Morgunblaðið - 04.08.2022, Page 16

Morgunblaðið - 04.08.2022, Page 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022 VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Ég átti pabba og mömmu þar til ég varð átta ára, þá fór pabbi frá okkur og eftir það átti ég bara mömmu,“ segir Joachim Larsen, einn af kantmönnum lífsins í Tøns- berg í Noregi. Larsen hefst gjarn- an við á rónabekkjunum svoköll- uðu utan við verslunarmiðstöðina Farmandstredet, ekur þar um á rafskutlu með hundinn og besta vin sinn Donni í aftursætinu. Hann er upprunalega frá Nøtt- erøy, nágrannasveitarfélagi og eyju sunnan við Tønsberg, og komst lengi vel ekki af án þess að sprauta sig eins oft á dag og hann hafði efni á með heróíni, eða hest- inum eins og það efni er gjarnan nefnt. Við gefum honum orðið. „Ég gekk í grunnskóla í Ram- nes en ég er frá Nøtterøy og við bjuggum líka í Revetal, við bjugg- um úti um allt, ég bjó líka á fóst- urheimili þegar foreldrar mínir gátu ekki haft mig, við mamma eigum okkur gott samband í dag get ég sagt þér,“ segir Larsen og brosir gleðisnauðu brosi. „Búnir að taka allt af mér“ Viðmælandi þessi er þó með skemmtnari mönnum, Larsen er vel máli farinn, talar nánast í orðatiltækjum og vakti athygli þess er hér skrifar snemma í fyrrahaust fyrir hnyttin tilsvör sín, lipurt málfar og logandi hatur í garð hins opinbera. Vegurinn að þessu viðtali var nokkuð langur, um þrír mánuðir, enda ekki alltaf á vísan að róa að finna Larsen. Hann hittist þó fyrir á bekkjunum í blíðskaparveðri á mánudaginn, reiðubúinn að fara yfir líf sitt. „Já, mér fannst nú betra að vera heróínsjúklingur en að lifa á helvítis NAV [Vinnumálastofnun Noregs], þeir eru búnir að taka allt af mér, tóku til dæmis af mér rafskutluna núna um daginn af því að einhverjir öryggisverðir í versl- unarmiðstöðinni héldu að ég væri að siga Donni á þá. Þá sagði ég nú bara „Hvað er að ykkur, á ég að sprauta hundinn með deyfilyfjum til að komast hérna inn?““ segir Larsen og hlær við raust. „Svo byrjaði ég að reykja hass svona um fermingu, ætli ég hafi ekki verið fimmtán ára eða svo?“ segir Larsen frá, 33 ára gamall í dag, fæddur 13. mars 1989. „Næst fór ég að nota heróín þegar ég var nítján ára, fyrst reykti ég það bara en fór svo að sprauta mig. Að sprauta sig með heróíni er bölvað vesen, þú kaupir annaðhvort fjórð- ung úr grammi eða hálft gramm. Svo þarftu að sjóða efnið niður með svokölluðu skotvatni og kæla það svo niður í stofuhita. Næst þarftu að finna æð sem þú getur sett dæluna í og þetta er bara tómt rugl,“ segir Larsen og hlær dátt á meðan blaðamaðurinn sem hér skrifar situr náfölur af lýsing- unum honum við hlið. Greindist með MS „Ég var glæpamaður, ég seldi dóp og gerði allt mögulegt, en það sem ég átti við þegar ég sagði við þig að það hefði verið betra að vera heróínfíkill er að norska ríkið fer skelfilega illa með okkur sem erum háðir efnum. Ég sat inni fyr- ir dópsölu og fleira og það var bara ágætt, fínn matur og góður félagsskapur. Svo greindist ég með MS [heila- og mænusigg] þegar ég var 26 ára og síðan hefur líf mitt eiginlega verið á nið- urleið,“ segir Larsen sem lifir á bótunum frá NAV, tæpum 20.000 norskum krónum á mánuði, jafn- virði um 280.000 íslenskra króna. „Auðvitað sel ég ekki hass,“ seg- ir hann og blikkar kankvíslega yfir sólgleraugun, „ég gæti auðvitað aldrei sagt það í viðtali,“ bætir hann við um leið og hann ræðir við H... sem kemur við hjá okkur um stundarsakir. Skömmu síðar kemur J..., ung kona, og fer ekki í graf- götur með erindið. „Jæja, vantar einhvern hass eða pillur áður en ég fer heim?“ Blaðamaður þakkar pent fyrir sig, þá nýbúinn að eiga gott samtal við A... frá Skien sem getur útvegað ketamín, LSD og eiginlega bara allt. „Hringdu bara í mig,“ segir hann og brosir breitt, huggulegur piltur fæddur árið 2000, en við höldum áfram með Larsen í bili. Meþadón daglega „Hér er litið á mig sem fatlaðan glæpamann og dópista svo ég er nú ekki hátt skrifaður,“ segir hann og glottir við tönn. „En mér er svo sem alveg sama, ég gat hætt á her- óíni, ég fékk bara nóg af því, mér fannst eins og ég væri búinn að borða mig saddan,“ játar fíkillinn ungi sem þó þarf að nota ópíóðalyf- ið meþadón daglega, til að halda sig frá sprautunni, sem hann fær gegnum svokallað LAR eða lege- middelassistert rehabilitering sem kalla mætti á íslensku meðferð með lyfjum. Er hann þá alveg laus við heróínið í dag? „Já, ég er það, ég reyki hass og drekk kannski tvo bjóra á dag en ég er ekki eins mikil fyllibytta og allir hér halda,“ segir Larsen og seyrið glott leikur um varir hans. Talið berst þá að fíkniefnamörk- uðum í Tønsberg og Ósló, er mun- ur þar á? „Ó já,“ segir Larsen og hlær við raust, „ég kalla Tønsberg Snake City, hér eru allir að hugsa um sjálfa sig, Ósló er mun almenn- ari markaður, hér eru líka margir sem ég kalla „jantehuer“ [vitnar þar í norsku janteloven sem segja í stuttu máli að þú eigir ekki að þykjast vera betri en meðbræður þínir], fólk sem heldur að það eigi heiminn af því að það er með meiri pening en þú í veskinu sínu. Þetta eru hreinir fávitar,“ segir Larsen af slíkum þunga að blaðamaður þakkar guði fyrir að vera skít- blankur. Var að selja eitthvað smá En fyrir hvað sat hann þá inni? „Æ, ég var að selja eitthvað smá og fékk 60 daga dóm. Svo kláraði ég hann og fór þá í það sem hér í Noregi kallast „avrusning i be- handling“ [svipað úrræði og Vernd og önnur áfangaheimili á Íslandi], ég var gripinn heima með slatta af hassi og einhverjar 200 töflur af læknadópi, samt hef ég bara setið inni tvisvar, þetta voru stuttir dóm- ar og fangelsin hér eru fín, það eina sem mér líkaði ekki var þegar ég var settur í tveggja manna klefa og við þurftum að sofa í kojum hvor ofan á öðrum, það þoldi ég ekki,“ segir Larsen en hlær þó við upprifjunina. „Froland-fangelsið var til dæmis fínt, það er nýjasta hámarksörygg- isfangelsið í Noregi, þar ertu með eigið klósett og eigin klefa, það vil ég hafa, ég var með eigið sjónvarp og gat unnið mér inn 1.100 krónur [15.400 ISK] á dag með því að vinna í eldhúsinu,“ segir hann minnugur góðra daga í norskum hámarksöryggisfangelsum. Hvað skyldi þá valda því að börn og unglingar í norskum smábæjum, svo sem Tønsberg, byrja að nota fíkniefni? Tilraunagleðin ein? „Það er hvorki hass né mari- júana í sjálfu sér sem gerir það að verkum að unglingar byrja að nota efni,“ svarar Larsen ákveðinn, „það er aðgengið að þessum efnum. Segjum bara að þú seldir mér hass reglulega. Svo einn daginn áttu ekki hass, en þú átt sterkari efni, þú átt heróín, pillur eða amfetamín. Krakkar eru tilraunagjarnir og for- vitnir, þeir vilja prófa, sjá hve langt þeir geta komist, í hve mikla vímu. Áfengi og kannabisefni eru vinsælustu vímuefnin, svo verður maður háður skít á borð við heróín og þá getur verið erfitt að snúa til baka,“ segir maður sem þó náði að hætta sinni heróínneyslu en hefur þó sína djöfla að draga. „Hvernig verð ég sextugur?“ „Ég varð að hætta í heróíni þeg- ar ég fékk MS-sjúkdóminn en ég varð líka bara leiður á því,“ heldur Larsen áfram. „Líttu á mig núna, ég er 33 ára, hvernig verð ég þegar ég verð sextugur? Á ég að sitja alla ævina og segja við sjálfan mig að mig langi til að hætta, mig langi til að gera eitthvað annað við líf mitt en að vera í vímu? Ég get enn þá snúið til baka út úr þessu vímulífi og auðvitað fýsir mig það,“ segir hann. Hvernig skyldi þá standa á því að Ósló, af öllum stöðum, er ein af heróínhöfuðborgum Evrópu? Árið 2018 var Noregur í níunda sæti í „Betra að vera heróínsjúklingur“ Hundalíf Donni lætur fátt raska stóískri ró sinni og er löngu búinn að taka blaðamann frá Mogganum í sátt … eða hvernig ber að túlka þetta augnaráð? Morgunblaðið/Atli Steinn Guðmundsson Kantmaður lífsins Joachim Larsen hefur marga fjöruna sopið þegar um er að tefla flótta frá raunveruleikanum. Þeir Donni hundur halda sig jafnan á rónabekkjunum við stærstu verslunarmiðstöð bæjarins. Nú hafa bæjaryfirvöld tekið af honum rafskutluna eftir að hann hótaði öryggisvörðum. - Joachim Larsen segir Morgunblaðinu af heimi kantmanna lífsins í Noregi - Losaði sig undan oki heróíns - „Litið á mig sem fatlaðan glæpamann og dópista“ - Aðgengið skapi neyslu ungmenna 5 SJÁ SÍÐU 18

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.