Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2022 „BÚÚ-HÚ-HÚ, BÚÚ-HÚ, BÚÚ-HÚ, BÚÚ-HÚ-HÚ. NÆSTI!“ „HÉR ER BOLLI. LÁTTU MIG HAFA BENSÍN FYRIR HUNDRAÐKALL.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fatta það að þú ert kannski ekki í jafngóðu formi og þú hélst! Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann UPPSKRIFT MÍN AÐ HAMINGJUNNI… EITT KNÚS FRÁ BANGSA EFTIR ÞÖRFUM ÞETTA ER STÓLINN MINN, VOLAÐA, LITLA BLEYÐAN ÞÍN! ÞETTA ER VINUR MINN SEM ÞÚ ERT AÐ TALA UM! ENGINN KALLAR HANN LITLA, VOLAÐA, HUGLAUSA BLEYÐU! „HUG- LAUSA?“ FYRIRGEFÐU, ÉG BARA MISSTI ÞETTA ÚT ÚR MÉR! KVARTANADEI LD hún hefur dugað mér sem áhugamál. En ef ég ætti að nefna eitthvað ann- að þá eru það kvikmyndir, ég hef alltaf verið mikill bíófíkill.“ Fram undan hjá Guðmundi eru af- mælistónleikar sem verða haldnir 22. október í Háskólabíói. „Svo er ég að vinna, eins og við köllum það í tónlistarbransanum, heiðarlega vinnu, á tvo unga syni og er á fullu í tónlistinni líka. Það er því nóg að gera í mínu lífi.“ Fjölskylda Synir Guðmundar með fyrrver- andi sambýliskonu sinni, Rannveigu Egilsdóttur, f. 7.11. 1980, ferðahönn- uði eru Sigurjón Thorberg, f. 5.8. 2010, og Egill Heiðar, f. 25.4. 2017. Sonur Rannveigar og stjúpsonur Guðmundar er Bjarnfinnur Sverris- son, f. 20.8. 2004. Þeir eru búsettir á Álftanesi. Stúpsonur Guðmundar er einnig Daníel Takefusa Þórisson, f. 31.1. 1990, leikari og verkfræðingur, búsettur í Reykjavík. Maki hans er Ásdís Eva Ólafsdóttir framkvæmda- stjóri. Móðir Daníels er Dóra Take- fusa, f. 8.1. 1972, hótelstýra, fyrrver- andi sambýliskona Guðmundar. Systkini Guðmundar eru Kristín Jónsdóttir, f. 22.1. 1964, tanntæknir, búsett í Reykjavík, og Ægir Thor- berg Jónsson, f. 27.6. 1980, flugvirki, verkfræðingur og framkvæmda- stjóri, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Guðmundar voru hjón- in Jón Helgason, f. 12.12. 1932, d. 1.12. 2019, vélstjóri á Skagaströnd og í Reykjavík, og Aðalheiður Mar- grét Guðmundsdóttir, f. 11.5. 1942, d. 24.9. 2011, húsfreyja og verka- kona á Skagaströnd og síðar lækna- ritari í Reykjavík. Guðmundur Jónsson Margrét Guðbrandsdóttir húsfreyja í Reykjavík Klemens Klemensson sjómaður í Reykjavík Aðalheiður Klemensdóttir húsfreyja og saumakona í Reykjavík Guðmundur Kristján Kristjánsson vélstjóri í Hafnarfirði og Reykjavík Aðalheiður Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja og verkakona á Skagaströnd, síðar læknaritari í Reykjavík Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík Kristján Jónasson vélstjóri í Hafnarfirði og Reykjavík Sveinbjörg Pétursdóttir húsfreyja á Búðum og í Gíslabæ Jón Helgason sjómaður á Búðum á Snæfellsnesi og í Gíslabæ á Hellnum Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Akureyri, Siglufirði, í Kópavogi og Reykjavík Helgi Thorberg Kristjánsson vélstjóri á Akureyri, Siglufirði, í Kópavogi og Reykjavík Helga Ingibjörg Helgadóttir húsfreyja í Gíslabæ Kristján Kristjánsson bátasmiður í Gíslabæ á Hellnum og í Ólafsvík Ætt Guðmundar Jónssonar Jón Thorberg Helgason vélstjóri á Skagaströnd og í Reykjavík Baldur frændi minn Hafstað sendi mér góðan póst á föstu- dag: „Reynir Jónasson organisti og landsfrægur harmónikuleikari varð níræður þann 26. september síðastliðinn. Stórveisla var haldin í tilefni dagsins og margir listamenn stigu upp á svið og heiðruðu öld- unginn í bundnu og óbundnu máli en þó umfram allt með söng og hljóðfæraslætti. Frændi Reynis að norðan, Jónas Friðriksson, sendi honum eftirfar- andi kveðju (Þess má geta til skýr- ingar að Reynir mætir í sundlaug- arnar alla morgna um leið og opnað er og syndir sína fimm hundruð metra; en áratugir eru síðan hann setti tappa í flösku): Margir hljóta heiðarvegi og sanda, hvað sem menn í lífi sínu kjósa. Þú liðkar bæði líkama og anda en liðnir eru dagar víns og rósa. Lævís reyndist lögg í þínu glasi, listamaður tíðum þar við undi. Nú ertu líkt og unglingur í fasi allsgáður og nýkominn úr sundi. Af ævistarfi átt að vera hreykinn, þér unnt var bæði: að flytja tón’ og skapa. Nú ertu nokkuð langt kominn með leikinn sem leikum við og allir munu tapa. Í annarri stöku sem Reynir fékk senda er vísað til þess að hann ólst upp á Helgastöðum í Reykjadal í Þingeyjarsýslu og fór mjög ungur að spila við guðsþjónustur í kirkj- unni þar; einnig er lauslega minnst á eiginkonu Reynis, Agnesi Löve píanóleikara: Í lágri kirkju lék hann þá og líka á böllum nyrðra. Hann leikur enn, svo ungur á brá, á Agnesi hér syðra.“ Ég tek undir árnaðaróskir til Reynis og þakka góð kynni. Pétur Stefánsson gaukaði að mér þessari vísu þar sem í vændum væri norðanhvellur með hríð um mest- allt land: Öldur rjúka, foldin frýs fjötruð norðan gnýnum. Vefur landið veðradís vetrarörmum sínum. Jóhann S. Hannesson orti og kall- aði „Nýsikennslu“: Ymur mér í eyrum haust. Öspin stolin hvísli sínu flytur enn þá auga mínu erindi sitt blaðalaust. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Organisti og harmóniku- leikari níræður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.