Morgunblaðið - 11.10.2022, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2022
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Þýskir fjölmiðlar greindu frá því í
gær að Nancy Faeser, innanríkis-
ráðherra Þýskalands, vildi víkja
Arne Schönbohm, yfirmanni net-
öryggisstofnunar þýska alríkisins,
BSI, til hliðar vegna meintra tengsla
hans við leyniþjónustustofnanir
Rússlands.
Sögðu heimildir AFP-fréttastof-
unnar að brottreksturinn stæði til,
þar sem þörf væri aukins viðbúnaðar
gagnvart mögulegum skemmd-
arverkum og fjölþáttaógnum frá
Rússlandi.
Fréttaþátturinn ZDF Magazine
Royale, þar sem farið er yfir fréttir
vikunnar í gamansömum tón, fór á
föstudaginn yfir tengsl Schönbohms
við fyrirtækið Protelion. Það er í eigu
rússneska fyrirtækisins Infotecs,
sem hefur verið í viðskiptum við
rússnesku leyniþjónustuna FSB.
Þýskir fjölmiðlar segja að fátt nýtt
hafi komið fram í þættinum, þar sem
vitað hafi verið um tengsl Schön-
bohms við Protelion. Stofnað var til
þeirra þegar hann vann fyrir ráðgjaf-
arfyrirtæki um netöryggi í Þýska-
landi, en Schönbohm segist hafa slit-
ið tengslin þegar hann tók við BSI.
Faeser sagði að innanríkisráðu-
neytið væri að rannsaka málið og „öll
nauðsynleg skref“ sem mögulega
þyrfti að taka vegna málsins. Sagði
hún að Þýskaland væri viðkvæmt
fyrir netárásum, sér í lagi vegna
þeirrar ógnar sem stafaði af innrás
Rússa í Úkraínu, og að gera þyrfti
allar mögulegar varúðarráðstafanir
gegn þeirri ógn.
AFP/Bernd von Jutrczenka
Netöryggi Arne Schönbohm, yf-
irmaður þýskra netöryggismála.
Yfirmaður netöryggismála
settur af vegna Rússatengsla
- Sagður hafa átt í tengslum við fyrirtæki sem tengist FSB
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Vladimír Pútín Rússlandsforseti hét
því í gær að sífellt harðari aðgerðum
yrði beitt til þess að svara árásum
Úkraínumanna, eftir að Rússaher
skaut rúmlega 80 eldflaugum á borg-
araleg skotmörk vítt og breitt um
Úkraínu. Að minnsta kosti 11 manns
fórust í árásunum og 89 særðust, en
eldflaugaárásirnar voru sagðar
hefnd Rússa fyrir árásina á brúna
yfir Kertsj-sundið um helgina.
Pútín fordæmdi árásina á sunnu-
dagskvöldið sem „hryðjuverk“ sem
beinst hefði að „borgaralegum inn-
viðum“ Rússlands, en brúin hefur
verið notuð til hergagnaflutninga frá
fyrsta degi innrásarinnar. Þá sagði
Pútín árásina verk úkraínsku leyni-
þjónustunnar.
Pútín ræddi svo árásina frekar á
sérstökum fundi rússneska þjóðar-
öryggisráðsins, sem var sjónvarpað í
beinni útsendingu í gær. „Enginn
þarf að efast um að ef tilraunir til
hryðjuverka halda áfram verður
svar Rússlands mjög harðskeytt,“
sagði Pútín.
Dmitrí Medvedev, fyrrverandi
forseti Rússlands og einn helsti
bandamaður Pútíns, varaði sömu-
leiðis við því að árásirnar í gær væru
einungis fyrsta árásarlotan af mörg-
um sem Rússar ætluðu að fremja.
Sagði Medvedev að markmið Rússa
væri að knýja á um „algjör stjórnar-
skipti“ í Úkraínu.
Úkraínuher sagði í yfirlýsingu um
miðjan daginn í gær að Rússar hefðu
skotið 83 eldflaugum á skotmörk vítt
og breitt um Úkraínu, en að rúmlega
40 þeirra hefðu verið skotnar niður.
Þá hefðu Rússar einnig sent íranska
dróna frá Hvíta-Rússlandi til að gera
árásir á skotmörk.
Volodimír Selenskí Úkraínufor-
seti birti sömuleiðis myndband af sér
við forsetaskrifstofuna í Kænugarði,
þar sem hann varaði fólk við því að
árásirnar myndu halda áfram yfir
daginn og hvatti það til þess að leita
sér öruggs skjóls.
„Þetta er erfiður morgunn. Við er-
um að glíma við hryðjuverkamenn.
Urmull eldflauga og íranskra Sha-
hed-dróna,“ sagði Selenskí, og bætti
við að skotmörk Rússa væru af
tvennum toga, annars vegar raf-
orkustöðvar og hins vegar fólkið
sjálft. „Þeir vilja ofsahræðslu og
ringulreið, þeir vilja eyðileggja orku-
kerfið okkar,“ sagði Selenskí.
Lenti í nágrenni leikvallar
Héraðsstjórar í nokkrum héruð-
um Úkraínu greindu frá því að raf-
magn lægi niðri eftir eldflaugaárás-
irnar, þar sem þær hefðu náð að
hæfa raforkustöðvar og aðra borg-
aralega innviði Úkraínu. Lá rafmagn
alfarið niðri í fjórum héruðum, en
gert var ráð fyrir að viðgerðum yrði
lokið í gærkvöldi.
Nokkrar eldflaugar lentu í
Shevtsjenkivskí-hverfi Kænugarðs,
en þar eru flestar af stjórnarbygg-
ingum Úkraínu. Sögðu borgaryfir-
völd að háskólinn, söfn og tónleika-
höll hefðu orðið fyrir skemmdum. Að
minnsta kosti ein eldflaug lenti stein-
snar frá leikvelli og myndaðist mikill
gígur þar sem hún lenti. Vítalí
Klitskó, borgarstjóri Kænugarðs,
hvatti fólk til þess að forðast ferða-
lög til borgarinnar nema brýna
nauðsyn bæri til.
Rafmagns- og heitavatnslaust var
í borginni Lvív í vesturhluta Úkra-
ínu eftir eldflaugaárásir Rússa á
borgina, sem og í borginni Súmí, en
búið var að gera við skaðann þar um
eftirmiðdaginn í gær.
Dmítró Kúleba, utanríkisráðherra
Úkraínu, sagði á Twitter-síðu sinni
að Rússar hefðu ekki verið „egndir“
til árásanna, heldur væru þær ein-
faldlega svar Rússa við því hversu
dapurlega þeim gengi á vígvellinum.
„Pútín er örvæntingarfullur vegna
ósigranna á vígvellinum og beitir
eldflaugahryllingi til að reyna að
breyta gangi stríðsins sér í vil,“ sagði
Kúleba.
Flýtt fyrir loftvarnarkerfi
Stjórnvöld á Vesturlöndum for-
dæmdu árásirnar harðlega í gær.
Annalena Baerbock utanríkisráð-
herra Þýskalands sagði að þær hefðu
verið viðurstyggilegar. Sagði Baer-
bock að Þjóðverjar myndu styrkja
loftvarnir Úkraínu vegna árásanna.
Þýsk stjórnvöld tilkynntu
skömmu síðar að þau myndu senda
Iris-T-loftvarnakerfið til Úkraínu á
allra næstu dögum, en upphaflega
stóð til að það yrði tekið í gagnið í
fyrsta lagi um næstu áramót.
Christine Lambrecht varnarmála-
ráðherra Þýskalands sagði árásirnar
í gær hins vegar sýna nauðsyn þess
að flýta fyrir uppsetningu kerfisins.
Gabrielius Landsbergis utanríkis-
ráðherra Litháens sagði að tími væri
kominn til þess að senda meira en
bara loftvarnir. Nú þyrfti að láta
Úkraínumönnum í té öll þau vopn
sem þeir þyrftu til að verja land sitt
og þjóð gegn morðæði Pútíns og
hryðjuverkaríkis hans.
Stjórnvöld í Moldóvu fordæmdu
einnig árásirnar, en að minnsta kosti
þrjár rússneskar stýriflaugar fóru í
gegnum lofthelgi landsins á leið sinni
til skotmarka í Úkraínu. Kölluðu
stjórnvöld í Moldóvu sendiherra
Rússlands á teppið vegna þessa til að
krefjast útskýringa.
Tákn um veikleika Pútíns
James Cleverly utanríkisráðherra
Bretlands sagði að árásir Rússa í
gær væru óásættanlegar. „Þær sýna
veikleika Pútíns, ekki styrk,“ sagði
Cleverly á twitter-síðu sinni, en Liz
Truss forsætisráðherra Breta ræddi
við Selenskí í gær og hét frekari
stuðningi vegna árásanna.
Antonio Guterres framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna sagði
árásirnar óviðunandi stigmögnun á
Úkraínustríðinu, og Emmanuel
Macron Frakklandsforseti sagði
þær marka vendipunkt á eðli stríðs-
ins.
Bæði Macron og Scholz ræddu við
Selenskí símleiðis í gær og hétu þar
frekari stuðningi við Úkraínumenn í
formi hergagna og vista. Þá munu
leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims
ræða við Selenskí í dag um árásirnar
og viðbrögð við þeim.
Hefndu sín á óbreyttum borgurum
- Rússar skutu eldflaugum á borgaraleg skotmörk vítt og breitt um Úkraínu - Að minnsta kosti 11
látnir og 89 særðir eftir árásirnar - Skotið á orkuver og aðra innviði - Fordæma stríðsglæpi Rússa
AFP/Arman Soldin
Kænugarður Lögreglumenn og sjúkraliðar sjást hér í miðborg Kænugarðs eftir að Rússar höfðu skotið eldflaugum á borgaraleg skotmörk víða um land.
AFP/Anatolii Stepanov
Gagnsókn Úkraínskur skriðdreki skýtur á víglínur Rússa í Donetsk, þar
sem gagnsókn Úkraínuhers heldur áfram þrátt fyrir eldflaugaárásirnar.