Morgunblaðið - 04.08.2022, Side 36

Morgunblaðið - 04.08.2022, Side 36
Marta María Winkel Jónasdóttir mm@mbl.is Hæ hæ. Það hljóta að vera svakalega góð meðmæli með maskaranum sem Dagný Brynjarsdóttir var með á landsleiknum og spilaði í miklum hita í meira en 100 mín- útur. Maskarinn var alveg full- kominn eftir leik. Væri hægt að komast að því hvaða tegund hún notar? Kær kveðja, GH Sæl og blessuð GH. Takk fyrir spurninguna. Ég veit að það voru margir að hugsa um það sama og þú. Það vita það allir sem nota maskara að hann getur auðveldlega klínst út um allt andlit þegar reynir á. Sér- staklega í steikjandi hita og sól. Í slíkum aðstæðum skiptir máli að maskarinn sé vatnsheldur. Maskarinn sem Dagný notaði á leiknum er frá L’Oreal og heitir Paris Double Extension Mascara Black Waterproof. Þessi maskari er frábær ef þú vilt lengja augnhárin. Hann er tvíþættur og því auðvelt að byggja hann upp. Annar endinn er hvítur og með því að bera hann fyrst á augnhárin áður en svarti endinn er borinn á færðu meiri fyllingu. Ef þú vilt til dæm- is hafa kanta augnháranna þykk- ari þá getur þú sett meira af þeim hvíta á þann stað. Þegar þú ert búin/n að finna rétta taktinn tekur þú hinn helminginn og burstar hárin vel og vandlega. Það getur verið ágætt að fara nokkrar umferðir ef þú vilt hafa augnhárin hnausþykk þannig að þau líkist sem mest gervi- augnhárum. Í dag njóta þykk og mikil augnhár vinsælda og gervi- augnhár hafa aldrei verið vinsælli. Það er samt smá maus að líma á sig gerviaugnhár á hverjum degi. Þá er sniðugt að eiga maskara eins og Dagný sem getur leyst vandamálið og þykkt og lengt eig- in augnhár svo um munar. Kær kveðja, Marta María Ef þér liggur eitthvað á hjarta og vilt vita meira þá getur þú far- ið inn á smartland.is og sent spurningu! Maskarinn sem haggað- ist ekki á EM Lesendur Smartlands eru forvitnir um ýmsa hluti og leita gjarnan svara við spurningum sínum. Á dögunum kom spurning frá lesanda sem vildi ólm- ur vita hvaða maskara Dagný Brynjarsdóttir, knatt- spyrnu- og landsliðskona í fótbolta, notaði á EM á dögunum. Í steikjandi hita og sól haggaðist mask- arinn ekki, sem er óvenjulegt. Morgunblaðið/Eggert Góður Dangný notaði L’Oreal Paris Double Extension-maskarann á EM. Morgunblaðið/Eggert Landsliðskona Dagný Brynjarsdóttir notaði vatnsheldan maskara á EM. Maskari sem þolir allt Það skiptir máli að vera með maskara sem lekur ekki í hita leiksins. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022 Sími 555 3100 www.donna.isVefverslun: www.donna.is Honeywell gæða viftur Margar gerðir – Láttu gusta umþig! Laserlyftin Náttúruleg andlitslyfting sem byggir á nýjustu tækn Laserlyfting er öflug antiagingmeð byggð á nýjustu tækni frá einum fremsta framleiðanda heims á svið húðmeðferða. • Þéttir slappa húð á andliti og hálsi • Eykur kollagenframleiðslu g i ferð i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.