Morgunblaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 29
Extreme Chill-hátíðin fór fram í 13. skipti í miðborginni um helgina. Tónleikar og viðburðir fóru fram víða og innlendir og erlendir tón- listarmenn komu fram. Hátíðin hef- ur með hverju árinu aukist að um- fangi og metnaði. Ljósmyndir/Ómar Sverrisson Snúrufjöld Þær eru ófáar snúrurnar sem þarf að tengja og takkarnir sem þarf að snúa á hátíð á borð við Extreme Chill. Hér sjást Stereo Hypnosis framkalla sinn seið í Fríkirkjunni á sunnudag með Err- aldo Berrnochi og Christopher Chapl- in en sá síðarnefndi er yngsti sonur Charlies Chaplins. Vel heppnuð tilrauna- starfsemi Kenískur KMRU á Húrra á föstu- dag, rísandi stjarna í tilrauna- kenndri raftónlist þar sem vett- vangsupptökum og spuna er blandað saman. Sveimur Austur- ríkismaðurinn Fennesz hefur um áratugaskeið verið eitt helsta nafnið í ambient- geiranum og hefur áður komið til landsins. Hann hélt vel heppnaða tónleika á Húrra á laugardag. MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ Indie wire SÁLFRÆÐITRYLLIR SEM SÍFELLT KEMUR Á ÓVART SÝND Í 3D Í SAMBÍÓUNUM EGILSHÖLL SÝND Í TAKMARKAÐAN TÍMA Telegraph CHRISTIAN BALE MARGOT ROBBIE JOHN DAVID WASHINGTON CHRIS ROCK ANYA TAYLOR-JOY ZOE SALDAÑA MIKE MYERS MICHAEL SHANNON TIMOTHY OLYPHANT ANDREA RISEBOROUGH TAYLOR SWIFT MATTHIAS SCHOENAERTS ALESSANDRO NIVOLA AND ROBERT DE NIRO WITH RAMI MALEK S inn er siður í hverju landi og sennilega eiga margir erfitt með að skilja hugs- anagang og ýmsar aðfarir fólks á fjarlægum stöðum, hvað þá þegar viðteknir hættir, sem orka tvímælis í hinum vestræna heimi, svo vægt sé til orða tekið, eru við- hafðir í nafni trúarbragða í næsta nágrenni. Danski rithöfundurinn Lone Theils býr til slíkt sögusvið og hlífir engum með þeim afleiðingum að glæpasagan Nornadreng- urinn ristir inn að beini. Fræðimenn á misjöfum sviðum eiga það til að stíga á tær í rannsóknum sínum og það getur verið varhugavert. Sérfræðingur í hryðjuverkasamtökunum Boko Haram þarf að vera var um sig. Ekki síst ef hann er frá Nígeríu með aðsetur í Lundúnum, beinir at- hugunum sínum að tengslunum milli Afríku og Englands og er fús til að ræða við blaðamann um mikil- vægar uppgötvanir sínar. Þetta er útgangspunktur spennusögunnar. Það þarf ofurkonu eins og Noru Sand til þess að komast að hinu sanna í málum, þar sem öllum brögðum er beitt til að viðhalda þöggun og óbreyttu ástandi. Konu sem er með bein í nefinu og heldur ótrauð áfram þótt hún þurfi að sinna öðrum verkefnum sem þola enga bið. Danski blaðamaðurinn veit hvað hann syngur, jafnvel í mikilli tímapressu. Forræðisdeilur eru ekki nýjar af nálinni, en erfitt er að skilja hvern- ig fólk sem hefur búið saman í sátt og samlyndi umturnast þegar leiðir skilur. Gjarnan er skipting fast- eigna, sparnaðar og lífeyris helsta deilumálið, en forræði barna vegur líka oft þungt og þess eru dæmi að einskis sé svifist til að fá sitt, með réttu eða röngu. Sagan talar sínu máli. Nora stendur sjálf á tímamót- um og á erfitt með að taka ákvörð- un, en annað og alvarlegra mál er í algjörum forgangi hjá henni, mál sem þolir enga bið og hún er tilbúin að hætta lífi og limum til að komast til botns í. Lone Theils spinnur glæpasögu út frá eldfimu efni, býr til spennu og kemst að niðurstöðu. Áhugaverð saga með tilliti til raunheima, en rýni finnst sem fyrr að barnaníð bæti ekki skáldsögur. Áhugaverð „Lone Theils spinnur glæpasögu út frá eldfimu efni, býr til spennu og kemst að niðurstöðu,“ segir um sögu danska höfundarins. Glæpir í skjóli trúarbragða Glæpasaga Nornadrengurinn bbbmn Eftir Lone Theils. Friðrika Benónýsdóttir þýddi. Ugla 2022. Kilja, 294 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.