Fréttablaðið - 07.01.2023, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 07.01.2023, Blaðsíða 56
Sviðslistamaðurinn Rebekka A. Ingimundardóttir rann- sakaði efri árin og þriðja æviskeiðið sem þróaðist út í sviðslistaverkið Ég lifi enn – sönn saga. tsh@frettabladid.is Ég lif i enn – sönn saga sem er frumsýnt í Tjarnarbíói í dag er sjónræn og ljóðræn sýning um hið undarlega ferðalag sem lífið er og þá vissu að við munum öll deyja. Verkið er innblásið af persónulegri reynslu aðstandenda af að fylgja sínum nánustu inn í þriðja ævi- skeiðið og þeirra sem eru staddir í því sjálfir. „Okkur fannst þetta bara svo brýn nauðsyn. Við byrjuðum að vinna í þessu 2019 og síðan þá hefur verið mikil vakning varðandi þriðja æviskeiðið, verðmæti þess og þær aðstæður sem fólk er í,“ segir Rebekka A. Ingimundardóttir, list- rænn stjórnandi verkefnisins. Fór í námskeið í markþjálfun Rebekka starfaði sem kennari á sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands þegar hún fékk hugmynd- ina að verkefninu en hún segir hana hafa kviknað út frá námskeiði í markþjálfun sem hún fór í ásamt öðrum kennurum. „Ég ákvað að fara svo í nám hjá Evolvia og læra markþjálfun og ég staldraði sjálf svolítið við eldra fólk, það talaði enginn um það. Ég var að pæla í því og gerði smá rann- sóknarvinnu, svo bý ég rétt hjá Grund þannig að ég fór bara af stað með hvað myndi hjálpa eldra fólki að vera markþjálfuð inn í næsta dag, næstu viku eða næsta mánuð á þriðja æviskeiðinu,“ segir Rebekka. Um það leyti sem Rebekka var í þessum vangaveltum hringdi leik- konan Þórey Sigþórsdóttir í hana og spurði hvort hún vildi taka þátt í verkefni um að safna saman sögum eldra fólks. „Í því samtali fórum við báðar á f lug um hvernig væri að vinna með að styrkja eldra fólk út frá rödd, líkamsbeitingu og þjálfun. Hvern- ig væri þá að vinna með eldra fólki út frá þessum hugmyndum,“ segir Rebekka. Rebekka og Þórey byrjuðu að móta verkefnið og fengu síðar til liðs við sig leikstjórann Ásdísi Skúladóttur og úr varð nokkurra ára rannsóknarverkefni sem þró- aðist svo út í sýninguna Ég lifi enn. Tölum svo lítið um þetta Er þriðja æviskeiðið kannski eitt- hvað sem er svolítið hulið og lítið fjallað um í samfélaginu? „Já, þar er ég sammála þér. Ég upplifði það í gegnum fólk sem við unnum með og sem aðstandandi, við vitum að við stefnum þangað en við undirbúum okkur ekki fyrir það og það er eins og það sé ákveð- in hunsun í gangi.“ Rebekka bætir því við að hún hafi sjálf nýlega fengið að upplifa þetta sem aðstandandi en móðir hennar lést í fyrra og faðir hennar f lutti á hjúk r unarheimili um svipað leyti. „Við tölum svo lítið um þetta, það er næstum eins og það sé tabú að verða gamall og vera á þessum aldri. Ég heyri rosalega mikið nei- kvætt um það frekar en jákvætt, fólk dettur út af vinnumarkaði mjög snemma eða er sett út í horn. Fyrir mig sem hef búið í tuttugu ár erlendis, í Tékklandi og Hollandi, sé ég að þar er reynsla metin sem verðmæti en hérna á Íslandi er farið eftir kennitölunni sem er undarlegt því við erum svo lítið samfélag.“ Vinnusmiðjur fyrir eldri borgara Er einhver í listræna teyminu á þriðja æviskeiðinu? „Já, Ásdís Skúladóttir sem fylgdi okkur frá fyrsta námskeiðinu sem við héldum í Hæðargarði. Við vorum með vinnusmiðjur sem við héldum sem hétu Augnablik – Ég á mér rödd. Við byrjuðum í Hæðargarði og svo sóttum við um hjá Reykjavíkurborg að fara inn á öll félagsheimili eldri borgara á Reykjavíkursvæðinu og fórum inn á sautján félagsmiðstöðvar með þessa vinnusmiðju.“ Spurð um hvort þetta sé sýn- ing fyrir alla aldurshópa segir Rebek ka verk ið henta fólk i á miðjum aldri, þeim sem eru að nálgast þriðja æviskeiðið sem og yngra fólki. „Þetta er líka fyrir manneskjuna sem er tvítug og hefur áhuga á að kíkja aðeins inn í þennan heim og hefur gaman af ljóðrænu, sjón- rænu og öðruvísi leikhúsi. Ég vona svo sannarlega að bæði eldra fólk, fólk á miðjum aldri og yngra fólk muni njóta þess,“ segir hún. n Við tölum svo lítið um þetta, það er næstum eins og það sé tabú að vera gamall og vera á þessum aldri. tsh@frettabladid.is Miðstöð íslenskra bókmennta hefur úthlutað nýjum styrkjum til þýðinga á íslensku, verk eftir höfunda á borð við Annie Ernaux, Richard Brau- tigan, Lydiu Davis, Erich Kästner, Antoine de Saint-Exupéry og fleiri eru væntanleg í íslenskri þýðingu á næstunni. Nú var úthlutað rúmum 8 milljón- um króna til 24 þýðinga á íslensku en alls bárust 38 umsóknir í í nóvember 2022 í seinni úthlutun ársins. Á meðal verka sem hlutu styrki kennir ýmissa grasa og von er á fjöl- breyttri útgáfu þýðinga á næstunni fyrir börn og fullorðna. Þýtt verður úr ensku, þýsku, frönsku, spænsku, japönsku, hebresku og portúgölsku og eiga lesendur því von á spennandi bókum á íslensku víða að. n Fjöldi nýrra þýðinga væntanlegur Á meðal væntanlegra bóka er Le jeune homme eftir Annie Ernaux, sem hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum 2022, í þýðingu Rutar Ingólfsdóttur. Fréttablaðið/EPa Á meðal verka sem hlutu þýðingastyrki eru: n The Dictionary of Lost Words eftir Pip Williams, í þýðingu Ugga Jónssonar. n Fabian. Die Geschichte eines Moralisten eftir Erich Kästner, í þýðingu Elísu Bjargar Þorsteins- dóttur. n Heaven eftir Mieko Kawakami, í þýðingu Jóns St. Kristjánssonar. n Skandar and the Phantom Rider eftir A.F. Steadman, í þýðingu Ingunnar Snædal. n The Vanishing Half eftir Brit Bennett. Þýðandi: Ragna Sigurðardóttir. n The Prime of Miss Jean Brodie eftir Muriel Spark, í þýðingu Árna Óskarssonar. n Le jeune homme eftir Annie Ernaux, í þýðingu Rutar Ingólfs- dóttur. n Úrval texta eftir Lydiu Davis, í þýðingu Berglindar Ernu Tryggvadóttur. n Panther in the Basement eftir Amos Oz, í þýðingu Árna Óskarssonar. n The Cemetery in Barnes eftir Gabriel Josipovici, í þýðingu Gyrðis Elíassonar. n Litli prinsinn eftir Antoine de Saint-Exupéry, í þýðingu Arn- dísar Lóu Magnúsdóttur. n The Wild Boys eftir William S. Burroughs, í þýðingu Arnar Karlssonar. Nánast tabú að verða gamall Með aðalhlutverk í Ég lifi enn – sönn saga fara leikkonurnar Þórey Sigþórsdóttir, Ingibjörg Gréta Gísladóttir og Halldóra Rósa Björnsdóttir. Mynd/OwEn FiEnE Rebekka A. Ingi- mundardóttir er listrænn stjórn- andi sýningar- innar Ég lifi enn – sönn saga. Fréttablaðið/ valli 28 Menning 7. janúar 2023 LAUGARDAGURFréttablaðiðmenninG Fréttablaðið 7. janúar 2023 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.