Morgunblaðið - 11.10.2022, Side 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2022
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Mér sýnist allt stefna í að þing
Hringborðs norðurslóða verði öfl-
ugra en nokkru sinni fyrr þrátt fyrir
ýmsar erfiðar aðstæður,“ segir Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, fyrrverandi
forseti Íslands og forsvarsmaður
Arctic Circle, sem sett verður í
Hörpu á fimmtu-
dag.
Þing Hring-
borðs norður-
slóða, Arctic
Circle, verður
haldið bæði í
Hörpu og á
Reykjavík Edi-
tion-hótelinu frá
fimmtudegi og
fram á sunnudag.
Þingið verður enn
fjölmennara en í fyrra og ekki skortir
viðburðina. Þar verða yfir 200 mál-
stofur með um 600 ræðumönnum.
Áætlað er að yfir 2.000 manns frá
nærri 70 löndum taki þátt í þinginu.
Meðal gesta og þátttakenda eru
þjóðarleiðtogar, forystumenn vís-
indastofnana, fyrirtækja, umhverf-
issamtaka og frumbyggjasamfélaga.
Af nafntoguðum gestum má nefna
Hákon, krónprins Noregs, og Mary
Simon, þjóðhöfðingja Kanada, í um-
boði Bretakonungs, en hún er fyrsti
frumbygginn sem gegnir embætti
þjóðhöfðingja Kanada.
Öflugar sendinefndir koma
Ólafur Ragnar segir í samtali við
Morgunblaðið að Harpa og Editon-
hótelið verði sameiginlegt þingsvæði
og það verði iðandi af mannlífi í þrjá
daga. Hann segir að auk málstofa og
fyrirlestra verði fjöldi annarra við-
burða á þinginu, svo sem móttökur,
fundir og listsýningar um málefni
tengd norðurslóðum, loftslagsbreyt-
ingum, hreinni orku, auðlindum hafs-
ins og fleiri sviðum.
„Með þessu þingi held ég að Arctic
Circle festi sig í sessi, sem ekki að-
eins stærsti alþjóðlegi viðburður
norðurslóða á hverju ári heldur einn-
ig sem eitt af helstu fjölþjóðlegu
þingum sem haldin eru í Evrópu ár
hvert. Það er ánægjulegt að Ísland sé
nú griðastaður og samræðuvett-
vangur fyrir öll þessi brýnu mál,
hreina orku, samfélagshætti, menn-
ingu og fjölmargt annað.“
Hann kveðst sáttur við að þunga-
vigtarfólk komi hingað sérstaklega
vegna Hringborðsins og getur þess
að tíðindi felist í komu sumra gesta.
„Hingað koma öflugar sendinefndir,
bæði frá Indlandi og Bandaríkjunum,
og Arctic Circle verður fyrsti vett-
vangurinn þar sem þessi lönd kynna
nýjar norðurslóðastefnur sínar.
Stefna Bandaríkjanna var aðeins gef-
in út fyrir nokkrum dögum síðan.“
Engir fulltrúar verða á þinginu frá
Rússlandi að þessu sinni. Ólafur seg-
ir að það sé ekki aðeins vegna stríðs-
reksturs þeirra í Úkraínu því Rússar
hafi á undanförnum árum dregið úr
þátttöku í ráðstefnum á þessu sviði.
Þannig hafi Rússar ekki sent fulltrúa
á Arctic Circle í fyrra. „Eftir að
Rússar létu af formennsku í Norður-
skautsráðinu hafa þeir í reynd verið
að skapa sér stöðu fjarri alþjóðlegum
vettvangi af þessu tagi, áður en þetta
hræðilega stríð hófst,“ segir hann.
Síðustu daga hefur mátt heyra
hressilegar auglýsingar í útvarpi
sem Ólafur talar inn á og hvetur fólk
til að koma í „partí í Hörpu“. Hann
hlær við þegar þetta er nefnt við
hann og segir að unga fólkið, sem
stýrir skrifstofunni hjá Arctic Circle,
hafi platað sig til að tala inn á auglýs-
ingarnar.
Færeyskt partíþema
„Ástæðan fyrir því að við köllum
þetta partí er að þetta er ekki bara
alvarlegur umræðuvettvangur. Þó að
hér verði 200 málstofur, 600 ræðu-
menn og forystufólk frá um 70 lönd-
um mun Harpa líka breytast í torg
þar sem maður hittir mann. Hér
verður iðandi mannlíf frá níu á
morgnana og fram til tíu eða ellefu á
kvöldin. Hér verða líka skemmtileg-
heit og gleðskapur,“ segir hann.
Ólafur getur þess sérstaklega að á
lokakvöldi þingsins muni Færey-
ingar bjóða öllum þátttakendum til
fagnaðar á Norðurbryggju Hörpu.
Þar verður leikin færeysk tónlist og
boðið upp á færeyskan mat og bjór.
„Í fyrra vorum við með slíkt kvöld
helgað Grænlandi og það var alveg
ógleymanlegt. Færeyingar eru mikl-
ir gleðskaparmenn og munu eflaust
standa fyrir sínu þetta kvöld.“
Öflugt þing, iðandi mannlíf og
færeyskt fjör á Arctic Circle
- Þing Hringborðs norðurslóða sett í Hörpu á fimmtudag - Yfir 2.000 gestir
Morgunblaðið/Eggert
Arctic Circle Um 1.300 þátttakendur voru samankomnir í Hörpu í fyrra en búist er við því að þeir verði yfir 2.000 í
ár. Gestir þingsins koma frá um 70 löndum og verður væntanlega mikið líf í Hörpu þá þrjá daga sem það stendur.
Barnaheill taka heilshugar undir
ákall nemenda um viðbrögð og for-
varnir gegn kynferðisofbeldi. Telja
samtökin að fræða þurfi starfsfólk,
kennara og stjórnendur um kyn-
ferðisofbeldi og hvernig eigi að
bregðast við því.
„Þá er ekki síður mikilvægt að
jafnréttis- og kynjafræði sé kennd á
öllum skólastigum líkt og nemendur
hafa gert kröfu um. Nauðsynlegt er
að nemendur hafi þekkingu á mik-
ilvægi þess að setja sér mörk og
virða þau mörk sem aðrir setja sér í
samskiptum auk þess að vita hvert
hægt sé að leita,“ segir m.a. í yfirlýs-
ingu samtakanna. Þá bjóða samtökin
upp á fræðslu sem þau telja að eigi
fullt erindi inn í skólastarf í kjölfar
þeirrar umræðu sem hefur verið í
samfélaginu að undanförnu.
Taka und-
ir ákall
nemenda
Meðal gesta á þingi Arctic Circle verða
Hákon krónprins Noregs og Mary Sim-
on landstjóri Kanada í umboði Breta-
konungs. Einnig taka þátt í þinginu for-
seti Eistlands, Alar Karis, og forsætis-
ráðherra Grænlands, Múte B. Egede,
auk fjölda ráðherra frá ýmsum löndum.
Þannig verða Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra, Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráð-
herra, Guðlaugur Þór Þórðarson orku-
og loftslagsráðherra og Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráð-
herra auk Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur háskóla-, iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra meðal þátttakenda ásamt fjölda annarra úr vísindasam-
félagi og viðskiptalífi Íslendinga.
Fjölmargir góðir gestir í Hörpu
ÚTLIT FYRIR FJÖRUGAR UMRÆÐUR OG FUNDAHÖLD
Hákon
krónprins
Mary Simon
Ólafur Ragnar
Grímsson
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Alls hafa 84 einstaklingar gist í
fjöldahjálparstöðinni í Borgartúni
frá því hún var opnuð á þriðjudag í
síðustu viku. Atli Viðar Thorsten-
sen, sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða
krossins, segir vel hafa gengið að
taka á móti fólkinu og eins að finna
önnur úrræði fyrir þá sem í hjálp-
arstöðina hafa leitað.
Í Borgartúni er gistipláss fyrir
rúmlega 100 manns en í gær voru
þar staddir 24 flóttamenn. Helgin
var að sögn Atla nokkuð annasöm.
„Það komu sjö inn á laugardag og
36 á sunnudag og það gistu 42 að-
faranótt mánudags.“
Fjöldahjálparstöðin, sem er á
vegum Rauða krossins, er hugsuð
sem tímabundið úrræði á meðan
annars húsnæðis er leitað. Atli segir
að Vinnumálastofnun hafi gengið
vel að koma fólki í önnur úrræði.
Það hafi enginn þurft að dvelja í
fjöldahjálparstöðinni í þrjá sólar-
hringa eða lengur. Margir sem þar
gistu í fyrrinótt voru á leið annað en
þó var búist við að aðrir kæmu í
staðinn.
„Við leitumst alltaf við að gera
þjónustuna betri. Við mælum
ánægju fólks og sú könnun hefur
komið mjög vel út. Svo erum við að
setja upp barnvænt svæði. IKEA
hefur gefið húsgögn og annan bún-
að í það. Þannig komum við enn
betur til móts við börn,“ segir Atli.
Flóttamenn hafa streymt hingað
til lands undanfarnar vikur, um
fjögur hundruð sóttu um hæli í
september, og því þarf að útvega
mörgum húsaskjól.
Alls 84 gist í fjöldahjálparstöð
- Erilsöm helgi að baki í fjöldahjálparstöðinni í Borgartúni - Aðfaranótt mánu-
dags gistu þar 42 flóttamenn - Gengur vel að koma fólki í annað húsnæði
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Borgartún Fjöldahjálparstöðin er aðeins hugsuð sem skammtímaúrræði.
„Við fengum
kynningu á fjöl-
miðlaumhverfinu
bæði í Noregi og
Danmörku,
stuðningi við
einkarekna fjöl-
miðla, skilyrðum
sem ríkisfjöl-
miðlar búa við og
afstöðu blaða-
mannafélaga og
fjölmiðlafyrirtækja til þessa um-
hverfis,“ segir Bryndís Haralds-
dóttir, formaður allsherjar- og
menntamálanefndar Alþingis.
Nefndin fór til Noregs og Danmerk-
ur og kynnti sér m.a. stöðu fjölmiðla
í þessum nágrannalöndum okkar.
„Bæði Noregur og Danmörk setja
háar fjárhæðir til stuðnings einka-
reknum fjölmiðlum,“ segir Bryndís.
Hún segir að í Noregi sé sett það
skilyrði fyrir stuðningi við fjölmiðla
að þeir selji áskriftir. Sú krafa er
ekki gerð í Danmörku.
Ríkisfjölmiðlarnir í þessum lönd-
um selja ekki auglýsingar sem birt-
ast í ríkisreknu stöðvunum. Rekstur
fréttaþjónustu utan Óslóar hefur
verið boðin út í Noregi og einkarek-
inn fjölmiðill í Bergen, TV2, tekið
hana að sér með samningi við ríkið.
Sömuleiðis á danska ríkið TV2 í
Danmörku en sú stöð er rekin á við-
skiptalegum forsendum og er á aug-
lýsingamarkaði.
Bryndís segir að löng hefð sé fyrir
stuðningi við einkarekna fjölmiðla í
Noregi og Danmörku. Upphaflega
beindust þeir að blaðaútgáfu en nú
hafa styrkirnir verið lagaðir að
breyttu fjölmiðlaumhverfi. Áhersla
er lögð á stuðning við héraðsfrétta-
blöð.
„Hugmyndafræðin þarna gengur
út á að þetta sé í raun stuðningur við
lýðræðið og lítil málsvæði,“ segir
Bryndís. Hún segir að í báðum lönd-
unum hafi verið mikill áhugi á að
segja íslensku þingnefndinni frá sýn
þeirra á samfélagsmiðla og bylting-
una sem þeim fylgir.
Stuðningur við einkarekna fjöl-
miðla á Íslandi hefur verið talsvert
ræddur undanfarin ár. Ráðherra
málaflokksins, Lilja Alfreðsdóttir
menningar- og viðskiptaráðherra
sagði í febrúar sl. að hún vildi líta til
Danmerkur varðandi stuðning við
fjölmiðla. Ríkisútvarp Dana væri
ekki á auglýsingamarkaði og þar
væru greiddir styrkir til einkarek-
inna fjölmiðla. gudni@mbl.is
Styðja við
frjálsa
fjölmiðla
- Styrkir lýðræðið
og litlu málsvæðin
Bryndís
Haraldsdóttir