Fréttablaðið - 07.01.2023, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 07.01.2023, Blaðsíða 33
Hlutverk Fjarskiptastofu er að stuðla að netöryggi ásamt hagkvæmri, öruggri og að- gengilegri fjarskiptaþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Hjá Fjarskiptastofu starfa um 40 manns, aðallega sérfræðingar við úrlausn verkefna á sviði netöryggis, tæknimála, viðskipta og laga sem tengjast hlutverki stofnunarinnar. Verkefnastjóri á innviðasvið Fjarskiptastofu Fjarskiptastofa óskar eftir að ráða í stöðu verkefnastjóra fjarskiptainnviðasviðs. Verkefnastjóri innviðasviðs hefur það hlutverk að stýra stærri verkefnum sviðsins og er um leið faglegur leiðtogi verkefnahópsins. Innviðasvið Fjarskiptastofu ber ábyrgð á kortlagningu og greiningum á núverandi og fyrirhuguðum innviðum fjarskipta ásamt tengdum innviðum og stuðlar að uppbyggingu innviða í samstarfi við stjórnvöld og markaðsaðila. Innviðasvið stýrir skipulagi auðlinda fjarskipta (tíðna og númera) og úthlutar heimildum fyrir þær auðlindir. Einnig viðhefur sviðið eftirlit með ljósvakanum sem felur í sér mælingar, viðbragð og úrvinnslu truflana. Verkefnastjóri stýrir verkefnum sem snúa að hlutverki sviðsins, þróun á starfsemi sviðsins og nýsköpun á fagsviðinu, hvort sem er innan Fjarskiptastofu eða með samstarfsaðilum. Meðal mikilvægra verkefna er aðkoma að því að efla starfsemi innviðasviðs varðandi fjarskiptanet, þróun þeirra, öryggi, áfallaþol og uppbyggingu ásamt því að vinna að því að móta samstarf og samvinnu á fjarskiptamarkaði um uppbyggingu fjarskiptainnviða. Helstu verkefni og ábyrgð: • Taka virkan þátt í að efla starfsemi innviðasviðs varðandi fjarskiptanet, kortlagningu þeirra, öryggi, áfallaþol og uppbyggingu • Koma að því að móta samstarf og samvinnu á fjarskiptamarkaði • Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi um uppbyggingu fjarskiptainnviða • Ráðgjöf og upplýsingagjöf varðandi fjarskiptanet og uppbyggingu þeirra • Vinna náið með sviðsstjóra að því að innviðasvið framfylgi markmiðum og stefnu varðandi þróun fjarskiptaneta landsins Hæfnikröfur • Háskólanám sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verk-, tækni- eða tölvunarfræði • Brennandi áhugi á fjarskiptatækni, nýsköpun og tækniþróun • Reynsla af verkefnastjórnun • Reynsla af vinnu tengdum fjarskiptanetum • Þarf að hafa gott vald á íslensku og ensku, og búa yfir ríkulegri samskiptafærni meðal annars að geta miðlað tæknilegum upplýsingum. • Samstarfshæfni, jákvætt viðhorf og eiga auðvelt með að vinna í hóp. • Hæfni til ákvarðanatöku við flóknar og krefjandi aðstæður Frekari upplýsingar um starfið: Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Fjarskiptastofa leggur áherslu á jafnrétti og hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið. Krafist verður sakavottorðs. Við ráðningu þarf að gangast undir og standast bakgrunnsskoðun og öryggisvottun Ríkislögreglustjóra. Umsóknarfrestur er til og með 17. janúar 2023. Fjarskiptastofa lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma. Viltu hafa áhrif á framtíðina? Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar nk. Sótt er um starfið á landsnet.is. Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð uppruna, aldri eða kyni. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem þú segir okkur af hverju þig langar að bætast í hópinn. Nánari upplýsingar veitir Jason Már Bergsteinsson, mannauðssérfræðingur, mannaudur@landsnet.is. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Við óskum eftir að ráða einstakling sem verður hluti af teymi sérfræðinga sem vinnur að stafrænni þróun flutningskerfis og eignastýringu Landsnets. Við erum leiðandi í heiminum í notkun stafrænna lausna og snjalltækni í orkuflutningum. Þú munt koma inn í kreˆandi og jafnframt spennandi umhverfi þar sem áhersla er lögð á snjallvæðingu orkukerfisins. Þróunar- og tæknisvið hefur það hlutverk að horfa til framtíðar. Verkefni sviðsins eiga að undirbúa Landsnet fyrir það sem koma skal, hvort sem það eru nýjar framkvæmdir, ný tækni, nýir viðskiptavinir eða ný viðhorf og skal þetta nást með virðishugsun og bestun. Næsti yfirmaður er Guðlaugur Sigurgeirsson, yfirmaður stafrænnar þróunar flutningskerfis og eignastýringar. Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að miðla orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar. Við leggjum áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð. Við erum framsækið þekkingarfyrirtæki sem býður kraftmiklu starfsfólki spennandi verkefni við aðstæður þar sem umhyggja, jafnrétti og öryggi eru í fyrirrúmi. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun á sviði tækni- eða verkfræði • Mikil tölvukunnátta, þekking á forritun og netsamskiptum • Hæfni í uppbyggilegum samskiptum og samvinnu • Skipulögð og öguð vinnubrögð • Hæfni og þor til að taka ákvarðanir og tjá sig • Sjálfstæði í vinnubrögðum og staðfesta við úrvinnslu verkefna Fram undan eru spennandi tímar orkuskipta í landinu sem gera miklar kröfur til a’astagetu og áreiðanleika flutningskerfisins. Það eru því ˆölmargar áskoranir sem þarf að bregðast við á lausnamiðaðan og faglegan hátt. Sérfræðingur í stafrænni þróun flutningskerfis ATVINNUBLAÐIÐ 11LAUGARDAGUR 7. janúar 2023
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.