Morgunblaðið - 11.10.2022, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 1. O K T Ó B E R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 238. tölublað . 110. árgangur .
Á FUND FLÓTTA-
MANNANEFNDAR
EVRÓPU NORRÆN HÁTÍÐ HEFST
LÁN AÐ GETA
EINBEITT SÉR
AÐ EIGIN TÓNLIST
HALDIN FRÁ 1888 28 GUMMI JÓNS 60 ÁRA 24BIRGIR ÞÓRARINS 10
Breiðablik er Íslandsmeistari karla í
knattspyrnu, í annað sinn í sögu fé-
lagsins, eftir að Stjarnan gerði sér
lítið fyrir og lagði Víking úr Reykja-
vík að velli í efri hluta Bestu deildar-
innar á Samsung-vellinum í Garða-
bæ í gær.
Leik Stjörnunnar og Víkings lauk
með 2:1-sigri Garðbæinga en Vík-
ingar eru með 46 stig í öðru sæti
deildarinnar, líkt og KA, og geta
ekki náð Breiðabliki að stigum þegar
þrjár umferðir eru eftir af deildar-
keppninni. Breiðablik er með 57 stig
í efsta sætinu »26
Breiðablik Íslandsmeistari
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Meistarar Leikmenn Breiðabliks fagna titlinum á Kópavogsvelli í gær.
Rússar hefndu í gær fyrir árásina á brúna yfir
Kertsj-sundið með því að skjóta rúmlega 80 eld-
flaugum á borgaraleg skotmörk vítt og breitt um
Úkraínu. Að minnsta kosti 11 fórust í árásunum
irnar í gær og sagði þær til marks um hina „al-
gjöru grimmd“ Pútíns í Úkraínustríðinu. Hét
Biden auknum stuðningi við Úkraínu vegna
árásanna. »13
og 84 særðust, en eldflaugunum var beint að raf-
orkustöðvum, auk þess sem eldflaug lenti í ná-
grenni við leikvöll í Kænugarði.
Joe Biden Bandaríkjaforseti fordæmdi árás-
AFP/Almannavarnir Úkraínu
Fordæmir „algjöra grimmd“ Pútíns
_ Þing Hringborðs norðurslóða,
Arctic Circle, verður haldið í Hörpu
og á Reykjavík Edition-hótelinu frá
fimmtudegi og fram á sunnudag.
Þingið verður enn fjölmennara en í
fyrra og þar verða yfir 200 mál-
stofur með um 600 ræðumönnum.
Áætlað er að yfir 2.000 manns frá
nærri 70 löndum taki þátt í þinginu.
„Mér sýnist allt stefna í að þing
Hringborðs norðurslóða verði öfl-
ugra en nokkru sinni fyrr, þrátt
fyrir ýmsar erfiðar aðstæður,“ seg-
ir Ólafur Ragnar Grímsson, for-
svarsmaður Hringborðs norður-
slóða. Af nafntoguðum gestum má
nefna Hákon, krónprins Noregs, og
Mary Simon, landstjóra Kanada í
umboði Bretakonungs, en hún er
fyrsti frumbygginn sem gegnir
embætti landstjóra Kanada. »6
Þungavigtarfólk
á Arctic Circle í ár
Morgunblaðið/Eggert
Þing Ólafur Ragnar á Arctic Circle í Hörpu
í fyrra. Þingið verður sett á fimmtudag.
_ Hugmyndir
innviðaráðherra
um að innheimta
veggjöld í jarð-
göngum til þess
að fjármagna
samgöngufram-
kvæmdir hljóma
ekki vel. Álögur
á eldsneyti eru
þegar háar og
allt þar fram yfir
er tvöföld skattlagning, segir Jón
Björn Hákonarson, bæjarstjóri í
Fjarðabyggð. Fyrrgreindar hug-
myndir vill hann að verði endur-
skoðaðar. Einnig að tekjuöflun í
samgöngumálum verði stokkuð upp
frá grunni. »11
Jarðgangagjaldið
hljómar illa
Jón Björn
Hákonarson
Ríkissaksóknari
hefur fellt úr gildi
ákvörðun héraðs-
saksóknara um að
vísa frá kæru
þrotabús heild-
verslunarinnar
Eggerts Kristjáns-
sonar ehf. á hendur
Skúla Gunnari Sig-
fússyni, fyrrverandi eiganda fyrir-
tækisins. Það var tekið til gjald-
þrotaskipta árið 2016 og hafði áður
fengið rift fasteignaviðskiptum milli
heildsölunnar og annarra félaga í
eigu Skúla. Komst Hæstiréttur að
því í dómi að um gjafagjörning hefði
verið að ræða. Nú hefur þrotabúið
fengið því framgengt að möguleg
refsiverð háttsemi í tengslum við
framkvæmd gjafagjörningsins verði
rannsökuð, þvert á niðurstöðu hér-
aðssaksóknara, sem taldi ekki tilefni
til þess að aðhafast í málinu. »12
Hyggjast rannsaka
gjafagjörninginn
Skúli Gunnar
Sigfússon
„Það eru seglar í okkar lagaum-
hverfi sem gera það að verkum að
vandinn er eins mikill og raun ber
vitni hér, hlutfallslega sá langmesti
ef horft er til nágrannaþjóða okkar í
Evrópu,“ sagði Jón Gunnarsson,
dómsmálaráðherra, í svari við óund-
irbúinni fyrirspurn um húsnæðis-
skort og vöntun á aðstöðu fyrir hæl-
isleitendur hér á landi.
Enn fremur kom fram í máli ráð-
herrans að ekki væri ágreiningur
innan þingflokks Sjálfstæðisflokks-
ins um efni þeirra frumvarpa til
breytinga á útlendingalögum sem
lögð hafa verið fram ítrekað, undan-
farin þing.
Jón boðaði að hann myndi gera
ríkisstjórninni grein fyrir tillögum
um hvernig ganga megi enn lengra
við að„sníða af vankanta á útlend-
ingalögum“. Í gær mælti hann fyrir
frumvarpi til laga um landamæri en
í samtali við Morgunblaðið segir
Jón að líða fari að því að frumvarp
hans um breytingar á útlendinga-
lögum verði lagt fram. „Það er verið
að vinna að lokafrágangi á því. Við
reiknum með að leggja fram þing-
málið á þessu tímabili,“ segir hann
en frumvarpið var fyrst boðað á
þingmálaskrá í september.
Í umræðum um frumvarp til laga
um landamæri sagði Jón Gunnars-
son að skráningarkerfið, sem lagt
er til að stuðst verði við í frumvarp-
inu, fæli í sér strangara eftirlit með
för fólks. „Það eru verulegar
áhyggjur af því innan Schengen-
svæðisins að það sé verið að mis-
nota flóttamannakerfin – og það eru
miklu meira en áhyggjur – það er
fullkomin vitneskja um það. Lög-
regluyfirvöld hafa það sérstaklega
til eftirlits og rannsóknar,“ sagði
hann.
„Í dag er fólk að koma í hópum
frá Venesúela, það koma hlutfalls-
lega margir til Íslands; þeir sækja
allir um vernd,“ sagði Jón einnig.
Hann benti á að vernd þeirra á Ís-
landi veitti Venesúelamönnum meiri
réttindi en hjá nokkurri annarri
Evrópuþjóð.
Ráðherra vill ganga lengra
- Ráðherra boðar breytingar á útlendingalögum og leggur til hert eftirlit
MBrýnt að lög um landamæri »2