fara með gæludýr að svæðinu. Þá hefur verið varað við því að gangan að gosstöðvunum sé löng og ekki nema fyrir vana göngugarpa. Al- mannavarnir sendu öllum sem voru á svæðinu í gær SMS-skilaboð með upp- lýsingum um gossvæðið. Alls bárust skilaboðin til 8.000 símanúmera, og þar af 4.000 til erlendra símanúmera. „Þeir sem koma inn á svæðið fá upp- lýsingar í SMS-skilaboðum á íslensku og ensku. Við erum núna með lög- reglu- og björgunarsveitarmenn á svæðinu sem tala við alla sem fara af stað. Það er búin að vera mikil umferð erlendra ferðamanna að hrauninu en margir sem komu þarna í dag ætluðu bara að fara að hrauninu en ekkert lengra, það er svo sem allt í lagi. Við höfum áhyggjur af fólkinu sem ætlar að fara alla leið inn að gosstöðvunum. Þetta er löng ganga, töluverð hækkun og erfitt svæði,“ sagði Víðir. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Meradalir Eldgosið hófst eftir hádegi í gær en mbl.is greindi fyrst allra miðla frá því. Hægt er að fylgjast áfram með gosinu í beinu streymi á mbl.is ásamt nýjustu fréttum. Fimm til tíu sinnum stærra gos - Almannavarnir boðuðu til blaðamannafundar - Gosstöðvarnar fjær byggð en eldgosið á síðasta ári - Ekki þurfi að hafa áhyggjur af innviðum - Göngugarpar hugi að gasmengun - Senda fólki SMS-skilaboð Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Gossprungan Eldurinn kom upp um sprungu norður af Stóra-Hrút og stækkaði hratt eins og sjá má á myndinni sem ljósmyndari Morgunblaðsins tók um hálfri annarri klukkustund eftir að gosið í Meradölum hófst.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.