Fréttablaðið - 07.01.2023, Blaðsíða 22
Á fyrstu plötu sinni, Mod-
ern Age Ophelia, fetar
Anna Sóley Ásmundsdóttir
nýjar og spennandi leiðir á
mörkum fortíðar og nútíðar
og á forvitnileg samtöl við
persónur bókmennta- og
mannkynssögunnar.
jme@frettabladid.is
Anna Sóley segir plötuna Modern
Age Ophelia sameina tónlistarkon-
una og bókmenntafræðinginn í
sér. „Ég fór í djasssöngnám í ArtEZ í
Arnheim í Hollandi og útskrifaðist
2021. Eftir það fór ég í eins árs MA-
nám í Utrecht. BA-ritgerðin mín í
bókmenntafræði úr HÍ fjallaði um
lagatexta. Þar greindi ég lagatexta
Bob Dylan með greiningartækjum
úr tónlistinni og bókmenntafræð-
inni,“ segir Anna Sóley.
Innblástur úr ólíkum áttum
Breiðskífuna segir Anna vera undir
áhrifum nútímadjass, grúvs, popps
og alþýðutónlistar. „Ég fékk inn-
blástur úr ólíkum tónlistargrein-
um og blanda saman. Í sumum
lögum eru ákveðin spunaelement
sem tala til djassstefnunnar á
meðan annars staðar má greina
áhrif popp- og alþýðutónlistar.
Platan á líka rætur í söngvaskálda-
stefnunni,“ segir Anna Sóley.
Á plötunni vinnur hún meira
með texta en áður. „Áður en ég fór
út í nám gaf ég út tvær smáskífur
sem voru undir áhrifum grúv-tón-
listar. Lögin á Modern Age Ophelia
eru aðeins öðruvísi. Þar er meiri
áhersla á texta og raddbeitingin
er ólík. Ég nota líka mismunandi
aðferðir við að semja lögin á
plötunni. Oftast hef ég byrjað á
hljómaframvindu eða litum þegar
ég sem lag. Út frá því koma laglína
og texti hægt og rólega saman við.
Hér gerði ég margar ólíkar til-
raunir. Í sumum tilfellum byrjaði
ég á að semja laglínu, hljómsetti
eftir á og setti svo texta við. Sums
staðar kom þetta allt á sama tíma.
Og í titillagi plötunnar skrifaði ég
fyrst textann og hugsaði svo eftir á
að hann gæti virkað sem lagatexti.“
Samtöl við sögupersónur
„Ég hef alltaf haft gaman af sögum
og sæki innblástur í þær. Ég sæki
líka í persónur, skáldaðar eða raun-
verulegar. Síðasta lagið á plötunni,
Echo, er innblásið af sögunni af
Ekkó og Narkissosi og persónan
í Brighter Day er lauslega byggð á
Pollýönnu. Þetta eru textaleg og
tónlistarleg samtöl við persónur
sögunnar en eins og titillinn gefur
til kynna eru þau með túlkun frá
okkar tíma. Ég er að skrifast og
syngjast á við persónur, sem hafa
allar talað til mín á einhverjum
tímapunkti í lífi mínu.
Það er svo margt sem maður
hefur hlustað á og lesið sem hefur
bæði bein og óbein áhrif á mann
þegar maður er að skrifa og semja.
Ég hef líka lengi haft áhuga á
mannlegu eðli, hvað talið er eðli-
legt á hverjum tíma fyrir sig og
hvar mörkin þar á milli liggja.“
Modern Age Ophelia er titillag
plötunnar en titillinn kemur aldrei
fyrir í laginu. „Í þessu lagi á ég tón-
listarlegt og bókmenntalegt sam-
tal við Ófelíu, sem drukknaði, eins
og frægt er, í leikritinu Hamlet eftir
Shakespeare. Vatnið finnst mér
vera táknrænt fyrir tilfinningar,
og í sögunni fer hún yfir ákveðin
mörk. En ég g vil ekki kafa of djúpt
í merkingu textans svo ég taki ekki
túlkunina frá hlustendum.“
Tónleikar á þriðjudaginn
Platan kom út á streymisveitum
í september og hefur hlotið þar
góða hlustun. Á þriðjudaginn
verða svo útgáfutónleikar í Björtu-
loftum í Hörpu og segist Anna
Sóley vera spennt að flytja lögin
fyrir áhorfendur ásamt bróður
sínum Mikael Mána Ásmundssyni
á gítar, Birgi Steini Theodórssyni á
kontrabassa, Magnúsi Trygvasyni
Eliassen á trommur, Steingrími
Teague á píanó, hljómborð og
raddir og Tuma Árnasyni á tenór
saxófón.
„Það eru mikil forréttindi að
fá að vinna með svona færum
tónlistarmönnum. Allir nema
Steingrímur spiluðu með mér inn
á plötuna og það er einstaklega
gaman að fá að flytja tónlistina
með þeim aftur á lifandi tón-
leikum. Ef allt gengur að óskum
verður svo hægt að næla sér í
plötuna á vínyl.
Það er mjög góð tilfinning að
vera búin að senda þessi samtöl
frá mér út í heiminn og leyfa þeim
þannig að öðlast eigið líf í hugum
hlustenda. Ég held að það verði
afar notaleg stemning í Björtuloft-
um á þriðjudaginn. Þá geri ég ráð
fyrir að áhorfendur fái tækifæri til
þess að hugsa og líta aðeins inn á
við,“ segir Anna Sóley að lokum. n
Listin að syngjast á við Ófelíur nútímans
Anna Sóley er spennt að flytja lögin af plötunni í Hörpu á þriðjudag.
Fréttablaðið/Valli
Fanney Dóra Veigarsdóttir
byrjaði að prófa að taka inn
Pure Omega-3 frá Good
Routine eftir að hafa upplifað
mikið hárlos. Árangurinn
kom henni virkilega á óvart
en hún hefur ekki þurft að
losa hár úr hárburstanum
sínum í tvo mánuði.
Fanney Dóra eignaðist barn fyrir
19 mánuðum síðan og missti mikið
hár í kringum brjóstagjöfina. Hún
bjóst við að það myndi lagast með
tímanum en hárlosið hélt bara
áfram. Þá talaði hún við vinkonu
sína sem benti henni á að taka inn
Pure Omega-3 frá Good Routine.
„Ég fór fyrst í blóðprufu, en ég
er mikill stuðningsmaður þess að
láta athuga hvaða vítamín maður
þarf áður en maður byrjar að taka
inn bætiefni. Það kom í ljós að mig
vantaði töluvert af vítamínum,“
útskýrir hún.
Í kjölfar blóðprufunnar byrjaði
Fanney Dóra að taka inn Pure
Omega-3 en hún ákvað að taka
líka inn Synergize-Your-Gut fyrir
magaflóruna og Daily-D3 d-víta-
mín, allt frá Good Routine.
„Það er svo mikið af alls kyns
vítamínum á markaðnum og
það er erfitt að átta sig á því hvað
maður á að taka og hvað er betra
en annað. Ástæðan fyrir því að ég
valdi bætiefni frá Good Routine er
að þegar vinkona mín sagði mér frá
þessu merki þá leist mér svo vel á
hvernig bætiefnin eru framleidd og
hver innihaldsefnin eru,“ útskýrir
Fanney Dóra.
„Það skiptir mig máli að það séu
ekki innihaldsefni í þeim vítamín-
um sem ég tek sem ég þekki ekki
eða get ekki auðveldlega fundið út
hver eru.“
Munurinn kom á óvart
Eins og áður segir var Fanney Dóra
búin að glíma við mikið hárlos, en
hún var líka farin að sofa frekar illa
og finna fyrir þreytu.
„Það eru komnir tveir mánuðir
Hárlosvandamálið er úr sögunni
Fanney Dóra segist aldrei hafa fundið eins mikinn mun á sér og eftir að hún
byrjaði að taka inn Pure Omega-3 frá Good Routine. Fréttablaðið/EYÞÓr
Ráðlögð notkun af Pure Omega-3 eru tvö hylki á dag með mat eða vatni.
Ég hef ekki fundið
svona mikinn mun
á mér áður þegar ég tek
inn vítamín. Ég hef alveg
fundið mun, en þetta er
alveg sjáanlegur munur.
Pure
Omega-3
hylkin saman-
standa af ómega-3
fitusýrum í sínu
náttúrulega
formi.
síðan ég byrjaði að taka inn þessi
bætiefni og munurinn sem ég finn
á mér hefur komið mér virkilega á
óvart. Áður fyrr þurfti ég að hreinsa
hár úr hárburstanum mínum að
meðaltali annan hvern dag. En ég
hef ekkert þurfa að gera það síðan
ég byrjaði að taka Omega-3 fyrir að
verða tveimur mánuðum.“
„Ég veit ekki hvort það er blanda
af þessu þrennu, en læknar voru
oft búnir að segja mér að taka inn
Omega-3. Ég hef ekki fundið svona
mikinn mun á mér áður þegar ég
tek inn vítamín. Ég hef alveg fundið
einhvern mun, en þetta er alveg
sjáanlegur munur. Það er líka aug-
ljósara núna því ég var að breyta
um háralit, ég var dökkhærð en
er núna með rautt hár, svo ef ég sé
hár liggja einhvers staðar þá sé ég
það alveg á litnum hvort þetta eru
gömul hár eða ný. Þetta er augljós-
lega að virka fyrir mig.“
Kostir Pure Omega-3
Pure Omega-3 frá Good Routine
inniheldur hæsta styrka af Omega-
3 fitusýrum í hverri skammta-
stærð (1430 mg). Hylkin saman-
standa af ómega-3 fitusýrum í sínu
náttúrulega og stöðuga þríglý-
seríðaformi sem tryggir upptöku í
frumuhimnum.
Pure Omega-3 er framleitt
með einkaleyfisvörðu tækniferli
Flutex™, sem felur í sér fjögurra
stiga sértækt hreinsunarferli. Það
tryggir að þungmálmar og önnur
mengunarefni eru fjarlægð án þess
að notast sé við leysiefni, háan
hita eða aðrar ágengar aðferðir
sem gætu haft áhrif á gæði.
Mælt er með Pure Omega-3 til
að tryggja heilbrigði hjarta, augna,
taugakerfis, húðar, beina og liða-
móta, til að viðhalda eðlilegu
magni lípíða í blóðinu, styrkja
ónæmiskerfið og koma í veg fyrir
ofnæmisviðbrögð og stuðla að
vellíðan þeirra sem neyta ekki
nógu mikils af góðri fitu. Ráð-
lögð notkun eru tvö hylki á dag,
tekin með mat eða vatnsglasi eða
samkvæmt tilmælum sérhæfðs
ráðgjafa. n
Sölustaðir Good Routine eru Hag-
kaup, Lyf & heilsa, Apótekarinn,
Krónan, Fjarðarkaup og www.
goodroutine.i
4 kynningarblað A L LT 7. janúar 2023 LAUGARDAGUR