Morgunblaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022
ELTAK sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Sonihull he�ir og kemur í veg fyrir gróðurmyndun og vöxt þörunga og lindýra á skipsskrokknum
Byggt er á örhljóðsbylgjutækni sem er laus við örplast, eiturefni og önnur sæfiefni (lífeyðandi efni)
Tæknin truflar ekki önnur tæki eða rafeindabúnað, svo sem sónara og dýptarmæla
Með Sonihull má draga verulega úr notkun málningar sem ætlað er að minnka gróðurmyndun og
inniheldur mikið magn óumhverfisvænna efna
Ávinningur Sonihull kemur strax í ljós á þeim stöðum á skipsskrokknum sem eru útse-r fyrir
gróðurmyndun og þörungavex,, við sjóinntök, stýrisbúnað, sjókæla o.fl.
Minni gróðurmyndun á skrokk skipsins minnkar olíunotkun og viðhaldskostnað
Uppsetning er einföld, ferjöldunum (botnstykkjunum) er komið fyrir innanskips, engin suðuvinna
Lífríkisins og umhverfisins vegna er Sonihull góð +árfes,ng
Sonihull er +árfes,ng sem skilar sér hra' ,l baka
Ný tækni, arðbær
og umhverfisvæn
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Sumarið 1958 fór Eyjólfur Ein-
arsson myndlistarmaður í sinn
fyrsta túr sem háseti á síld-
arveiðiskipinu Birni Jónssyni. Var
hann með kassa-
myndavél með-
ferðis og tók
fjölda mynda af
túrnum. Í tilefni
af ljósmynda-
keppni sjómanna-
dagsblaðs 200
mílna í júní sendi
Eyjólfur mynd í
keppnina og þó
hún hafi ekki
unnið til verð-
launa er hún meðal þeirra sem vöktu
mesta eftirtekt. Myndina tók hann í
júlímánuði þegar Bjarni Jónsson var
á Grímseyjarsundi.
„Ég var þarna ungur á síldarbát
frá Reykjavík,“ segir Eyjólfur er
blaðamaður biður hann um að rifja
upp sögu myndarinnar. „Þetta var
sumarið 1958 og ég varð átján ára
um borð og þetta var skipið Björn
Jónsson, með sautján manna áhöfn.
Sveinn Benediktsson, bróðir Bjarna
Ben, rak þessa útgerð. Þetta var
fyrsti túrinn hjá mér.“
Glannalegir
Eins og sést á myndinni sem Eyj-
ólfur sendi, hallar Björn Jónsson all-
verulega og sjórinn skvettist ræki-
lega yfir rekkverk skipsins og á
borðstokkinn. Spurður hvað sé að
gerast á myndinni, útskýrir hann:
„Þarna er annar af tveimur nótabát-
um. Nótin var geymd í þessum bát-
um, helmingurinn í hvorum bát. Svo
þegar við urðum varir við síldar-
torfur var bátunum fýrað niður,
áhöfnin fór um borð og svo var kast-
að í hring. Þetta voru kallaðar hring-
nætur.“
Hann segir hins vegar ekki hættu-
laust að stunda veiðar með þessum
hætti. „Að vera með svona þunga
báta uppi, þetta var stundum stór-
hættulegt. Þeir voru dálítið glanna-
legir í brælu. Ef það kom hliðaralda
lagðist skipið á hliðina og þá lá skipið
oft bara á bátunum,“ segir Eyjólfur
og hlær. „Þetta voru bara eins og
flotholt. Það mátti ekkert út af bera.
Þetta gæti allt farið á hliðina. Það
gat orðið helvíti hættulegt, eins og
sést á myndinni. Ef báturinn hefði
húkkast upp úr beygjunum sem bát-
urinn hangir í hefði báturinn getað
farið niður og skipið á hvolf.
Ég man þegar við vorum einu
sinni á Siglufirði, vorum hættir og að
undirbúa okkur undir siglingu heim
til Reykjavíkur, þá misstum við ann-
an bátinn niður á ytri höfnina og
skipið lagðist á hliðina. Þá bara fýr-
uðum við niður hinum bátnum til að
ná jafnvægi.“
Þrælvanur
Eyjólfur telur þetta hafa verið
næstsíðasta sumar sem bátar af
þessari tegund voru notaðir. „Flestir
voru komnir með stóran nótabát og
drógu bara á eftir sér. Þetta sumar
voru einn eða tveir komnir með
kraftblökk. Kraftblökkin var að
koma þarna næstu tvö sumur og þá
voru næstum allir komnir með
hana.“
Að þessu umrædda sumri lauk þó
ekki sjómannsferli Eyjólfs en hann
var yfir veturinn í skóla og á sjó á
sumrin. „Ég var skólastrákur og
upp úr tvítugu fór ég í listaakadem-
íuna í Kaupmannahöfn og kom alltaf
heim á sumrin og var þá oft á tog-
urum. Svo þegar ég kom heim eftir
námsdvölina úti var ég næstu tíu ár-
in mikið á sjó hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur, mest á síðutogurum.
Var yfirleitt á veturna, vildi hafa
sumarið til að vinna að myndlistinni.
Ég var þrælvanur sjómaður,“ segir
Eyjólfur að lokum og hlær.
Á síldarveiðum á Grímseyjarsundi
- Eyjólfur Einarsson fór í sinn fyrsta túr sautján ára gamall - Árið 1958 var Björn Jónsson eitt
fárra síldarskipa eftir af sinni tegund - Veiðiaðferðin gat verið „helvíti hættuleg“ að sögn Eyjólfs
Eyjólfur
Einarsson
Morgunblaðið/Hákon
Síldarskip Björn Jónsson var á Grímseyjarsundi þegar Eyjólfur tók mynd
af því þegar skipið leggst á hliðina. Nótabátarnir voru mjög þungir.
Meðalverð á eldislaxi á mörkuðum
nam 78,94 norskum krónuum á kíló,
jafnvirði 1.118 íslenskra króna, að
lokinni viku 29 (18. til 24. júlí) og
hafði verð lækkað um 14,22% frá vik-
unni á undan samkvæmt laxvísitölu
Nasdaq. Gat því fjögurra kílóa lax
selst fyrir tæplega 4.500 krónur.
Þrátt fyrir þessa lækkun er verð
mun hærra en í sömu viku í fyrra
þegar meðalverð var um 65 norskar
krónur. Á fjórum vikum hefur
meðalverð lækkað um 26,61% og
36,51% á undanförnum tólf vikum.
Algengt er að verð á laxi falli yfir
sumartímann en það fer svo að
hækka með haustinu, sérstaklega
þegar fer að nálgast jól og hækkar
fram að páskum. Verðsveiflur hafa
þó verið heldur miklar að undan-
förnu. Í viku 17, dagana 24. til 30.
apríl, náði meðalverð á mörkuðum
hæstu hæðum en þá seldist að meðal-
tali hvert kíló af eldislaxi fyrir um
124 norskar krónur, sem jafngildir
1.756 íslenskum krónum. Þetta þýðir
að fjögurra kílóa lax hafi á þessum
tíma verið seldur fyrir um sjö þús-
und krónur, sem er um 56% hærra
verð en fékkst í viku 29. gso@mbl.is
Meðalverð á laxi sveiflast
Afurðaverð á markaði
3. ágúst,meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 622,19
Þorskur, slægður 360,71
Ýsa, óslægð 558,98
Ýsa, slægð 442,34
Ufsi, óslægður 227,97
Ufsi, slægður 250,66
Gullkarfi 506,22
Blálanga, slægð 240,89
Langa, óslægð 394,97
Langa, slægð 348,97
Keila, óslægð 130,25
Keila, slægð 234,90
Steinbítur, óslægður 193,64
Steinbítur, slægður 352,53
Skötuselur, slægður 972,90
Grálúða, slægð 463,00
Skarkoli, slægður 687,15
Þykkvalúra, slægð 664,67
Langlúra, slægð 253,62
Sandkoli, óslægður 130,71
Sandkoli, slægður 150,00
Blágóma, slægð 1,68
Gulllax 20,00
Hlýri, slægður 433,67
Lúða, slægð 723,87
Makríll 22,00
Undirmálsýsa óslægð 57,50
Undirmálsþorskur óslægður 297,75
Undirmálsþorskur slægður 337,00