Morgunblaðið - 11.10.2022, Side 14

Morgunblaðið - 11.10.2022, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sífellt fleiri átta sig á að málefni hælisleitenda séu komin í óefni. Ríkisstjórnin, að dómsmálaráð- herra undanskildum, virðist þó ekki í þeim hópi. Sigmundur Davíð Gunn- laugsson ítrekaði i blaðinu í gær að Miðflokkurinn hefði fyrir allnokkru bent á að fjöldi hælisleitenda á Íslandi væri hlutfallslega orðinn margfalt meiri en annars staðar á Norðurlöndum. Hann væri orðinn sexfalt meiri en í Danmörku og Nor- egi og rúmlega tvöfalt meiri en í Svíþjóð. Flokkurinn hefði bent á að Noregur og sérstaklega Dan- mörk hefðu innleitt stefnu sem tækist á við vandann út frá staðreyndum, svo mest gagn yrði af fyrir þá, sem væru í mestri neyð, en forðast að löndin yrðu áfangastaður glæpagengja sem hneppa fólk í ánauð og senda það í hættu- för. Ísland hafi farið í öfuga átt og í raun auglýst sig sem áfangastað af því tagi. Það væri þvert á stefnu danskra stjórnvalda, en Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna, lýsti því yfir að markmiðið væri að enginn kæmi til landsins til að sækja þar um hæli. „Dan- mörk má ekki vera söluvara glæpagengja,“ sagði Mette. Markmiðið væri ekki að loka landinu fyrir fólki í neyð, heldur að ná að gera þurfandi sem mest og best gagn. Sigmundur Davíð segir Ís- land hafa farið þveröfuga leið. Stjórnvöld hafi sent frá sér skilaboð sem eins konar aug- lýsingu fyrir þá sem skipu- leggja fólksflutninga! Slíkum skilaboðum sé dreift hratt. Hann rifjar upp:„Ég er minn- ugur þess þegar finnskur ráð- herra sagði mér að stjórnvöld þar í landi hefðu orðið felmtri slegin þegar 50-60.000 manns hefðu skyndilega komið frá tilteknu landi til að sækja um hæli. Ástæðan reyndist sú að reglubreyting, sem finnska þingið taldi smávægilega, hafði sett Finnland á kortið sem vænlegan áfangastað. Straumi, sem áður var beint til Belgíu, var snúið til Finn- lands.“ Sigmundur segir að ríkis- stjórn Íslands hafi „sett stór- an rauðan hring um Ísland sem áfangastað með þeim reglum sem hér gilda og þeim skilaboðum sem hún hefur sent frá sér. Þetta er löngu orðið augljóst en nýjasta út- spilið felst í svokölluðum lög- um um samræmda móttöku flótta- manna. Með lög- unum er öllum sem fá landvistar- leyfi tryggð sama þjónusta og greiðslur, óháð því hvernig þeir koma til landsins. Íslend- ingar hafa lengi tekið við fá- einum tugum flóttamanna ár- lega og viljað gera vel við það fólk sem boðið er til landsins. Nú eiga allir rétt á sömu þjónustu, hvort sem þeir eru valdir og boðið til Íslands af sérstökum ástæðum eða koma með ólöglegum hætti á vegum þeirra sem skipu- leggja fólksflutninga. Vart er hægt að hugsa sér betri aug- lýsingu fyrir þá sem selja Ísland sem áfangastað. Fyrir vikið eru umsóknir nú taldar í þúsundum.“ Sigmundur Davíð bendir á, í eftirtektarverðri grein sinni, að nú „sé ásókn í hæli á Ís- landi líklega orðin hlutfalls- lega tífalt meiri en í Noregi og Danmörku. Það er afleið- ing þeirra reglna sem hér gilda og þeirra skilaboða sem íslensk stjórnvöld hafa sent frá sér. Dómsmála- og fjár- málaráðherra hafa loks viður- kennt þetta en ekki verður vart stefnubreytingar.“ Það stefnir ekki lengur í óefni. Þau eru þegar orðin. Benda má á ummæli Jóns Gunnarssonar dómsmálaráð- herra sem segir „að nú beri á því að hælisleitendur komi hingað til lands með venesú- elsk vegabréf, þrátt fyrir að vera frá öðrum löndum. Það hefur komið fram í erlendum fjölmiðlum að vegabréf frá Venesúela fáist keypt eftir ákveðnum leiðum. Það er áberandi að fólk kemur til landsins með nýútgefin, lög- leg, venesúelsk vegabréf og það er fólk sem er kannski að þó nokkrum hluta ekki frá Venesúela, augljóslega, held- ur frá öðrum löndum,“ segir dómsmálaráðherra og bætir við að vegabréfaviðskipti af þessu tagi séu alþjóðlegt vandamál. Morgunblaðið hef- ur eftir heimildum, sem það telur áreiðanlegar, að all- margir flóttamenn sem sagðir eru frá Venesúela, í fölsuðum vegabréfum, hvort sem emb- ættismenn í Venesúela eða annars staðar standi að þeim, komi hingað frá Sýrlandi og ekki sé talið að þeir hafi haft nokkra viðkomu í Venesúela. Íslensk yfirvöld af ýmsu tagi láti yfir sig ganga að hafa sig að fíflum. Hversu lengi getur þessi aumingjagangur staðist? Íslensk yfirvöld virðast ekki ráða við sitt verkefni. Það er mikið alvörumál} Verndað óefni K jördæmaviku þingmanna er ný- lokið, þar sem þingmönnum gefst kærkomið tækifæri til að ferðast um, ræða við fólk, heim- sækja fyrirtæki, stofnanir og sveitastjórnarfólk. Þessi samskipti dýpka störf okkar mikið enda erum við í vinnu fyrir fólkið í landinu og eigum í störfum okkar að sinna því eins og okkur er frekast unnt. Það gerum við með því að fræðast um allt sem gerist hér á landi. Það sem stendur upp úr eftir þessa viku er hversu viðkvæmir innviðir okkar eru. Hér ætla ég að fjalla um tekju- og verkefnaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga enda var það hvað mest áberandi í samtölum okkar við sveita- stjórnarfólk um allt land hversu óheilbrigð skipting er á fjármunum til samneyslunnar. Í mörg ár hefur verið bent á það hversu ríkið er duglegt að færa verkefni sín til sveitarfélaga. Það er í raun mjög góð hugmynd að færa nærþjónustu við íbúana til sveitar- félaganna en þá verður að tryggja að viðunandi fjármagn fylgi með í kaupunum. Þau sveitarfélög sem uppfylla ekki lágmarksviðmið um fjárhagslega sjálfbærni og eru undir eftirliti eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga hefur fjölgað úr 12 í 30 frá árinu 2019. Það eitt sýnir svart á hvítu að það er eitthvað verulega bogið við tekjuskiptinguna og þar ber ríkið ábyrgð. Ein helsta örsökin fyrir þessari stöðu er vanfjármögnun á þjónustu við fatlað fólk. 17 milljarða kr. uppsafnaður halli blasir við okkur í málaflokki fatlaðs fólks frá því að málaflokk- urinn var fluttur til sveitarfélaganna fyrir ára- tug. Sífellt fleiri verkefni eru svo samþykkt af Alþingi, síðast nauðsynlegar umbætur á þjón- ustu við fatlað fólk með langvarandi stuðnings- þarfir, svokölluð NPA þjónusta, sem sam- þykkt var einróma á Alþingi, þrátt fyrir kostn- aðarútreikninga sem voru ekki í tengslum við raunveruleikann. Fjallað var um að mögulega væri um að ræða brot á lögum um opinber fjármál, sem eiga að tryggja að fjárhagslegt mat sé lagt á lagafrumvörp. Á því og vanfjár- mögnun bera stjórnvöld ábyrgð. En ríkisstjórnin skilar auðu. Þau láta eins og þetta sé ekki þeirra mál heldur hafi sveitar- félögin gert eitthvað rangt með þjónustu sinni við þennan viðkvæma hóp. En málaflokkur fatlaðs fólks er ekkert einsdæmi og er nær- tækast að nefna þjónustu við eldra fólk sem dvelur á hjúkrunarheimilum. Á síðasta kjörtímabili neyddust sveit- arfélög til að skila af sér rekstri hjúkrunarheimila vegna ófullnægjandi fjármagns frá ríkinu með þjónustunni. Ekk- ert fjármagn er í sjónmáli til að byggja upp fleiri hjúkr- unarheimili og álagið á Landspítala og önnur sjúkrahús eykst. Það þarf að leiðrétta tekjuskiptinguna milli ríkis og sveitarfélaga og það þarf að tryggja að þjónusta við borg- arana sé fjármögnuð með fullnægjandi hætti. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Ríkið þarf að greiða fyrir þjónustuna Höfundur er þingflokksformaður Samfylkingar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BRENNIDEPILL Andrés Magnússon andres@mbl.is R agnar Þór Ingólfsson, for- maður VR og að líkindum næsti forseti Alþýðu- sambands Íslands (ASÍ), hefur lengi gagnrýnt leigumarkaðinn, fordæmt „svívirðilega framkomu“ leigufélaga sem stýrðist af „taum- lausri græðgi“. Nú í aðdraganda kjarasamninga hafa hann og fleiri bryddað upp á þessu á ný og vilja að hið opinbera hlutist til um að komið verði á „leiguþaki“ eða „leigubrems- um“. Þau sjónarmið eru ekki bundin við verkalýðsforystuna, en nýleg könnun bendir til að ríflega 70% landsmanna séu hlynnt leiguþaki. Með leiguþaki er átt við að lög- fest eða reglubundið sé hámark á leyfilegt leiguverð miðað við stærð, staðsetningu og gæði, en leigubremsa reglubindur hversu mikið og ört megi hækka leigu. Leiguverð á Íslandi, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, er mjög hátt. Af 215 borgum Evrópu var Reykjavík í 10. sæti yfir hæstu leigu utan mið- borgar á liðnu ári, en síðan hefur leig- an hækkað ört og viðbúið að Reykja- vík sé komin í 4.-5. sæti. Hins vegar er rétt að hafa í huga að þó leiguverð hafi hækkað síðastliðin ár, þá hefur það engan veginn haldið í við hækkun fasteignaverðs. Húsnæðiskostnaður vegur þungt í heimilsbókhaldi flestra, líkt og lífskjararannsókn Hagstofunnar í fyrra leiddi vel í ljós. Það á sér- staklega við um leigjendur, en þá bjuggu liðlega 27% leigjenda við íþyngjandi húsnæðiskostnað (aðeins 9% húsnæðiseigenda), en hann telst íþyngjandi ef heildarkostnaður nemur meira en 40% ráðstöfunar- tekna. Enginn skyldi efa þann vanda, sem há húsaleiga veldur, bæði efna- hagslegum og félagslegum. Hún gref- ur undan lífskjörum, getur leitt til og viðhaldið fátækt, leiðist út í annað verðlag, ýtir undir stéttaskiptingu og svo mætti lengi telja. Leiguþak leysir engan vanda Það á því ekki að koma á óvart að hugmyndir um leiguþak og ámóta verðlagsstýringu stjórnvalda skjóti upp kollinum – hér á landi sem ann- ars staðar – eftir að hafa legið í lág- inni í hálfa öld. Leiguverð þykir of hátt og þá er einfaldast að setja verð- lagshömlur á leigu, ekki satt? En leiguþak er engin lausn. Líkt og verð á annarri vöru og þjónustu er hátt leiguverð skilaboð um skort, um stöðu framboðs og eftirspurnar. Hátt verð er skilaboð til neytenda um að það sé lítið til af einhverju, að margir vilji það og því rétt að nota það eins sparlega og hægt er. Um leið eru það skilaboð til veitenda um að ef menn geti séð af einhverju sé um að gera að nota tækifærið. Sem eykur framboð og linar eftirspurn, lækkar verð og dregur úr sóun. Öll verðlagshöft eru til þess fallin að skjóta þennan sendiboða eða það sem verra er, fá hann til þess að segja ósatt. Að skilaboðin til neytenda séu ranglega þau, að nóg sé til, að ekki þurfi að fara sparlega og um að gera að nota tækifærið, en skilaboðin til veitenda að nóg sé til og lítil ástæða til að bjóða meira. Húsnæðisskortur er rótin Húsaleiga er engin undantekn- ing um þetta og ástæðan fyrir því að húsaleiga (og raunar verð íbúðar- húsnæðis almennt) er há á Íslandi er einfaldlega sú, að það er ekki nóg af því. Miðað við mannfjölda er Ísland í 6. neðsta sæti í Evrópu hvað íbúða- framboð varðar, með 419 íbúðir á hvert þúsund. Engum ætti því að koma á óvart að íbúðarhúsnæði sé dýrt hér á landi og leigan há. Um það fær leiguþak engu breytt. Leiguþak mun ekki bæta einni einustu íbúð við í fasteignalager landsins. Öðru nær, því það letur venjulega húseigendur til þess að leigja frá sér. Hins vegar hvetur leiguþakið fleiri til að reyna að leigja en ella, svo fleiri og fleiri bítast um færri og færri íbúðir. Reynslan í grannlöndum er sú að leiguþak bitnar sérstaklega illa á ungu fólki og inn- flytjendum. Þegar búið er að aftengja verð, framboð og eftirspurn mun – líkt og í öllum haftakerfum – annað fara að ráða því hverjir komast í þau tak- mörkuðu gæði, hvort sem eru úthlut- unarreglur, klíka eða aukagreiðslur undir borðið. Slík spilling hefur bæði ranglæti og kostnað í för með sér. Reynslan er á eina leið um að slík kerfi ná trauðla markmiðum sínum að fornu sem nýju. Leiguþaki var komið á í Berlín 2020 og nýtt framboð leigu- húsnæðis helmingaðist samstundis. Því var hrundið af dómstólum 2021, en einnig dregið í efa að það stæðist eignarréttarákvæði stjórnarskrár, sem ætti líklega einnig við á Íslandi. Flestar rannsóknir á Vest- urlöndum benda til að húsnæðis- framboð stýrist mest af lóðaframboði og skipulagsskilmálum. Byggingar- land á höfuðborgarsvæðinu er af skornum skammti, uppurið í þeim flestum nema í Reykjavík og Garða- bæ, en borgin leggur alla áherslu á þéttingu byggðar, sem er bæði taf- samt og dýrt og ólíklegri til þess að nýtast fólki með naum fjárráð. Verði ákveðið að setja leiguþak ofan á það er hætt við að fáir fjárfesti í byggingu á leiguhúsnæði í bráð og að fjöldi hús- eigenda telji útleigu ekki svara kostn- aði, selji þá frekar en að leigja út. Því það hjálpar engum að þagga niður í sendiboðanum. Leiguþak leysir ekki húsnæðisskortinn Þróun fasteignaverðs og leiguverðs Á höfuðborgarsvæðinu, frá upphafi árs 2011 Heimild: Þjóðskrá 100 150 200 250 300 350 (1.1.2011 = 100) ’22’21’20’19’18’17’16’15’14’13’12’11 Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu og leiguverð fylgdist lengi vel að, en upp úr 2020 skildu leiðir. Leiguverð Húsnæðisverð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.