Morgunblaðið - 04.08.2022, Side 56
56 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022
Hege Riise hefur verið ráðin þjálfari
norska kvennalandsliðsins í fótbolta.
Hún tekur við af Martin Sjögren sem
var látinn taka pokann sinn eftir
slakt gengi norska liðsins á EM á
Englandi. Riise, sem er 53 ára göm-
ul, er ein besta knattspyrnukonan í
sögu Noregs. Hún lék 188 landsleiki
fyrir Noreg og var valin besti leik-
maður Evrópumótsins 1993 og
heimsmeistaramótsins 1995. Þá
vann hún EM, HM og ólympíugull
með norska liðinu. Riise gerði Lille-
ström að norskum meisturum fjögur
ár í röð frá 2016 til 2019.
Riise tekur við
norska liðinu
AFP
Stjarnan Ada Hegerberg er skær-
asta stjarnan í norska landsliðinu.
Matthildur Óskarsdóttir varð í gær
Evrópumeistari unglinga í klass-
ískri bekkpressu á EM í Búdapest.
Hún lyfti 127,5 kílóum, sem er nýtt
Íslandsmet. Matthildur keppir í -84
kg flokki.
Alexandrea Rán Guðnýjardóttir
varð Evrópumeistari í -63 kg flokki
með lyftu upp á 110 kg, sem er jöfn-
un á hennar eigin Íslandsmeti.
Matthildur var stigahæst allra í
unglingaflokki og Alexandrea í
þriðja sæti á stigum.
María Kristbjörg Lúðvíksdóttir
keppir í dag í opnum flokki.
Íslenskir Evr-
ópumeistarar
Ljósmynd/IPF
Meistari Matthildur Óskarsdóttir
vann gullverðlaun í Búdapest.
EVRÓPUKEPPNI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Breiðablik og Víkingur úr Reykja-
vík mæta afar sterkum andstæð-
ingum í 3. umferð Sambandsdeild-
arinnar í fótbolta í kvöld. Tyrkneska
liðið Istanbúl Basaksehir heimsækir
Kópavogsvöll og Víkingur mætir
Lech Poznan frá Póllandi á Víkings-
velli. Er um fyrri leiki einvíganna að
ræða og eru seinni leikirnir á úti-
völlum eftir viku.
„Tilhlökkunin er mikil og þetta
eru mikilvægir leikir fyrir okkur,“
sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari
Víkings, í samtali við Morgunblaðið
um verkefnið gegn pólska liðinu.
Víkingur hefur verið á góðri sigl-
ingu og spilað vel í Evrópukeppnum
á leiktíðinni til þessa. Arnar er því
brattur fyrir einvígið gegn pólska
liðinu, þrátt fyrir að það sé almennt
talið mun sterkara en Víkingsliðið.
„Við erum fullir sjálfstrausts og
það er góður taktur í okkar leik. Við
gerum okkur hins vegar full-
komlega grein fyrir því að erum
ekki sigurstranglegra liðið í þessu
einvígi. Í fótbolta er hins vegar allt
mögulegt og við þurfum að eiga
toppleik, bæði sem lið og ein-
staklingar. Við þurfum að bera virð-
ingu fyrir andstæðingnum, en samt
á sama tíma vera minnugir þess
hvað við höfum gert í Evrópukeppn-
unum hingað til. Við höfum þrosk-
ast mikið sem lið og ég tel okkur
eiga góða möguleika,“ sagði Arnar.
Víkingur stóð mjög vel í sænska
stórliðinu Malmö í 1. umferð Meist-
aradeildarinnar, en eftir naumt tap
á útivelli og jafntefli á heimavelli
vann Malmö 6:5-sigur. Arnar segir
pólska liðið vera með betri leik-
menn, en Malmö betra lið.
„Mér finnst eins og Lech Poznan
sé með betri einstaklinga, og mögu-
lega betra lið. Ég held samt að
Malmö myndi finna leiðir til að
vinna ef þau myndu mætast. Poznan
virðist vera með betri einstaklinga,
en ekki endilega betra lið en
Malmö,“ sagði hann.
Áttu allir leiki lífs síns
Stjarnan mætti Lech Poznan í
Evrópudeildinni sumarið 2015 og
vann óvæntan 1:0-sigur í einvíginu
eftir heimasigur og markalausan
leik í Póllandi. Ingvar Jónsson,
markvörður Víkings, var í Stjörnu-
liðinu á þeim tíma, eins og miðju-
maðurinn Pablo Punyed.
„Ingvar og Pablo spiluðu í því
einvígi og ég man vel eftir því. Þetta
var gríðarlega ánægjulegt fyrir ís-
lenskan fótbolta á þeim tíma að slá
út svona lið. Það áttu allir leikmenn
Stjörnunnar leiki lífs síns, meðal
annars markvörðurinn minn. Þú
þarft líka heppni til að slá út svona
lið og þetta er árið sem allt gekk
upp hjá Stjörnunni, eins og allt
gekk upp hjá okkur í fyrra. Þú þarft
hæfileika til að slá svona lið út en
smá heppni líka,“ útskýrði Arnar.
Hann staðfesti svo að varnarmað-
urinn Halldór Smári Sigurðsson
yrði frá keppni vegna meiðsla í sex
til sjö vikur og að danski framherj-
inn Nikolaj Hansen væri að glíma
við meiðsli og yrði ekki klár í leikinn
í kvöld.
Lech Poznan varð pólskur meist-
ari á síðustu leiktíð. Liðið endaði
fimm stigum á undan Raków í öðru
sæti. Pólska liðið lék í riðlakeppni
Evrópudeildarinnar tímabilið 2020/
21.
Í hæsta gæðaflokki í Evrópu
Stemningin er ekki ósvipuð í her-
búðum Breiðabliks. Tyrkneska liðið
er fyrirfram talið töluvert sterkara,
en Blikar eru tilbúnir á sínum
heimavelli, þar sem gengið hefur
verið afar gott.
„Það er gífurleg tilhlökkun. Þetta
er stórt tækifæri fyrir liðið til að
máta sig við lið í hæsta gæðaflokki í
evrópskri knattspyrnu. Þetta Ist-
anbúl-lið er gríðarlega öflugt og vel
mannað. Þetta verður alvöru próf,
en á sama tíma mjög spennandi,“
sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson,
þjálfari Breiðabliks, á blaðamanna-
fundi í gær.
Hann segir liðið töluvert sterkara
en önnur lið sem Breiðablik hefur
mætt undir hans stjórn undanfarið
ár.
„Þetta er margfalt sterkara lið en
þau sem við höfum spilað við hingað
til, bæði í ár og í fyrra. Árangurinn í
Evrópukeppni undanfarin ár segir
sína sögu. Þetta lið hefur verið í
riðlakeppni Meistaradeildarinnar og
hefur styrkt sig verulega fyrir þetta
tímabil. Þeir eru með marga öfluga
leikmenn sem hafa spilað með góð-
um liðum. Á pappír er þetta öflugt
lið og alls ekki einhverjir latir lúx-
usleikmenn. Þetta eru harð-
duglegir og skipulagðir gæjar sem
eru öflugir í vörn og svo mikil ein-
staklingsgæði,“ sagði Óskar.
Umhverfi sem þeir eru óvanir
Hann segir Breiðablik þó eiga
möguleika, sérstaklega á heima-
velli, ef allt gengur upp.
„Þeir eiga eftir að koma hingað
og hér líður okkur vel. Þeir eru að
koma í umhverfi sem þeir eru ekki
vanir. Þeir eru að koma á lítinn völl
með gervigrasi og öðruvísi að-
stæður. Vonandi verður veðrið ekki
upp á sitt allra besta. Við þurfum
að ná að spila á okkar styrkleikum
og ná okkar allra besta leik. Við
verðum að vera með kassann úti og
pressan þarf að vera frábær. Við
þurfum að nýta okkar færi og ekk-
ert nema okkar besti leikur í vörn
og sókn dugar,“ sagði Óskar.
Deildin í Tyrklandi byrjar um
helgina, á meðan deildin hér heima
er í fullum gangi og Blikar hafa
spilað þétt. Óskar segir það gæti
mögulega hjálpað íslenska liðinu.
„Það hjálpar auðvitað eitthvað.
Þeir eru kannski ekki í sínu allra
besta formi á meðan við erum að
spila á þriggja daga fresti. Þeir
byrja samt á sunnudaginn og eru á
lokametrunum í sínum undirbún-
ingi. Það er eflaust ágætisbragur á
þeim en það vinnur ekki á móti
okkur að okkur hefur gengið ágæt-
lega og það er sjálfstraust í okkar
hópi,“ sagði Óskar Hrafn.
Basaksehir hafnaði í fjórða sæti í
sterkri tyrkneskri úrvalsdeild á
síðustu leiktíð. Liðið lék í riðla-
keppni Meistaradeildarinnar tíma-
bilið 2020/21 og fór í 16-liða úrslit
Evrópudeildarinnar tímabilið á
undan.
Þurfa að eiga sína bestu leiki
- Víkingur og Breiðablik leika við gríðarlega sterk lið í Sambandsdeildinni
- Þjálfararnir brattir fyrir heimaleikina - Langsterkasti andstæðingur Blika
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Víkingur Pablo Punyed, miðjumaður Víkings, var leikmaður Stjörnunnar er liðið sló Lech Poznan úr leik.
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Mark Ísak Snær Þorvaldsson fagnar marki gegn UE Santa Coloma frá
Andorra í fyrstu umferð Sambandsdeildarinnar í síðasta mánuði.
Besta deild karla
Fram – Stjarnan....................................... 2:2
Valur – FH ................................................ 2:0
Staðan:
Breiðablik 15 12 2 1 41:15 38
Víkingur R. 14 9 2 3 33:20 29
KA 15 8 3 4 28:18 27
Stjarnan 15 6 7 2 28:21 25
Valur 15 7 3 5 27:24 24
KR 15 5 6 4 21:23 21
Keflavík 15 5 3 7 27:28 18
Fram 15 4 6 5 28:32 18
ÍBV 15 2 6 7 21:29 12
FH 15 2 5 8 16:25 11
Leiknir R. 14 2 4 8 12:26 10
ÍA 15 1 5 9 14:35 8
Meistaradeild karla
3. umferð, fyrri leikir:
Bodö/Glimt – Zalgiris............................. 5:0
- Alfons Sampsted lék allan leikinn hjá
Bodö/Glimt
Qarabag – Ferencváros ........................... 1:1
Maccabi Haifa – Appollon Limassol ....... 4:0
Dinamo Kíev – Stum Graz....................... 1:0
Rauða stjarnan – Pyunik Yerevan.......... 5:0
Evrópudeildin
3. umferð, fyrri leikir:
Riga – Gil Vicente..................................... 1:1
Viborg – B36 Þórshöfn............................. 3:0
Wolfsberger – Gzira United.................... 0:0
Dunajská Streda – FCSB........................ 0:1
Noregur
Kristiansund – Tromsö ........................... 1:1
- Brynjólfur Andersen Willumsson lék
fyrri hálfleikinn hjá Kristiansund.
Staða efstu liðan:
Molde 17 12 3 2 35:15 39
Lillestrøm 16 11 3 2 31:14 36
Bodø/Glimt 16 9 4 3 37:19 31
Rosenborg 16 7 7 2 29:19 28
Viking 17 8 4 5 30:23 28
Vålerenga 16 7 2 7 25:26 23
Strømsgodset 16 6 4 6 21:25 22
Arna-Björnar – Brann ............................ 0:6
- Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Svava
Rós Guðmundsdóttir komu báðar inn á hjá
Brann á 55. mínútu.
Staðan:
Brann 15 13 1 1 45:9 40
Rosenborg 15 11 2 2 32:10 35
Vålerenga 14 10 2 2 41:8 32
Stabæk 15 7 2 6 20:19 23
Lyn 14 6 4 4 19:18 22
Lilleström 14 5 3 6 15:15 18
Kolbotn 14 5 2 7 19:18 17
Arna-Bjørnar 15 3 1 11 14:49 10
Avaldsnes 14 2 1 11 11:43 7
Røa 14 0 2 12 7:34 2
Svíþjóð
B-deild:
Brommapojkarna – Örebro ................... 2:1
- Axel Óskar Andrésson lék allan leikinn
með Örebro og skoraði. Valgeir Valgeirs-
son kom inn á hjá liðinu á 84. mínútu.
Trelleborg – Halmstad ........................... 0:4
- Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með
Trelleborg.
>;(//24)3;(
HM U18 kvenna
Milliriðill 1:
Ísland – Íran ......................................... 28:17
Norður Makedónía – Svíþjóð .............. 20:20
_ Ísland 4, Norður-Makedónía 3, Svíþjóð 1,
Íran 0.
E(;R&:=/D
EM U18 karla
B-deild í Rúmeníu, A-riðill:
Ísland – Úkraína................................... 88:52
Írland – Danmörk................................. 59:86
_ Danmörk 8, Ísland 7, Úkraína 6, Eistland
5, Írland 4.
_ Ísland Mætir Bosníu í átta liða úrslitum á
morgun.
EM U18 kvenna
B-deild í Búlgaríu, C-riðill:
Ísland – Noregur ..........................(frl.) 51:46
Holland – Slóvakía................................ 54:58
_ Slóvakía 6, Holland 5, Ísland 4, Noregur
3.
_ Ísland leikur um 9.-16. sæti.
>73G,&:=/D
Knattspyrna
Besta deild kvenna:
Selfoss: Selfoss – ÍBV ...........................17.30
Hlíðarendi: Valur – Þór/KA ................ 17.30
Meistaravellir: KR – Stjarnan ............ 19.15
Mosfellsbær: Afturelding – Þróttur R. ... 20
Lengjudeild karla:
Vogar: Þróttur V. – Selfoss ................. 19.15
Lengjudeild kvenna:
Kaplakriki FH – Fjölnir ...................... 18.30
3. deild karla:
Dalvík: Dalvík/Reynir – Kári ................... 18
Sambandsdeild karla:
Kópavogsv.: Breiðablik – Basaksehir .18.45
Víkingsv.: Víkingur R. – Lech Poznan 18.45
Í KVÖLD!