Morgunblaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 20
✝ Gísli Jens Frið- jónsson, fv. for- stjóri Hagvagna og Hópbíla, fæddist í Reykjavík 26. apríl 1947. Hann lést á Landspítalanum Fossvogi 1. október 2022. Foreldrar hans voru Friðjón Guð- björnsson vélstjóri, f. 23. október 1905, d. 29. mars 1982, og Gunnvör Stefanía Gísladóttir húsmóðir, f. 13. júní 1910, d. 5. maí 2004. Gísli ólst upp á Grettisgötu 63, þar til hann stofnaði eigið heim- ili. Systkini Gísla eru: 1) Jensína Sigríður (Stella), f. 3. mars 1931, d. 8. mars 2000. 2) Friðjón Björn, f. 4. september 1936, d. 10. júlí 2019, kvæntur Guð- björgu Svanfríði Runólfsdóttur (Svönu). 3) Jón Svavar, f. 1. nóv- ember 1944, kvæntur Margréti Kristjánsdóttur. 4) Jórunn, f. 17. mars 1951, var gift Thor Thors, d. 16. október 2018. Gísli kvæntist 11. september 1971 Hafdísi Alexandersdóttur maí 1992, og Bergrós Lilja, f. 16. maí 1997. Gísli útskrifaðist stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1968 og sem byggingatækni- fræðingur frá Tækniskólanum 1971. Eftir nám hóf hann störf hjá Verkfræðistofunni Hönnun. Gísli starfaði síðan hjá Ýtu- tækni þar til hann stofnaði verktakafyrirtækið Hagvirki ásamt þremur öðrum árið 1981. Árið 1992 stofnuðu sömu aðilar fyrirtækið Hagvagna og gegndi Gísli þar stöðu forstjóra. Síðan stofnuðu þeir fyrirtækið Hóp- bíla árið 1996 og sat Gísli einn- ig í forstjórastól þess fyrir- tækis, allt þar til hann seldi reksturinn í lok árs 2016. Gísli hafði alltaf mikinn áhuga á íþróttum og sat hann í lands- liðsnefnd Körfuknattleiks- sambands Íslands í þó nokkur ár. Gísli var mikill Valsari og stóð þétt við bakið á sínu félag- inu. Einnig hafði hann mikinn áhuga á gömlum bílum og var bæði meðlimur í Krúser klúbbn- um og Fornbílaklúbbi Íslands. Ferðalög hafa alltaf heillað og hafa þau hjónin notið þess að ferðast út um allan heim. Útför Gísla fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 11. október 2022, kl. 15. Streymt verður frá athöfn- inni. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat bankastarfsmanni, f. 15. mars 1949. Foreldrar hennar voru hjónin Alex- ander Sig- ursteinsson versl- unarmaður, f. 22. maí 1917, d. 15. apríl 1996, og Guð- rún Helgadóttir húsmóðir, f. 26. maí 1920, d. 21. maí 2003. Dætur Gísla og Hafdísar eru 1) Guð- rún, f. 9. nóvember 1973, gift Þórði Ágústssyni, f. 7. sept- ember 1975. Börn þeirra eru a) Ragnhildur Edda, f. 19. júní 1998, sambýlismaður hennar er Leonharð Þorgeir Harðarson, f. 3. apríl 1996. b) Gísli Gottskálk, f. 12. september 2004. 2) Kol- brún Edda, f. 17. desember 1978, gift Jóni Halldóri Guð- mundssyni, f. 27. mars 1971. Sonur þeirra er Aron Fannar, f. 20. október 2010. Dóttir Kol- brúnar Eddu er Hafdís Hera, f. 5. nóvember 2003, faðir hennar er Arnþór Heimisson. Dætur Jóns Halldórs úr fyrra hjóna- bandi eru Alexandra Dís, f. 12. Elsku pabbi. Engin orð fá því lýst hversu mikið ég sakna þín. Þú varst kletturinn í lífi mínu. Alltaf gat ég leitað til þín með hvað sem var og þú reddaðir málunum. Síðustu daga hafa minningarnar streymt fram. Við tvö vorum ótrúlega lík á margan hátt. Mér er minnisstætt þegar við vorum á skíðum á Akureyri þeg- ar ég var unglingur. Eitt sinn þegar ég kom skíðandi niður brekkuna sá ég þig detta úr diskalyftunni. Ég bruna til þín og spyr: Pabbi, hvað gerðist? Þá svaraðir þú með þinni stóísku ró: Ég veit það ekki, ég vaknaði bara hérna. Ég veit ekki um neinn sem hefur náð að slaka svona vel á í diskalyftunni að hann hefur náð að sofna. Við unnum alltaf saman og aldrei voru neinir árekstrar enda sagðir þú alltaf sama hvað kom upp: Þetta er ekki vandamál, þetta er bara verkefni. Öll verk- efni voru leyst á einn eða annan hátt. Þú varst með eindæmum bóngóður maður og öllum fannst gott að tala við þig. Ég held að þú hafir gert mjög margt gott fyrir marga án þess að nokkur vissi af því. Þú vildir nefnilega ekki hafa hátt um þá hluti. Ég man aldrei eftir að þú hafir hækkað róminn við nokkurn mann, alltaf jafn yfirvegaður og rólegur. Þú varst ekki að trana þér fram og talaðir aldrei af þér. Það kannski lýsir því best að einu sinni fékkst þú einhvern vír- us sem gerði það að verkum að raddböndin hjá þér lömuðust í þrjá mánuði og það heyrðist varla í þér, en það tók eiginlega enginn eftir því. Við deildum saman óbilandi áhuga á íþróttum og gátum horft á og rætt um þær löngum stund- um. Við fórum saman á flesta leiki Vals í handbolta svo árum skipti. Mikið varðst þú svo glað- ur þegar Ragnhildur Edda fór í Val þá varð nú enn skemmtilegra að fara á kvennaleikina. Ekki varstu minna stoltur af nafna þínum honum Gísla Gotta þegar hann hélt út í atvinnumennsku til Ítalíu að spila með Bologna. Það sem þú varst góður við okkur og ég tala nú ekki um barnabörnin þín. Þú sást ekki sólina fyrir þeim og varst alltaf tilbúinn að sinna þeim. Þau elsk- uðu líka að koma til ykkar mömmu. Þú hafðir áhuga á því sem þau höfðu áhuga á. Sast og púslaðir með þeim, spilaðir við þau, tefldir, fórst í bíltúra, gafst þeim ís og fylgdir þeim eftir í íþróttunum. Skarðið sem þú skilur eftir er stórt og það verður aldrei fyllt en missir mömmu er mestur. Þið voruð svo samheldin og samstíga í öllu. Við munum passa upp á mömmu fyrir þig og halda minn- ingu þinni á lofti um ókomna tíð. Takk fyrir allt elsku pabbi minn. Þín Guðrún. Elsku pabbi minn, það er svo óraunverulegt að þú sért farinn frá okkur. Ég er óendanlega þakklát fyrir að hafa átt þig sem pabba. Þér leiddist ekki hvað ég hafði mikinn áhuga á bílum sem barn, ég þekkti allar bílategund- ir aðeins fjögurra ára gömul. Útilegurnar, skíðaferðirnar, að ógleymdum öllum utanlandsferð- unum eru minningar sem gott er að ylja sér við. Þegar ég var lítil fékk ég oft að sitja í fanginu þínu og stýra bílnum á ferðalögum. Ég man þegar ég sat í fanginu þínu og stýrði bílnum yfir Kjöl og vinkaði til allra bílanna sem við mættum, okkur fannst það skemmtilegt. Þegar ég var orðin nógu stór fékk ég að keyra bílinn sjálf og þú sast við hliðina á mér. Veiðiferðirnar í Víðidalsá voru einn af hápunktum sumarfrí- anna. Eitt sumarið var áin mó- rauð og það var leiðindaveður. Það var engin veiði og fékk ég því að standa úti með stöngina á meðan þið höfuð það náðugt inni í húsbílnum. Ég fékk þau skila- boð og það væri bannað að vera með hávaða við ána til að fæla ekki fiskana. Svo allt í einu fann ég að það var fiskur búinn að bíta á. Ég vinkaði því til ykkar til að gefa ykkur merki um að það væri fiskur á og þið vinkuðuð bara til baka og brostuð til mín. Ég reyndi því að gefa ykkur merki um að koma til að aðstoða mig við að landa fiskinum, þegar þið loksins komuð var fiskurinn nánast kominn upp á land, þetta var Maríulaxinn minn, sá fyrsti og sá eini sem ég hef veitt. Sem barn fékk ég gríðarlegan áhuga á hestum og ykkur mömmu fannst því upplagt að ég fengi hest í fermingargjöf. Hestamennskan var okkar stundir saman, þú keyrðir mig í hesthúsið og sóttir mig, stundum varstu með mér allan tímann. Saman fórum við tvö í ferð til Ameríku í lok árs 1998, tilgangur ferðarinnar var að sækja Guð- rúnu systur og Ragnhildi Eddu sem þá bjuggu þar. Ferðin byrj- aði hjá Jóni bróður þínum og fjölskyldu, í ferðinni eyddum við tvö einum degi í New York, þar sem við skoðuðum allt það helsta og fórum við meðal annars upp á annan tvíburaturninn. Síðustu níu ár hef ég búið í Noregi, ég var hjá ykkur mömmu þegar ég kom til lands- ins, fyrir það er ég mjög þakklát. Við vorum dugleg að heyrast í síma og síðustu árin hringdum við á Facetime, þú varst alltaf jafnglaður að sjá mig og sérstak- lega ef Aron Fannar var með mér. Þið tveir áttuð einstakt samband. Þú varst kletturinn í fjölskyld- unni og var alltaf hægt að leita til þín. Það er ekki nema ár síðan þú greindist með alzheimer, ég fékk að fara nokkrum sinnum með þér í Seigluna, það voru ómetanlegar stundir. Eins allir bíltúrarnir okkar, þar sem við keyrðum um bæinn, kíktum kannski í bílaumboðin eða nutum þess að vera saman. Þú rataðir allt og varst duglegur að segja mér hvert ég ætti að fara. Það hlakkaði í þér þegar ég, útlend- ingurinn, keyrði yfir á rauðu ljósi. Elsku pabbi minn, ég er svo þakklát fyrir allar okkar stundir og allt það sem við höfum brallað saman í gegnum árin. Við mun- um passa upp á mömmu fyrir þig og hvert annað. Ég veit líka að þú munt passa upp á okkur. Takk fyrir allt, Þín Kolbrún Edda. Í dag kveðjum við tengda- pabba minn og góðan vin. Þótt dauðinn sé óumflýjanleg- ur þá er alltaf jafn erfitt þegar hann bankar upp á. Tengdapabbi skilur eftir sig stórt skarð og til- vera fjölskyldunnar er breytt. Hans er sárt saknað en við mun- um öll minnast hans með hlýju um ókomna tíð. Þegar ég lít um öxl á þeim tæpu þrjátíu árum sem ég var svo lánsamur að eiga Gísla að sem tengdapabba streyma fram ótal margar góðar minningar um mann sem ég leit mikið upp til. Í mínum huga var Gísli sann- kallað stórmenni, líkt og klettur sem ekkert gat haggað. Hann var stoð og stytta fjölskyldunn- ar, til hans gat ég alltaf leitað. Hann var rólegur og yfirvegaður maður, hafði létta lund og stund- um stríðinn. Einnig var hann höfðingi heim að sækja og hafði gaman af góðum veislum. Aldrei man ég eftir að hann hafi skipt skapi eða hækkað róminn við nokkurn mann. Hann var örlátur og ávallt reiðubúinn að rétta hjálparhönd til þeirra sem á þurftu að halda. Þykist ég vita að margir hafi notið góðs af hjálp- semi hans í gegnum tíðina, þótt hann hafi ekki haft orð á því sjálfur. Glæsilegir bílar og helst nóg af þeim voru staðalbúnaður hjá Gísla en hann lagði einnig mikla áherslu á að aðrir fjöl- skyldumeðlimir keyrðu um á góðum bílum. Gísla farnaðist vel í lífinu, hann sá yfirleitt engin vandamál, þetta voru bara verkefni. Vel- gengni hans var engin tilviljun, hann var ótrúlega klár maður og flestallt sem hann tók sér fyrir hendur óx og dafnaði. Hann hafði mjög mikla ánægju af því að standa í alls kyns fram- kvæmdum þar sem víðtæk þekk- ing hans á flestum sviðum var betri en engin. Gísli var einn af þeim sem vissu oftast betur en við hin, þannig var það bara. Að- gengi að ráðdeild hans voru for- réttindi sem margir nutu góðs af í gegnum tíðina, þar á meðal ég. Gísli var góður eiginmaður, pabbi, afi, vinur og Valsari. Haf- dísi sína umvafði hann virðingu, ást og öryggi. Saman sigldu þau um heimsins höf, stóðu ávallt þétt við hlið hvort annars og voru samstiga í einu og öllu. Fyr- ir mér eru Hafdís og Gísli órjúf- anleg heild og missir hennar er meiri en orð fá lýst. Yfir dætrum sínum, þeim Guðrúnu og Kol- brúnu, vakti hans verndarvæng- ur alla tíð og mun áfram gera. Barnabörnin, litlu englarnir hans, hændust að afa sínum. Hann gaf sér tíma fyrir þau, fylgdist grannt með og studdi áfram í leik og starfi. Alltaf var hann líka til í að púsla, fara í bíl- túr eða fá sér ís. Gísli reyndist þeim vel í alla staði eins og fjöl- skyldunni allri. Ég veit að tengdapabbi vakir nú yfir okkur og verndar í draumalandinu góða. Minning hans er ljós í lífi okkar. Elsku Hafdís, Guðrún, Kol- brún og afabörn, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Þórður Ágústsson. Elsku afi minn, efst í huga er þakklæti, þakklæti fyrir allar góðu stundirnar okkar saman og allar góðu minningarnar. Þú varst alltaf til staðar hvort sem það var til að hjálpa til fyrir næsta stærðfræðipróf eða losa bílinn út úr snjóskafli. Að eiga afmæli seint á árinu og vera með þeim seinustu til að fá bílprófið var ekki skemmtilegt en það reddaðist, því þið amma voruð alltaf boðin og búin til að skutla mér og sækja hvert sem var. Eftirminnilegustu stundirnar frá barnæskunni eru ferðirnar í bústaðinn og að fá að gista hjá ykkur. Ég fékk alltaf að gista á milli ykkar ömmu og það endaði oft með því að þegar þið voruð farin á fætur þá vaknaði ég á gólfinu, vegna þess að rúmið var á hjólum og rann í sundur. Það gladdi mig alltaf hvað þér þótti vænt um að hafa okkur barnabörnin í kringum þig. Þú naust þess að fylgjast með okkur frændsystkinunum í íþróttum og varst mjög sáttur þegar ég gekk til liðs við Val í handboltanum. Ég prófaði körfubolta þegar ég var yngri, bara vegna þess að þú varst einu sinni í körfubolta. Þá valdi ég númer 4 á bakið, því það var númerið þitt. Þú varst klár, góðhjartaður og gjafmildur. Þú vildir alltaf deila með þér. Ég mun passa upp á litlu fallegu englana sem þú bjóst til handa mér og ég veit að þeir munu vernda mig. Ég er mjög þakklát fyrir allar okkar stundir saman, hvort sem það var að fara saman í bíltúr, horfa saman á sjónvarpið eða borða saman. Minningin sem er mér dýrmætust núna er kvöldið áður en þú veiktist. Við horfðum saman á Kviss og skemmtum okkur vel. Eftir langa og erfiða skólaviku var alltaf gott að koma til ykkar og hlæja saman. Takk fyrir allt elsku afi, þín er sárt saknað og það vantar þig svo mikið í stólinn þinn. Hafdís Hera. Elsku besti afi minn, tilhugs- unin um að þú sért ekki lengur hjá okkur er svo sár. Þegar ég fæddist þá kom enn ein stelpan inn í lífið hjá afa. Ég held að hann hafi kannski smá vonast eftir að það kæmi strákur en það skipti engu máli, hann var alveg jafn glaður þótt ég væri stelpa. Afi var ansi sniðugur og hugsaði alltaf í lausnum. Stráka- leysið var leyst með því að kaupa bara föt á mig í strákadeildinni á meðan amma keypti kjóla. Ég hef verið svo heppin frá því ég var lítil stelpa að fá að eyða miklum tíma með afa og ömmu. Oftar en ekki þá sótti amma mig í leikskólann og fór með mig heim í Ljárskógana í ömmudekur. Alltaf hlakkaði ég jafn mikið til þegar afi kom heim úr vinnunni. Það skemmtilegasta sem ég gerði þegar ég var lítil var að púsla og púslaði afi sömu púslin með mér aftur og aftur. Við púsluðum eitt púslið svo oft að við vorum farin að kunna það á hvolfi en alltaf sagði hann já þegar ég kom með það aftur. Mér fannst líka alltaf jafn gaman þegar afi skar sviðasultu niður í teninga og við tíndum þá upp í okkur með bestu lyst. Þar sem ég er nú pínu gikkur þegar kem- ur að mat þá skil ég ekki alveg hvernig honum tókst að fá mig til að borða þetta. Það eina sem mér dettur í hug er að ég hafi viljað gera eins og afi. Afi var mikill bílakall og keyrði alltaf um á flottum bílum. Þegar ég var yngri þá fannst mér fátt jafn skemmtilegt og þegar hann kom keyrandi á fína bleika fornbíln- um í afmælin mín. Ekki skemmdi fyrir að Birgitta Haukdal hafði keyrt um á honum í tónlistar- myndbandi. Afi var Valsari í húð og hár og það gladdi hann mikið þegar ég ákvað að skipta yfir í Val og mætti hann á alla leiki og hvatti mig áfram. Afi Gísli var blíður og góður. Hann var klárastur af öllum og alltaf til staðar. Ég er þakklát fyrir þær stundir sem við áttum saman og mun geyma allar góðu minningarnar í hjarta mínu. Það var ekki hægt að hugsa sér betri afa. Síðustu vikur á spítalanum voru erfiðar. Ég er samt svo þakklát fyrir að hafa fengið að vera hjá þér og kveðja þig. Elsku afi ég veit að þú vakir yfir okkur og verndar eins og þú hefur alltaf gert. Að kveðja þig er það erfiðasta sem ég hef nokkurn tíma gert. Á litlum skóm ég læðist inn og leita að þér, afi minn. Ég vildi að þú værir hér og vært þú kúrðir hjá mér. Ég veit að þú hjá englum ert og ekkert getur að því gert. Í anda ert mér alltaf hjá og ekki ferð mér frá. Ég veit þú lýsir mína leið svo leiðin verði björt og greið. Á sorgarstund í sérhvert sinn ég strauminn frá þér finn. Ég Guð nú bið að gæta þín og græða djúpu sárin mín. Í bæn ég bið þig sofa rótt og býð þér góða nótt. (S.P.Þ.) Guð geymi þig. Þín afastelpa, Ragnhildur Edda. Elsku afi. Afi Gísli var einn besti maður sem ég hef kynnst, hann var allt- af svo góður og rólegur og það var alltaf gott að vera í kringum hann. Hann hugsaði svo vel um alla sem stóðu honum næst. Okk- ur fannst öllum gaman að koma í mat til ömmu og afa þar sem allir voru dekraðir og afi passaði allt- af sérstaklega að Pippa hundur- inn okkar yrði aldrei útundan og fengi nóg að borða. Alla þriðjudags- og fimmtu- dagsmorgna síðasta sumar fór- um við saman í Hafnarfjörð að pútta, það voru okkar stundir saman sem ég mun alltaf vera þakklátur fyrir að hafa átt með afa. Svo voru það bíltúrarnir sem okkur fannst svo gaman að fara í, þar gátum við keyrt og spjallað eins lengi og við vildum og hann gat sýnt mér eitthvað nýtt í hvert einasta skipti sem varð aldrei þreytt. Afi var frábær fyrirmynd í líf- inu. Hann var alltaf duglegur og gerði frábæra hluti með fyrir- tæki sitt sem hann byggði frá grunni og gerði risastórt. Hann var alltaf góður við alla og ekki einu sinni allan þann tíma sem ég eyddi með honum heyrði ég hann hækka róminn eða æsa sig. Hann skilur fjölskylduna eftir á góðum stað og við erum öll stolt af honum og þakklát fyrir allt sem hann hefur gert fyrir okkur. Ég verð ævinlega þakklátur fyrir að hafa eytt miklum tíma með afa og að hafa náð að kveðja hann almennilega. Þessir síðustu dagar á spítalanum voru erfiðir en ég reyndi að eyða eins mikl- um tíma þar með afa og ég gat þar sem við fórum yfir málin klukkutímum saman. Ég veit að hann lagði mjög mikið á sig í að hlusta og svara mér einstöku sinnum. Afi verður alltaf bestur og ég er ótrúlega stoltur að hafa verið skírður í höfuðið á svona góðum manni sem ég fæ að kalla afa minn. Þinn Gísli Gotti. Mig langar að minnast Gísla með nokkrum orðum en ég kynntist honum þegar ég varð hluti af fjölskyldu konu minnar. Ein af hefðum fjölskyldunnar er mikill samgangur og rík þörf til að hittast sem oftast. Við Gísli vorum ekki vanir slíku úr okkar fjölskyldum og náðum því vel saman og styttum okkur stundir með spjalli í fjölskylduboðunum. Gísli var hlédrægur og að mínu mati feiminn. Hafði húmor þess eðlis að sumir hrukku við eða áttu erfiðara með að nálgast hann. Ég held að húmorinn hafi verið skel sem hann setti í kring- um sig. Enda þótt það hafi tekið smátíma þá tókst mér að komast inn fyrir skelina og kynnast Gísla. Sá Gísli var annar en sá sem kom mörgum fyrir sjónir. Ég gat oft skemmt mér við að fylgjast með viðbrögðum fólks þegar Gísli svaraði fólki með sín- um kaldhæðna húmor. Ég sá fljótlega hversu fær Gísli var þó hann færi hljótt með það. Ég man þegar Gísli fékk þá flugu í kollinn að bjóða í rekstur strætós á höfuðborgarsvæðinu. Gísli hafði enga reynslu í að reka strætó og ennþá mikilvægara, hann átti enga strætisvagna! Ég spurði hvers vegna í ósköpunum hann ætlaði að fara í þennan bransa. Gísli var hvergi banginn og sagði að flestir af strætis- vögnum í umferð væru eldgamlir og kostnaðarsamir í rekstri. Aðr- ir sem myndu gera tilboð í þenn- an rekstur væru líka með gamla bíla. Nálgun Gísla var að koma með nýja bíla og endurnýja þá reglulega. Á þeim tíma hafði ég enga trú á þessu. Síðar útvíkkaði hann starfsemina og bætti við rútum í flotann í gegnum Hóp- bíla. Þar var uppleggið það sama, koma með nýjar rútur á markaðinn en fyrir voru eld- gamlar rútur sem voru ekki boð- legar að mati Gísla. Gísli hafði rétt fyrir sér varðandi strætó- og rútumarkaðinn og urðu Hag- vagnar og Hópbílar farsæl fyrir- tæki. Gísli seldi bæði fyrirtækin árið 2016 og fullkomnaði þannig ævistarf sitt. Gísli fæddist ekki með silfur- Gísli Jens Friðjónsson 20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2022

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.