Morgunblaðið - 04.08.2022, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022
2 x 250 g Ribeye steikur
400 g franskar kartöflur (Snorri notaði Aviko Super
Crunch)
½ tsk. hvítlauksduft
½ tsk. paprikuduft
250 g brokkolini (fæst í Costco)
60 ml smjör (við stofuhita)
2 lítil eða 1 stórt hvítlauksrif
2 msk. söxuð steinselja
1 stk. sítróna
Salt eftir smekk
Pressið hvítlauksrif og rífið um 2 tsk. af sí-
trónuberki (varist að taka hvíta undirlagið með).
Blandið saman hvítlauk, smjöri, saxaðri steinselju og
sítrónuberki. Smakkið til með salti.
Takið kjötið úr kæli a.m.k. 1 klst. fyrir eldun, en
það mun hjálpa til við jafnari og betri eldun.
Nuddið kjötið með olíu og saltið rausnarlega. Pipr-
ið eftir smekk.
Setjið kartöflurnar í stóra skál, veltið upp úr olíu
og salti og eldið þær svo eftir leiðbeiningum á um-
búðum.
Færið bakaðar kartöflurnar aftur í skálina og veltið
upp úr hvítlauks- og paprikudufti. Smakkið til með
salti ef þarf.
Setjið vatn í pott ásamt svolitlu salti og náið upp
suðu. Lækkið hitann svo það rétt kraumi í vatninu og
sjóðið brokkolini í 3 mín.
Hitið grill að 200°C og grillið steikurnar í 4-5 mín.
á hvorri hlið upp í 54°C kjarnhita fyrir medium-rare
eldun. Best er að nota kjöthitamæli til að tryggja ná-
kvæma eldun. Leyfið kjötinu að hvíla í nokkrar mín.
áður en skorið er í það.
Einfalt en ótrúlega ljúffengt grillað
ribeye með krydduðu frönskum kart-
öflum og heimagerðu hvítlaukssmjöri
Skotheld uppskrift þegar gera á vel við sig og sína með góðri steik. Það er Snorri
Guðmundsson, ljósmyndari og matarbloggari, sem á heiðurinn af þessari uppskrift.
Ljósmynd/Snorri Guðmundsson
Frábært meðlæti
Franskar kartöflur eru
frábært meðlæti og hægt
er að kaupa þær úti í
næstu búð. Trixið er að
ná þeim stökkum og góð-
um og því er mikilvægt að
opna ofninn reglulega og
hleypa gufunni út.
Jarðarberja- og bananasjeik
Uppskrift dugar í um þrjú glös
600 g Häagen-Dazs jarðarberjaís, 1
½ dós
1 banani
330 ml nýmjólk
Súkkulaðisósa
Hnetukurl
Þeyttur rjómi
Jarðarber og bananasneiðar
3 grillprik
Útbúið ávaxtaprikin með því að
raða jarðarberjum og banana-
sneiðum upp á langt grillspjót, rað-
ið efst á spjótið og niður um 1/3
hluta þess, geymið.
Þeytið rjómann og setjið í
sprautupoka eða hafið rjóma tilbú-
inn í rjómasprautu.
Dýfið hverju glasi í súkku-
laðisósu og veltið upp úr hnetukurli,
sprautið einnig smá súkkulaðisósu
inn á hliðar glassins.
Setjið næst ís, mjólk og banana í
blandara og blandið vel.
Skiptið sjeiknum niður í glösin og
toppið með þeyttum rjóma og smá
hnetukurli.
Stingið ávaxtaprikinu í glasið og
njótið!
Heimagerður
sjeik sem
klikkar ekki
Það er fátt meira viðeigandi en góður ís eftir vel
heppnaða máltíð og hér erum við með dýrindis
jarðarberja- og bananasjeik úr smiðju Berglindar
Hreiðarsdóttur á Gotteri.is. Hér ræður einfaldleik-
inn ríkjum en hún segir að það skipti máli að velja
góðan ís því hann sé grunnurinn að öllu saman.
Ekki er verra að vera með svona flott glös enda er
framsetningin hér alveg upp á tíu!
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Klikkar ekki Ís hittir allt-
af í mark, hvort heldur
sem er eftir góða grill-
máltíð eða þegar halda á
notalegt kósíkvöld.