Morgunblaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2022 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning 21x125mm, panill 10x85mm, pallaefni 21x145mm, 21x140, 90x21mm, útihurðir 5,4cmx210cm (80,90 og 100cm) o.fl. Eurotec skrúfur, Penofin og Arms- trong Clark harðviðarolíur. NÝKOMIÐ BANKIRAI HARÐVIÐUR 21X145MM VERÐ 1.950 KR LENGDARMETERINN slétt beggja megin fasað og ofnþurrkað. Lengdir frá 2.44 metrar upp í 5,50 metrar. Upplýsingar hjá Magnúsi á magnus@vidur.is og í símum 6600230 og 5611122, og frá 10-14 á Indus ,Óseyrarbraut 2 Hafnarfirði. Húsviðhald Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verkefni Uppl. í síma 847 8704 eða manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:00 - Jafnvægisæfingar kl.11:15 - Postulínsmálun kl.12.00 -Tálgað í tré kl.13:00 - Prjónaklúbbur kl.13:30 - Gamlar ljósmyndir kl.13:45 - Kaffi kl.14:30 - 15:20 - Nánari upplýsingar í síma 411-2702 - Verið velkomin Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Leikfimi með Milan kl. 10.00. Erlent handverksfólk kl. 10-12. Handavinna kl. 12-16. Karlakórsæfing kl. 12:45. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Áskirkja Spilum félagsvist í kvöld í Dal, neðra safnaðarheimili kir- kjunnar kl 20 Allir velkomnir Safnaðarfélag Áskirkju Vesturbrún 30 Boðinn Bridge og Kanasta kl. 13:00. Pennasaumur kl. 13:00. Sundlaugin opin til kl. 16:00. Bústaðakirkja Tónleikar í hádeginu á miðvikudag í kirkjunni Tenórarnir þrír, Gunnar Guðbjörnsson, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Marteinn Snævarr Sigurðsson syngja og Jónas Þórir við flygilinn. Súpa og brauð í safnaðarheimilinu að tónleikum loknum. Félagsstarf heldur áfram og gestur dagsins er Selma Gísladóttir og verður hún með myndsýningu frá Hornströndum og Aðalavík. Kaffið á sínum stað. Dalbraut 18-20 Dansleikfimi með Auði Hörpu kl.12.50, félagsvist kl.13.30. Fella- og Hólakirkja Eldriborgara starf í Fella- og Hólakirkju alla þriðjudaga kl.12:00 - 16:00. Byrjum með helgistund í kirkjunni og eftir hana er súpa og brauð. Eftir það er skemmtileg dagskrá, fáum góða gesti í heimsókn, spilum, spjöllum og höfum gaman saman. Allir hjartanlega velkomnir. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00. Prjónað til góðs kl. 8:30-12:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Myndlistarhópurinn Kríur kl. 12:30-15:30. Heimaleikfimi á RUV kl. 13:00-13:10. Dönsum með göngugrindurnar kl. 13:15-14:30. Bónusrútan kl. 13:10. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Bókabíllinn kl. 14:45-15:15. Garðabær 9.00 Pool-hópur í Jónshúsi. 9:00 QJ-Gong í Sjálandssk. 9.00-12.00Trésmíði í Smiðju 10.00 Ganga frá Jónsh. 10.30-11.30 Biblíulestur í Jónsh. 11.00 Stóla-jóga í Sjálandssk. 12.15 Leikfimi í Ásgarði 13.00-16.00Trésmíði í Smiðju 13:00 Egilssaga-sögulestur í Jónsh. 13.10 Boccia í Ásgarði 13.45-15.15 Kaffiveitingar í Jónsh. 14.15 / 15.00 Línudans í Sjálandssk. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á könnunni. Gönguhópur (leikfimi og ganga) frá kl. 10:00 Núvitund með Álfhildi frá kl. 11:00 Listaspírur kl. 13:00 – 16:00. Bókband kl. 13:00 – 16:00. Allir velkomnir Gjábakki OPIN HANDAVINNUSTOFA og VERKSTÆÐI kl. 8.30 til 11.30. HEILSU-QIGONG leikfimi kl. 10 til 11. NAFNLAUSI LEIKHÓPURINN kl. 16 til 17.30. Gullsmári Myndlist kl. 9:00.Tréútskurður kl. 13:00. Canasta kl. 13:00. Hreyfing kl. 13:00. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9:00 - 12:00. Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 10:30. Hádegismatur kl. 11:30. Sögustund kl. 12:20 – 14:00. Félagsvist kl. 13:00. Kaffi kl. 14:15. Létt ganga með Jóhönnu kl. 14:00 Hraunsel Þriðjudaga: Dansleikfimi kl. 9:00. Qi gong kl. 10:00. Bridge kl. 13:00. . Vatnsleikfimi í Ásvallalaug kl. 14:40. Ganga í Kaplakrika er alla daga kl. 8:00-12:00 Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Hu- gleiðslunámskeið kl. 10:30. Bridge kl. 13:00. Helgistund kl. 14:00. Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Borgum Listmálun kl. 9:00. Boccia kl. 10:00. Helgistund kl. 10:30. Leikfimihópur í Egilshöll kl. 11:00. Spjallhópur í Borgum kl. 13:00. Línudans kl. 13:00. Sundleikfimi í Grafarvogslaug kl. 14:00. Gleðin býr í Borgum. Neskirkja Krossgötur kl. 13.00 Skírnin í kirkjunni. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir fjallar þróunn skírnarinnar á Íslandi og norðurlöndum. Kaffiveitingar. Samfélagshúsið Vitatorgi Kaffispjall í setustofu 09:00-10:00 - Haustlitaferð kl: 09:05-14:00 - Bútasaumshópur í handverksstofu kl. 09:00-12:00. Hópþjálfun í setustofu kl. 10:30-11:00 -Tæknilæsis námskeið kl: 13:15-15:45 og síðdegiskaffi kl.14.30-15.30. Allar nánari upplýsingar í síma 411 9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :) Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 07.10. Kaffikrókur á Skólabraut kl. 9.00. Pútt á flötinni við Skólabraut kl. 10.30. ef veður leyfir. Í dag kl. 13.30 verður helgistund í salnum á Skólabraut. Örnámskeið / roð og leiður á neðri hæð félagsheimilisins kl. 15.30. alltaf - alstaðar mbl.is ✝ Ása María fæddist þann 24. júlí 1934 í Reykjavík. Hún lést á hjúkrunuarheim- ilinu Sóltúni 30. september 2022. Foreldrar henn- ar voru Avona Jo- sefine Jensen hús- móðir, f. 16. október 1911 í Wa- ag á Suðurey í Fær- eyjum, d. 6. mars 1996, og Guð- mundur Kristinn Þórðarson múrari, f. 13. apríl 1907 í Reykjavík, d. 14. janúar 1970. Systkini Ásu Maríu eru John Þórður, f. 1933, d. 2004, Hans Jakob, f. 1937, Þórir, f. 1947, d. 2022, og Hanna, f. 1950, d. 2014. Ása María giftist hinn 18. október 1963 Gunnari Guð- mundssyni skólastjóra Laug- arnesskólans, f. 16. desember 1913, í Ytri-Fagradal á Skarðs- strönd, Dalasýslu, d. 16. sept- Fyrstu ár ævinnar bjó Ása María í foreldrahúsum en um 9 ára aldur fer hún til dvalar að Gufuskálum á Snæfellsnesi. Þar dvaldi hún í þrjú ár. Eftir dvöl- ina þar fer hún vestur til Bol- ungavíkur þar sem hún er fram að fermingu. Eftir fermingu fer hún síðan til Kaupmannahafnar til Ölu móðursystur sinnar og Eriks mannsins hennar og er þar næstu fjögur árin. Ásu Maríu leið vel í Kaupmannahöfn og litlu munaði að hún hefði sest þar að. Eftir heimkonuna vann Ása María á heimvist Laugarnes- skólans í nokkur ár þar sem hún kynntist Gunnari eiginmanni sínum. Veturinn 1956-1957 var Ása María í Húsmæðraskólanum Varmalandi í Borgarfirði. Eftir fráfall Gunnars lærði Ása María til sjúkraliða og starf- aði á öldrunardeild í Hátúni og geðdeildum Landspítalans. Síðasta æviárið dvaldi Ása María á hjúkrunarheimilinu Sól- túni. Útför (sálumessa) Ásu Mar- íu fer fram frá Landakotskirkju (Dómkirkju Krists Konungs, Landakoti) í dag, 11. október 2022, kl. 13. ember 1974. For- eldrar hans voru Sigríður Helga Gísladóttir, f. 1891, d. 1970, og Guð- mundur Ari Gísla- son, f. 1880, d. 1956. Uppeldismóðir Gunnars var Anna Friðriksdóttir, f. 1885, d. 1970. Börn Ásu Maríu og Gunnars eru: 1) Gunnar Valur, f. 28. mars 1960. 2) Anna Ingibjörg lyfjafræð- ingur, f. 22. ágúst 1969, maki Ástráður B. Hreiðarsson læknir, f. 14. desember 1942, þeirra börn eru: a) Ása María, f. 18. júní 2006, b) Soffía Sóllilja, f. 9. október 2008, og c) Adam Ást- ráður, f. 19. ágúst 2011. 3) Sig- rún hjúkrunarfræðingur, f. 15. september 1971, maki Bjarni Torfason læknir, f. 28. mars 1951, þeirra barn er Bergþóra María, f. 21. desember 2010. Elsku mamma ég trúi því ekki að þú sért fallin frá. Ég hélt að sá tími myndi koma miklu seinna. Margt kemur upp í hugann við fráfall þitt. Ég get með sanni sagt að þú veittir okkur systkinunum allt sem við þurftum. Ást, um- hyggju og öryggi. Okkur skorti aldrei neitt og höfum átt yndislegt líf, þökk sé þér. Þegar ég lít til baka þá sé ég hvað þú varst ótrúlega dugleg, kjarkmikil og komst miklu í verk. Þó þú værir ein með okkur þrjú eftir fráfall pabba. Gunni bróðir veikist snemma og hefur allt frá því þurft mikla aðstoð sem þér tókst að veita honum. Minningarnar um þig eru ótelj- andi margar og góðar. Þú varst ótrúlega dugleg að ferðast með okkur, frá unga aldri um allan heim og voru þær uppspretta þroska og skemmtunar. Mér er sérstaklega minnisstæð ferðin sem ég fór með þér til Amsterdam þegar ég var 16 ára gömul, en það var í fyrsta skipti sem ég þurfti að treysta á sjálfa mig og tala fyrir okkur á ensku og bjarga okkur milli staða. Ég fékk mikið sjálfstraust eftir þessa ferð og bý að því alla tíð síðan og er mjög þakklát fyrir það. Ég veit að lífið var þér ekki allt- af auðvelt og stundum blés á móti en þér tókst þrátt fyrir það með ótrúlegum styrk að gera líf okkar systkinanna raunar eins gott og hugsast getur. Þú varst greinilega alltaf að hugsa um okkur en sjálf baðst þú aldrei um neitt. Eftir að Bergþóra, sólargeislinn okkar Bjarna fædd- ist, komum við oftar en ekki með hana til þín í pössun. Bergþóra naut þess að koma og vera hjá þér og skoða allt fína smádótið sem þú áttir. Eins og það var erfitt að horfa á þig kveðja þennan heim þá vona ég að þér líði vel með að vera kom- in til pabba. Þú skilur eftir þig stórt tóma- rúm og lífið verður ekki eins án þín, elsku mamma mín. Þín er og verður sárt saknað. Guð blessi þig og minninguna um þig. Sigrún Gunnarsdóttir. Minn stærsti ótti í æsku var að missa mömmu mína. Ég man að ef hún kom aðeins seinna heim en hún talaði um varð ég logandi hrædd um að eitthvað hefði komið fyrir. Ég hef kviðið þessum degi lengi og þrátt fyrir að vera ekki lengur lítið barn finn ég anga þessarar hræðslu og óvissu blossa upp. Hvernig verður framtíðin án mömmu? Uppvaxtarár okkar systkina voru að mörgu leyti frábrugðin því sem tíðkaðist. Mamma hafði til að mynda gaman af því að lyfta sér upp og fór gjarnan með okkur á gamanleikrit ætluð fullorðnum, „show“ á Broadway og Þórskaffi og vorum við alltaf einu börnin. Einnig var hún dugleg að fara með okkur út að borða sem var óvenjulegt á þeim tíma. Hún var samt góður kokkur og á ég ljúfar minningar um uppáhaldsmatinn minn, lambahrygg á sunnudags- kvöldum, steikta lambalifur, heitt kakó og kringlur og bestu gulrót- arkökuna. Löngu seinna trúði hún mér þó fyrir því að sér hefði aldrei þótt gaman að elda. Mamma var nýjungagjörn og var oft fljót að fjárfesta í því sem var nýtt á markaðnum. Við vorum til að mynda með þeim fyrstu að eignast myndbandstæki. Mamma naut þess að fara í sund og var reglulegur gestur í Laugardalslaug. Hún hafði gaman af krossgátum og að lesa dönsku blöðin var fastur punktur í tilver- unni. Hennar stærsta áhugmál var þó að spila. Mamma elskaði að spila og voru ófá notaleg kvöldin sem við spiluðum og voru vinkon- ur okkar systra þá gjarnan með. Þá var mamma í essinu sínu. Á efri árum spilaði hún reglulega brids á meðan hún hafði heilsu til. Mamma elskaði að ferðast. Snemma fór hún með okkur til Kaupmannahafnar að heimsækja ömmu og Ölu og til Hönnu systur sinnar í London. Þessar ferðir eru með mínum bestu æskuminning- um. Mömmu langaði að kveðja Kaupmannahöfn og náðum við ferð saman að kveðja borgina sem var henni svo kær. Aldrei heyrði ég mömmu hall- mæla öðrum eða dæma. Þegar hún hitti Ástráð minn í fyrsta skipti hefðu margir sagt eitthvað vegna aldursmunarins en mamma sagði bara „ jæja“. Ég vissi svo sem að hún gæti ekki sagt mikið þar sem pabbi var rúmum 20 árum eldri en hún. Mamma studdi okkur ávallt í öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur. Hún var ekki stjórnsamt foreldri, en sýndi ást sína miklu frekar í verki en orði. Uppeldisað- ferðir hennar voru góð fyrirmynd en ekki boð og bönn. Mamma þurfti að bíða nokkuð lengi eftir barnabörnum. Hún sá ekki sólina fyrir fyrir þeim og þau sóttu mikið í að vera hjá henni. Hún lék við þau og var einstaklega lunkin við að finna skemmtilegar gjafir og leikföng handa þeim. Kveðjustundin var löng og það var átakanlegt að fylgjast með mömmu hverfa í hyldýpi heilabil- unarinnar. Lífsgæðin voru veru- lega skert og átti heyrnarleysi hennar líka stóran þátt í því. Síð- ustu misserin nefndi mamma gjarnan að pabbi kæmi til sín og væri að sækja sig. Pabbi var ástin í lífi mömmu og 48 ára aðskilnaður elskenda er langur tími. Ég gleðst innilega við tilhugsunina um end- urfundi þeirra og það sefar sorg- ina í hjarta mínu. Anna Ingibjörg. Elsku besta amma. Ég er heppnust að hafa kynnst þér og fengið að vera litla ömmustelpan þín. Þú hefur alltaf gert allt sem þú gast til að gera mig að hamingju- sömustu stelpu. Ég er svo óend- anlega þakklát fyrir allar minning- arnar sem að við höfum náð að búa til saman. Öll spilakvöldin okkar, bíókvöldin, ferðirnar í pulsuvagn- inn, sundlaugaferðirnar og allar fallegu gjafirnar sem að þú hefur gefið mér. Ég man þegar þú komst með blómahúfuna þína í leikskól- ann minn og horfðir á mig syngja þar, heimsóknirnar eftir æfingu og þegar ég gisti hjá þér og við borð- uðum kjötbollur frá 1944. Mér eru minnisstæð öll jólin þegar við bök- uðum piparkökur og allar utan- landsferðirnar okkar. Þegar við héldum upp á jólin á Tenerife og ég keyrði þig um allt í hjólastólnum og svo settumst við niður við barinn og þú fékkst þér irish coffee og ég mér ís. Einnig Færeyjaferðin þeg- ar öll stóra fjölskyldan fór að skoða eyjuna þar sem Avona langamma fæddist, Danmerkurferðin okkar þegar við fórum í tívolíið og heim- sóttum Österbro, gamla hverfið hennar Avonu ömmu. Svo leiðin heim frá Svíþjóð sem er ógleym- anleg og við fengum að sitja frítt á saga class og fengum allan mat ókeypis í vélinni. Elsku amma, þú hefur verið besta amma sem að hægt er að hugsa sér. Það var svo gott að eyða þessu sumri með þér, þegar ég bakaði köku og kom með til þín á Sóltún og við spiluðum og fórum í göngutúra og settumst svo á Te- &kaffi. Það voru forréttindi að geta kallað þig ömmu mína, allir eiga skilið eina ömmu eins og þig. Ég elska þig endalaust. Hvíldu í friði elsku amma. Þín ömmustelpa, Ása María. Komið er að kveðjustund við kæra föðursystur, sem kvaddi okkur á þessu fallega hausti, 88 ára gömul. Minningarnar eru margar og fyrst koma upp í hugann góðar stundir á Hofteigi, þar sem ég var m.a. í pössun í vikunni sem Einvígi aldarannir var háð og passaði frænka mín vel upp á það að ég fengi – sem kallast núna – „me- time“ og leyfði mér að fara einni í sund daglega. Hún vissi að ég þyrfti smápásu frá yngri frænkum mínum, sem fannst einstaklega skemmtilegt að hafa stóru frænku í heimsókn og var lesið og spilað og borðuð sílamávsegg, og svo leið tíminn bara ljúft við útileiki og góða umönnun. Ása frænka var skipulögð hús- móðir fram í fingurgóma enda nóg að gera með börnin þrjú – en því miður hún varð ekkja með þau svo ung. Mikil var sorgin þegar Gunn- ar féll frá og Ása ein með börnin, hvað hún stóð sig vel alla tíð, svo ein með þau og lét ekki deigan síga nokkurn tímann. Að horfa fram á veginn var henni eðlislægt – hún var líka af þeirri kynslóð að harmurinn var borinn í hljóði og einbeitingin að framtíðinni í fyr- irrúmi. Ása var atorkusöm kona og sá til þess að allir hefðu nóg fyrir stafni, hún fór í nám, börnin lærðu á hljóðfæri, farið var í utanlands- ferðir og haldnar veislur á Hof- teigi – og dáist ég að því líka þegar hún var að taka fleiri með til út- landa, eins og Hafdísi systur mína einu sinni til Ítalíu, sem var mikil upplifun fyrir alla – og svo ferð- irnar okkar að heimsækja fjöl- skyldumeðlimi í útlöndum. Svo heppilega vildi til að Hanna yngri systir Ásu bjó í London og amma í Kaupmannahöfn og var farið reglulega með hópinn í heimsókn- ir. Einu sinni fór ég með og það var sko ekki slegið slöku við er ferðast var með Ásu frænku. Það átti að upplifa og gera eitthvað af viti alla daga og dagurinn tekinn snemma, reyndar eldsnemma að tillögu Ásu – eins og þegar við tók- um fyrsta flugið frá Kaupamanna- höfn til Jótlands, á leið í Lególand, svo eldsnemma að við vorum alein í flugvélinni. Eða þannig er það í minningunni. Lundúnaferðin okk- ar var líka frábær – hvað við gát- um hlegið með Hönnu frænku, enda elsku Hanna, sem kvaddi okkur alltof fljótt, svo hláturmild og sá það spaugilega í tilverunni endalaust. Stóra fjölskylduferðin okkar til Færeyja 2011, er amma Avona hefði orðið 100 ára, er okkur öllum ógleymanleg. Voru móttökurnar svo frábærar í alla staði og nutum við hvers dags er æskuslóðir móð- ur Ásu voru heimsóttar og ætt- ingjar okkar sóttir heim, bæði á Suðurey og í Gasadalur á Vágar, sem talinn er einn af fallegustu stöðum á jörðinni! Var það mikið til Ásu að þakka hvað vel tókst til því hún var sú eina sem hafði verið í reglulegu sambandi við frænkur okkar þar sem sáu til þess að hóp- urinn frá Íslandi fengi einstaklega yndislegar móttökur. Nú kveð ég kæra föðursystur með þakklæti í hjarta. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar Gunnar frændi minn, Anna, Sigrún, makar og ömmubörn. Blessuð sé minning þín, Ása mín. Anna Hansdóttir. Í dag kveð ég kæra vinkonu til margra ára. Við kynntumst á sumardvalarheimili fyrir börn þar sem við unnum báðar. Ég á minni góðu vinkonu margt að þakka í gegnum tíðina. Hún studdi mig vel á erfiðum tímum en við áttum líka ljúfar og skemmtilegar stundir saman með börnunum okkar. Fór- um í ferðalög, leikhús og ýmislegt fleira. Á milli okkar var alltaf sterkur strengur, væntumþykja og vinátta og það ber að þakka. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Innilegar samúðarkveðjur til barna Ásu og fjölskyldu þeirra. Við fjölskyldan kveðjum Ásu með virðingu, söknuði og þakklæti. Stella vinkona. Ása María Kristinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.