Morgunblaðið - 04.08.2022, Side 50
ECONOMIC AND
COMMERCIAL ASSISTANT
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu Economic and
Commercial Assistant lausa til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 2022.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu
sendiráðsins: https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Umsóknir skulu sendar í gegnum Electronic
Recruitment Application (ERA).
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual
for the position of Economic and Commercial Assistant.
The closing date for this postion is August 15, 2022.
Application instructions and further information can be
found on the Embassy’s home page:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Applications must be submitted through Electronic
Recruitment Application (ERA).
Umsóknarfrestur er til og með 9. ágúst nk.
Upplýsingar veita Katrín S. Óladóttir,
katrin@hagvangur.is, og Þórdís Sif Arnardóttir,
thordis@hagvangur.is.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og
kynningarbréf. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar
sem trúnaðarmál.
Framkvæmdastjóri
Brákarhlíð óskar eftir að ráða öflugan og framsækinn framkvæmdastjóra
til að stýra daglegum rekstri stofnunarinnar. Mikilvægt er að viðkomandi
sé eða verði búsettur á svæðinu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst.
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Ábyrgð á daglegum rekstri, stjórnun og þjónustu heimilisins í
samvinnu við fagfólk
• Fjárhagsleg greining, eftirlit og samskipti við endurskoðendur
vegna uppgjörs
• Umsjón með gerð fjárhagsáætlana
• Samskipti við ráðuneyti og ýmsa hagsmunaaðila
• Samningagerð, innkaupamál og eignaumsjón
• Skýrslu- og upplýsingagjöf til stjórnar
• Starfsmannamál
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun í viðskiptum eða skyldum greinum
• Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri fyrirtækja eða stofnana
• Sjálfstæði í vinnubrögðum, framsýni og metnaður
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Góð kunnátta á íslensku og ensku
• Þekking og reynsla af stefnumótun
• Gott orðspor
hagvangur.is
Brákarhlíð er hjúkrunar- og dvalarheimili.
Stofnunin er sjálfseignarstofnun. Brákarhlíð
á sér 50 ára sögu. Bakhjarlar heimilisins
eru sveitarfélögin Borgarbyggð, Eyja- og
Miklaholtshreppur og Skorradalur. Einnig hefur
Samband borgfirskra kvenna verið bakhjarl
heimilisins allt frá stofnun og á einn fulltrúa í
stjórn. Starfsmannafjöldi er um 85 manns. Í
Brákarhlíð er unnið eftir Eden hugmyndafræðinni.
Sjá nánar á www.brakarhlid.is.
Sótt er um starfið
á hagvangur.is
Justikal leitar að gæða- og upplýsingaöryggisstjóra til
að leiða öryggis- og gæðamál félagsins. Gæða- og
öryggisstjóri mun einnig sinna hlutverki persónu-
verndarfulltrúa og mun hljóta þjálfun í því eftir sem
þörf er á.
Justikal er nýsköpunarfyrirtæki sem hefur þróað lausn
fyrir stafrænt réttarkerfi. Justikal er í miklum vexti og
erum við að leita að einstaklingi sem vill taka þátt í
vaxtarvegferð félasins sem kann að hafa mikil áhrif hér
á landi og á erlendum mörkuðum. Markmið Justikal
er að gera málsmeðferð fyrir dómstólum hraðari,
gagnsærri og öruggari. Auk þess að lækka máls-
kostnað aðila, gera dómstóla aðgengilegri og störf
lögmanna enn skilvirkari.
Starfið gefur tækifæri á að hafa veruleg áhrif á framtíð
félagsins og markaðarins sem það starfar á. Við
bjóðum vinnu í skemmtilegu starfsumhverfi með
metnaðarfullu og faglega sterku samstarfsfólki.
Um er að ræða 100% starf og mikilvægt er að
umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð og umsjón með rekstri og viðhaldi á
gæðamálum
• Hanna og innleiða upplýsingaöryggisstefnu
félagsins (ISMS)
• Undirbúningur og framkvæmd fyrirhugaðrar
ISO 27001 vottunar
• Aðkoma að innri og ytri úttektum
• Umsjón með gæðahandbók
• Þjálfun starfsmanna í upplýsingaöryggi
• Vinna að áhættumati innan Justikal
• Önnur tilfallandi verkefni á sviði gæðamála og
upplýsingaöryggis
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla og þekking á rekstri gæðakerfa og vottana
æskileg
• Góð þekking og reynsla af ISO 27001
• Reynsla á sviði verkefnastýringar er kostur
• Góð tækniþekking og geta til að setja sig inn í ný
kerfi og umhverfi
• Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
• Fagmennska, frumkvæði og drifkraftur
• Lausnamiðuð hugsun og jákvæðni
• Framúrskarandi samskiptahæfni
• Góð skipulagsfærni og nákvæm vinnubrögð
• Þekking á persónuverndarlöggjöf er kostur
Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rök-
stuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Umsóknum skal skila með tölvupósti á
info@justikal.com eða á justikal.alfred.is.
Umsóknarfrestur er til og með
22. ágúst 2022
Gæða- og upplýsingaöryggisstjóri