Morgunblaðið - 04.08.2022, Side 61

Morgunblaðið - 04.08.2022, Side 61
MENNING 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022 6.-27. ágúst Opið virka daga 10–18, laugardaga 12–16 Lokað á sunnudögum MARGRÉT RUT EDDUDÓTTIR Sýning í Gallerí Fold ÚR MYRKRI Sýningaropnun laugardaginn 6. ágúst kl. 13 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Stjórnendur tón- leikastaðar í Bern stöðvuðu nýverið tónleika sveitarinnar Lauwarm vegna kvartana tón- leikagesta um menningarnám hennar. Í frétt SVT um málið kemur fram að hljómsveitarmeðlimir, sem allir eru hvítir á hörund, skarti dreadlocks- hágreiðslu og leiki reggítónlist þrátt fyrir að enginn þeirra eigi rætur að rekja til Jamaíka eða hafi upplifað nýlendustefnu eða kyn- þáttafordóma á eigin skinni. Sveitin sökuð um menningarnám Hár Dreadlocks eða dreddar. Snertipunktur nefnist sýning sem Hlökk Þrastardóttir og Silja Jóns- dóttir opna í Kling & Bang í dag kl. 17. „Hlökk og Silja hafa haldið úti vinnustofu í skrifstofurými Kling & Bang yfir sumarið. Á sýningunni sýna þær tilraunir af ýmsum toga sem þær hafa unnið bæði saman og hvor í sínu lagi,“ segir í tilkynningu. „Við göngum á móti hvor annarri og mætumst í miðjunni. Fingurnir snertast þannig að fingurbroddarnir verða næstum því flatir. Við höfum einhverja óljósa hugmynd um að ef maður nuddar tveimur greinum saman að þá gæti blossað upp eldur. Tssssss. En við vöktum rýmið með vökulu auga. Förum varlega með stækkunarglerið og beinum því ekki að hverju sem er,“ segir í lýsingu á sýningunni. Sýningin stendur til og með sunnudags. Í dag milli kl. 17.45 og 18 verður boðið upp á gjörning. Snertipunktur í Kling & Bang Gler Fara þarf varlega með stækkunargler. Bandaríska tónlistarkonan Beyoncé hefur uppfært nýjustu plötu sín, Renaissance, aðeins fimm dögum eftir að hún sendi plötuna frá sér. Samkvæmt frétt BBC gerir hún þetta annars vegar vegna gagnrýni aðdáenda á textann í laginu „Heated“ og hins vegar vegna gagnrýni frá poppstjörninni Kelis, sem var ósátt við að Beyoncé hefði ekki beðið um leyfi fyrir því að nýta áslátt úr laginu „Milkshake“ í laginu „Energy“ á plötunni. Textagagnrýnin snýst um það að aðdáendum þótti óviðeigandi að Beyoncé notaði orðið „spazzin’“ sem er slangur sem notað er um þá sem þjást af krampalömun. Orðinu var skipt út fyrir „blastin’“. Beyoncé bregst við gagnrýninni Snögg Beyoncé á rauða dreglinum 2019. Olena Zelenska, for- setafrú Úkraínu, prýðir forsíðu Vogue en hún veitti tímaritinu viðtal sem Rachel Donadio skrifar. Forsíðumyndina sem og myndirnar sem fylgja viðtalinu tók hinn heimskunni ljósmyndari Annie Leibovitz, en hún gerði sér sérstaka ferð til Kænugarðs vegna þessa. The Art Newspaper greinir frá því að skiptar skoðanir séu á viðtalinu og ekki síst myndbirting- unni. Þannig finnst sum- um ósmekklegt að birta glæsilegar myndir af for- setafrúnni meðan átökin geisa í landinu vegna inn- rásar Rússa fyrir rúmum fimm mánuðum, meðan aðrir benda á mikilvægi þess að forsetahjónin nýti fjölmiðla sem best til að minna á átökin í von um að lausn í deilunni finnist sem fyrst. Olena Zelenska á forsíðu Vogue Forsetahjón Olena Zelenska og Volodymyr Zelenskíj. Dansarar í danshópnum Black Grace á lokaæfingu fyrir frumsýningu í Joyce-leikhúsinu í New York fyrr í vikunni. Black Grace, sem Neil Ieremia stofnaði 1995, er einn fremsti samtímadanshópur Nýja-Sjálands. Sýningar hópsins þykja mjög líkamlegar, kröftugar og fallegar ásamt því að byggja á söguhefð frumbyggja. AFP/Angela Weiss Dansinn dunar hjá Black Grace hafi því ekki talið það svara kostnaði að klára myndina og markaðssetja, en með því að hætta alfarið við hana geti þeir nýtt sér ákveðinn skatta- afslátt sem annars ekki fengist. Haft er eftir ónafngreindum heimildar- manni að framleiðendur hafi óttast að hræðileg kvikmynd um Leður- blökustúlkuna gæti valdið óaftur- kræfum skaða á ímynd fyrirtæk- isins. Ákvörðunin þýðir að Batgirl verður dýrasta mynd kvikmynda- sögunnar sem aldrei fæst sýnd. Stjórnendur hjá Warner Bros Discovery hafa tekið þá ákvörðun að frumsýna aldrei kvikmyndina Batgirl þrátt fyrir að tökum hafi að fullu verið lokið og myndin verið komin í eftirvinnslu. Þessu greinir New York Post frá. Í frétt The Guardian kemur fram að myndin hafi átt að marka endur- komu Michaels Keaton í hlutverk Leðurblökumannsins, en með hlut- verk Leðurblökustúlkunnar fór Les- lie Grace meðan Brendan Fraser lék illmennið Eldflugu eða Firefly. Leikstjórar voru Adil El Arbi og Bilall Fallah, sem einnig leikstýrðu sjónvarpsþáttaseríunni Ms. Marvel. Fram kemur hjá The Hollywood Reporter að kostnaður við gerð myndarinnar hafi hækkað upp úr öllu valdi vegna þess að hún var tek- in upp í miðjum heimsfaraldri. Þannig herma heimildir að kostn- aðurinn við gerð myndarinnar hafi nú þegar verið kominn upp í 90-100 milljónir dala. Í frétt New York Post kemur fram að aukinn kostnaður hafi ekki ráðið öllu heldur hafi myndin hreinlega ekki fallið nógu vel að smekk þeirra áhorfenda sem hún var prófuð á. Framleiðendur Batgirl verður aldrei sýnd Aflýst Leslie Grace í hlutverki sínu sem Leðurblökustúlkan eða Batgirl. - Búið var að taka kvikmyndina upp - Kostaði um 90-100 milljónir dala

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.