Fréttablaðið - 07.01.2023, Blaðsíða 12
Hörður Snævar
Jónsson
hordur
@frettabladid.is
Ljóst er að víða er pottur
brotinn í íslenskri knatt
spyrnu og margt þarf að
bæta. Grétar Rafn Steinsson
tók fram marga áhugaverða
punkta í skýrslu sinni sem
hann skilaði til KSÍ síðasta
sumar.
fotbolti Skýrslan sem Grétar
Rafn Steinsson skilaði til KSÍ í júlí
varð ekki opinber fyrr en Frétta
blaðið hóf að birta hana á aðfanga
dag. Æðstu stjórnendur KSÍ höfðu
setið með skýrsluna á borði sínu
en ákveðið að ekki þyrfti að hafa
neinar hraðar hendur í að vinna
úr henni og taka einhver atriði til
greina og bæta þau. Allt fór á fulla
ferð eftir birtingu Fréttablaðsins og
sambandið hóf að senda skýrsluna
út á aðildarfélögin.
Fimm mánuðum eftir að Grétar
Rafn skilaði skýrslu sinni til KSÍ
hafði engin almennileg vinna farið
fram, stjórn KSÍ hafði að stærstum
hluta ekki hugmynd um skýrsluna
og það hafði starfsfólk sambandsins
ekki heldur. Ljóst er að þarna brugð
ust þeir sem ráða hjá KSÍ, að sitja
með skýrsluna óhreyfða á borði
sínu í f leiri mánuði er merki um
slæleg vinnubrögð. Gera þarf betur
í málefnum sem skipta fótboltann í
landinu máli.
Undanfarið ár hefur sambandið
haft allan fókus á málefnin utan
vallar, tekið var á þeim vandamál
um sem höfðu komið upp og farið
var að vinna úr þeim. Knattspyrnu
hreyfingin er hins vegar farin að
kalla eftir því að sambandið setji
meiri einbeitingu á stöðuna innan
vallar. Karlalandsliðið var í frjálsu
falli í tólf mánuði en hefur sýnt
örlitlar bætingar, kvennalandsliðið
sýnir engar bætingar og staðan í
íslenskum fótbolta er almennt
nokkuð slæm.
Skýrsla Grétars ætti að vera gott
tæki fyrir sambandið og hreyfing
una til að ræða málin og setja meiri
einbeitingu á málin innan vallar.
Ekki að stinga hausnum ofan í sand
inn og vona að skýrslan gleymist.
Það er fullt af punktum í skýrslu
Grétars þar sem bent er á hluti sem
þarf að bæta og á að bæta. Eitt af því
er að ráða inn f leira starfsfólk hjá
KSÍ, til þess að það verði hægt þarf
sambandið að skoða hvernig það fer
með fjármuni sína.
Eitt af því sem hægt væri að byrja
á er að láta félög landsins greiða
fyrir dómarakostnað. Í afreks
þjálfun eins og sambandið á að
standa fyrir heldur það engu vatni
að sambandið borgi fyrir dómara
kostnað í neðstu deildum fótboltans
hér á landi. Dómarakostnaður var
samkvæmt heimildum nálægt 300
milljónum króna á síðasta ári.
Taka þarf þá umræðu hvort ekki
eigi að setja þátttökugjald á öll
Slæleg vinnubrögð í Laugardal
Sumir
kunna að
hafa aðra
skoðun en
Grétar en
aldrei í
lífinu hefur
orðið
framþróun
í neinu
nema að
umræða
fari fram.
KSÍ er vandi á höndum að leiða hreyfinguna í gegnum nauðsynlegar breytingar. Fréttablaðið/Ernir
félög í deildum hér landi, 2 millj
ónir króna á lið í efstu deildum og
svo lækkar upphæðin eftir því sem
neðar er farið gæti virkað. Þá væru
til fjármunir til að nýta í faglegt
starf KSÍ og auka fjölda starfsmanna
KSÍ sem eru sárafáir í öllum saman
burði við önnur lönd. Þetta yrði líka
til þess að bumbuboltafélög færu
frekar í utandeildir þar sem þau
eiga frekar heima, eðlilega sitja þau
sem fastast í keppnum KSÍ þegar
kostnaðurinn er nánast enginn.
Sá punktur Grétars að á Íslandi
sé byrjað á röngum enda stuðaði
marga. Stærstum hluta tekna
félagsliða er varið í laun í stað þess
að byggja til framtíðar, við borgum
atvinnumannalaun í áhugamanna
umhverfi eins og Grétar orðaði það.
Þessi staðhæfing og í raun staðreynd
frá jafn sterki rödd og Grétari er
nauðsynleg fyrir íslenskan fót
bolta. Launaskrið hefur verið í fót
boltanum hér á landi undanfarin
ár en gæðin hafa síst orðið meiri.
Spurning er hvort hægt sé að nota
fjármunina betur því mörg lið í
Bestu deild ráða varla við gerða
samninga, borga seint og illa og eru
í tómri klípu.
Það á ekki að þurfa að vera óþægi
legt að ræða hlutina, sumir kunna
að hafa aðra skoðun en Grétar en
aldrei í lífinu hefur orðið framþróun
í neinu nema að umræða fari fram.
Það hefur oftar en ekki verið einn
stærsti galli íþróttahreyfingarinnar
að umræðan um málin, stöðuna og
hvort vegferðin sé rétt eða röng fer
sjaldan fram. Fari hún fram er það
iðulega ekki á opnum vettvangi.
Það er vonandi að sambandið
og hreyfingin nýti vinnu Grétars,
það er ekki tilviljun að hann hefur
starfað hjá Tottenham og Everton á
undanförnum árum og fleiri stórlið
í Evrópu hafa sóst og sækjast eftir
kröftum hans. Hann hefur þekk
ingu á því sem hann skrifar um og
það er sjálfsögð krafa að KSÍ nýti
þá vinnu betur sem það sjálft réð
Grétar til að vinna en gert hefur
verið undanfarna mánuði. n
hordur@frettabladid.is
fótbolti Alandslið karla leikur tvo
vináttulandsleiki í Algarve í Portú
gal á næstu dögum. Fyrri leikurinn
verður gegn Eistlandi á morgun,
sunnudag, á Estadio Nora og sá
seinni á Estadio Algarve 12. janúar
gegn Svíþjóð. Verkefnið er fyrir þá
leikmenn sem alla jafna eiga ekki
stórt hlutverk í hópnum. Þar sem
leikurinn er ekki á alþjóðlegum
leikdögum eru ekki allir leikmenn í
boði fyrir Arnar Þór Viðarsson.
Tveir leikmenn gætu leikið sína
fyrstu landsleiki í þessu verkefni
en Aron Bjarnason hefur sýnt góða
takta með Sirius í sænsku úrvals
deildinni. Nökkvi Þeyr Þórisson
sem varð að stjörnu í Bestu deild
inni í sumar með KA er einnig nýliði
í hópnum. Nökkvi raðaði inn mörk
um fyrir KA og var seldur til Belgíu
þar sem hann hefur farið vel af stað
í næstefstu deild þar í landi.
Um er að ræða síðasta verkefni
landsliðsins fyrir undankeppni Evr
ópumótsins sem hefst í mars. Leik
menn í hópnum í þessu verkefni
hafa þannig tækifæri til að heilla
þjálfarateymið til að eiga möguleika
á að vera í hópnum þegar alvaran
byrjar. n
Tækifæri til að
sanna ágæti sitt
Hópurinn í verkefninu
n Frederik Schram
n Hákon Rafn Valdimarsson
n Patrik Sigurður Gunnarsson
n Andri Lucas Guðjohnsen
n Arnór Ingvi Traustason
n Aron Bjarnason
n Aron Sigurðarson
n Bjarni Mark Antonsson
n Dagur Dan Þórhallsson
n Damir Muminovic
n Danijel Dejan Djuric
n Davíð Kristján Ólafsson
n Guðlaugur Victor Pálsson
n Höskuldur Gunnlaugsson
n Ísak Snær Þorvaldsson
n Júlíus Magnússon
n Kristall Máni Ingason
n Nökkvi Þeyr Þórisson
n Róbert Orri Þorkelsson
n Sveinn Aron Guðjohnsen
n Valgeir Lunddal Friðriksson
n Viktor Örlygur Andrason
Landsliðið leikur æfingaleiki í Portú-
gal. Fréttablaðið/ anton brink
aron@frettabladid.is
Handbolti Lokahnykkurinn á
undirbúningi íslenska karlalands
liðsins í handbolta hefst í dag er
liðið mætir Þjóðverjum í fyrri leik
liðanna í tveggja leikja törn. Upp
selt er á báða leiki sem fara annars
vegar fram í Bremen og hins vegar
í Hannover.
Eins og staðan er í dag, fyrir kom
andi æfingaleiki, eru allir leikmenn
landsliðsins heilir og vonast Guð
mundur Guðmundsson, landsliðs
þjálfari íslenska liðsins, til að svo
verði einnig eftir leikina en Ísland
hefur síðan leik á HM í handbolta
þann 12. janúar næstkomandi.
„Við höfum auðvitað lent í því
áður að leikmenn meiðist svona
skömmu fyrir mót, það er alltaf
eitthvað sem getur gerst,“ segir Guð
mundur við Fréttablaðið. „Hand
bolti er líka þannig íþrótt að það er
hart tekist á. Við vonum bara að við
losnum við allt svona.“
Ísland er í riðli með Portúgal,
Ungverjalandi og SuðurKóreu á
HM og hefur Guðmundur, ásamt
sínu aðstoðarfólki reynt að greina
þau lið í þaula. Þessi lið eru einnig
að leika sína síðustu leiki fyrir HM
þessa dagana.
Hversu mikið er að marka þá?
„Við höfum auðvitað gert ráð
stafanir til að ná í alla þá leiki sem
við getum komist yfir. Við fáum
leiki Portúgal núna um helgina,
höfum nú þegar fengið upptökur úr
leikjum SuðurKóreu en það hefur
reynst erfiðara að fá upptökur frá
leikjum Ungverjalands. Það er ekki
einfalt mál.“
Uppselt er á þessa tvo leiki Þýska
lands og Íslands í dag og á morgun
og von á afar góðri stemningu á
pöllunum, góðir undirbúningsleikir
fyrir íslenska landsliðið sem spáð er
góðu gengi á HM.
Þá verður leikur dagsins í dag
ansi sérstakur fyrir Alfreð Gísla
son, landsliðsþjálfara Þýskalands,
en þetta er í fyrsta skipti á ferlinum
sem hann mætir Íslandi í leik. n
Von á stuði og stemningu í Þýskalandi í dag
Miklar væntingar eru gerðar til landsliðsins á HM en um helgina sér þjóðin
hvar liðið stendur í raun og veru. Fréttablaðið/anton brink
12 Íþróttir 7. janúar 2023 LAUGARDAGURÍþRóttiR Fréttablaðið 7. janúar 2023 LAUGARDAGUR