Morgunblaðið - 04.08.2022, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022
24 kjúklingaleggir
Marinering:
5 vorlaukar
1 rauður chili
5 msk. fljótandi hunang
2 msk. sojasósa
2 sm engiferrrót
5 greinar ferskt timian
Saxið vorlaukinn og chili fínt.
Setjið í skál. Blandið hunangi
og sojasósu saman við. Rífið
engifer saman við og tínið lauf-
in af timian-greinunum og setj-
ið saman við. Blandið vel sam-
an.
Marinerið kjúklingaleggina
sem lengst og grillið svo við
miðlungshita í 10 mínútur.
Grillaðir kjúklingavæng-
ir að hætti Jamie Oliver
Það er fátt sem toppar góða grillaða kjúklingavængi og þar leikur
marineringin aðalhlutverkið. Mikilvægt er að hún sé bragðmikil og
sæt, klístrist vel við kjúklinginn og lyfti andanum upp í hæstu hæðir –
eða svo gott sem. Þessi uppskrift kemur úr smiðju Jamie Olivers og
ætti ekki að valda neinum vonbrigðum enda inniheldur hún allskyns
góðgæti sem tryggir hámarks bragðupplifun.
Ljósmynd/Jamie Oliver
Sælgæti Það er fátt sem toppar góða grillaða vængi en hér skiptir marineringin höfuð máli.
Sashi rib-eye steikur
Sérvalin piparostasósa
Grillað rótargrænmeti
Rauð paprika
Saus Guru BBQ-sósa
SPG-krydd
Aðferð:
Kryddið kjötið áður en það fer á grillið
og gætið þess að það sé við stofuhita.
Grillið það á hvorri hlið í nokkrar mín-
útur og lækkið síðan undir. Penslið með
BBQ-sósu. Mikilvægt er að leyfa kjötinu að
hvíla vel að grillun lokinni áður en það er
skorið.
Grillið grænmetið á meðalhita þar til það
er tilbúið. Sveppirnir þurfa lengri tíma en
margur myndi halda í fyrstu og það sakar
ekki að pensla þá með góðri ólífuolíu.
Berið fram með piparostasósu og njótið.
Grillað nauta-
rib-eye með fylltum
sveppum og piparsósu
Sashi-veisla Hér leikur sashi-kjötið aðalhlutverk enda með því betra sem hægt er að fá á grillið.
Við höfum áður fjallað um hinar óborganlegu sashi-steikur en sashi þýðir marmari á japönsku og
vísar til marmarafitusprengingarinnar í steikinni. Slíkar steikur hafa verið fáanlegar hér á landi
– þó aðallega á veitingahúsum þar sem þær hafa notið mikilla vinsælda. Einnig hafa þær verið fá-
anlegar í betri kjötverslunum, sem verður að teljast mikill hvalreki fyrir matgæðinga.
Fyrir þá sem eru ekki með á hreinu af hverju marmarinn er svo mikilvægur þá vísar hann til
þess hvernig fitan liggur í kjötinu en við eldun verður slíkt kjöt einstaklega meyrt og bragðgott.
Einungis lítil prósenta nautgripa skipar þennan flokk og því skilgreinist sashi-kjöt sem mun-
aðarvara ætluð kjötunnendum sem vilja að ekki eingöngu að kjötið sé meyrt heldur gera kröfu
um bragð og áferð. Sashi nýtur mikilla vinsælda um heim allan og þykir á pari við wagu-kjötið
fræga sem hefur svipaða eiginleika.
Marmarinn veldur því að ekki skal meðhöndla sashi-kjöt eins og hefðbundna steik. Forðast
skal að grilla/steikja kjötið of lengi því ekki er æskilegt að bræða fituna burt. Verður steikin þá
bæði seig og bragðlaus. Grillið steikina við miðlungsháan hita, náið góðum hjúp utan um steikina
en steikin ætti aldrei að vera vel elduð heldur miðlungs eða minna. Mikilvægt er svo að láta kjötið
hvíla áður en það er borið fram og þá skal sáldra góðu sjávarsalti yfir kjötið. Borðið sósulaust því
þið viljið njóta bragðsins eins vel og þið getið.
Verðlaunasteikin sem
matgæðingar elska