Fréttablaðið - 07.01.2023, Side 33
Hlutverk Fjarskiptastofu er að stuðla að netöryggi ásamt hagkvæmri, öruggri og að-
gengilegri fjarskiptaþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Hjá Fjarskiptastofu
starfa um 40 manns, aðallega sérfræðingar við úrlausn verkefna á sviði netöryggis,
tæknimála, viðskipta og laga sem tengjast hlutverki stofnunarinnar.
Verkefnastjóri á innviðasvið Fjarskiptastofu
Fjarskiptastofa óskar eftir að ráða í stöðu verkefnastjóra fjarskiptainnviðasviðs. Verkefnastjóri innviðasviðs hefur það hlutverk að stýra stærri verkefnum sviðsins og er um leið faglegur
leiðtogi verkefnahópsins.
Innviðasvið Fjarskiptastofu ber ábyrgð á kortlagningu og greiningum á núverandi og fyrirhuguðum innviðum fjarskipta ásamt tengdum innviðum og stuðlar að uppbyggingu innviða í
samstarfi við stjórnvöld og markaðsaðila. Innviðasvið stýrir skipulagi auðlinda fjarskipta (tíðna og númera) og úthlutar heimildum fyrir þær auðlindir.
Einnig viðhefur sviðið eftirlit með ljósvakanum sem felur í sér mælingar, viðbragð og úrvinnslu truflana.
Verkefnastjóri stýrir verkefnum sem snúa að hlutverki sviðsins, þróun á starfsemi sviðsins og nýsköpun á fagsviðinu, hvort sem er innan Fjarskiptastofu eða með samstarfsaðilum.
Meðal mikilvægra verkefna er aðkoma að því að efla starfsemi innviðasviðs varðandi fjarskiptanet, þróun þeirra, öryggi, áfallaþol og uppbyggingu ásamt því að vinna að því að móta
samstarf og samvinnu á fjarskiptamarkaði um uppbyggingu fjarskiptainnviða.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Taka virkan þátt í að efla starfsemi innviðasviðs varðandi fjarskiptanet, kortlagningu
þeirra, öryggi, áfallaþol og uppbyggingu
• Koma að því að móta samstarf og samvinnu á fjarskiptamarkaði • Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi um uppbyggingu fjarskiptainnviða
• Ráðgjöf og upplýsingagjöf varðandi fjarskiptanet og uppbyggingu þeirra
• Vinna náið með sviðsstjóra að því að innviðasvið framfylgi markmiðum og stefnu varðandi
þróun fjarskiptaneta landsins
Hæfnikröfur
• Háskólanám sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verk-, tækni- eða tölvunarfræði • Brennandi áhugi á fjarskiptatækni, nýsköpun og tækniþróun • Reynsla af verkefnastjórnun • Reynsla af vinnu tengdum fjarskiptanetum
• Þarf að hafa gott vald á íslensku og ensku, og búa yfir ríkulegri samskiptafærni meðal
annars að geta miðlað tæknilegum upplýsingum.
• Samstarfshæfni, jákvætt viðhorf og eiga auðvelt með að vinna í hóp.
• Hæfni til ákvarðanatöku við flóknar og krefjandi aðstæður
Frekari upplýsingar um starfið:
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Fjarskiptastofa leggur áherslu á jafnrétti og hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið.
Krafist verður sakavottorðs. Við ráðningu þarf að gangast undir og standast bakgrunnsskoðun og öryggisvottun Ríkislögreglustjóra.
Umsóknarfrestur er til og með 17. janúar 2023.
Fjarskiptastofa lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma.
Viltu hafa áhrif
á framtíðina?
Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar nk. Sótt er um starfið á landsnet.is.
Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um óháð uppruna, aldri eða kyni. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem þú segir okkur af hverju þig langar að bætast í hópinn. Nánari upplýsingar veitir Jason Már Bergsteinsson,
mannauðssérfræðingur, mannaudur@landsnet.is. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Við óskum eftir að ráða einstakling sem verður hluti af teymi sérfræðinga
sem vinnur að stafrænni þróun flutningskerfis og eignastýringu Landsnets.
Við erum leiðandi í heiminum í notkun stafrænna lausna og snjalltækni
í orkuflutningum. Þú munt koma inn í kreandi og jafnframt spennandi
umhverfi þar sem áhersla er lögð á snjallvæðingu orkukerfisins.
Þróunar- og tæknisvið hefur það hlutverk að horfa til framtíðar. Verkefni
sviðsins eiga að undirbúa Landsnet fyrir það sem koma skal, hvort sem
það eru nýjar framkvæmdir, ný tækni, nýir viðskiptavinir eða ný viðhorf
og skal þetta nást með virðishugsun og bestun.
Næsti yfirmaður er Guðlaugur Sigurgeirsson, yfirmaður stafrænnar
þróunar flutningskerfis og eignastýringar.
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að miðla orku sem drífur áfram lífsgæði og
sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar. Við leggjum áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð. Við erum
framsækið þekkingarfyrirtæki sem býður kraftmiklu starfsfólki spennandi verkefni við aðstæður þar sem
umhyggja, jafnrétti og öryggi eru í fyrirrúmi.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði tækni- eða verkfræði
• Mikil tölvukunnátta, þekking á forritun og netsamskiptum
• Hæfni í uppbyggilegum samskiptum og samvinnu
• Skipulögð og öguð vinnubrögð
• Hæfni og þor til að taka ákvarðanir og tjá sig
• Sjálfstæði í vinnubrögðum og staðfesta við úrvinnslu verkefna
Fram undan eru spennandi tímar orkuskipta í landinu sem gera miklar
kröfur til aastagetu og áreiðanleika flutningskerfisins. Það eru því
ölmargar áskoranir sem þarf að bregðast við á lausnamiðaðan og
faglegan hátt.
Sérfræðingur í stafrænni þróun flutningskerfis
ATVINNUBLAÐIÐ 11LAUGARDAGUR 7. janúar 2023