Fréttablaðið - 07.01.2023, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 07.01.2023, Blaðsíða 44
Gunnlaugur Arnar Inga- son, bakari og „pastrychef“, alltaf kallaður Gulli Arnar, hefur unnið hug og hjörtu sælkera landsins með sínum guðdómlegu og fal- legu eftirréttum. Gulli var önnum kafinn í bakaríinu um hátíðirnar. sjofn@frettabladid.is „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á bakstri og eldamennsku yfir höfuð. Bakstur er mín helsta ástríða. Ég á það til að kaffæra mína nánustu í umræðum um bakaríið. Ég elska að standa í bakaríinu og hitta mína tryggu viðskiptavini.“ Þótt áramótin séu liðin er um að gera að gleðja bragðlaukana, til dæmis í matarboðum á nýju ári. Gulli segir að smáréttir séu það vinsælasta í dag. „Franskar makkarónur og eftirréttasmá- bitar passa einstaklega vel með freyðivíni til að skála með góðum vinum. Sörur eru ávallt ómissandi svo mæli ég alltaf með einhverju fersku og einföldu eins og berjum og ís.“ Gulli gefur hér uppskrift að sínum uppáhaldseftirrétti þessa dagana sem á alltaf vel við. Lemon tart Tart-botn 200 g sykur 400 g smjör 30 g eggjarauður 50 g egg 600 g hveiti Blandið saman sykri og smjöri. Bætið eggjum við. Setjið hveiti saman við og hnoðið saman. Gott er að kæla deigið áður en það er f latt út í tart-form. Bakið við 180°C í 10-12 mínútur eða þar til það er gullinbrúnt. Lemoncurd 4 g matarlím 300 g egg 210 g sítrónusafi 240 g sykur 60 g smjör Leggið matarlím í bleyti. Hrærið saman eggjum og sykri. Hitið sítrónusafa og hellið í mjórri bunu yfir eggjablönduna meðan hrært er. Setjið blönduna aftur í pottinn og hitið við mjög vægan hita meðan hrært er upp í sirka 85°C. Hrærið matarlím út í kremið. Hellið sítrónukreminu í tart-skel- ina og kælið, til dæmis yfir nótt. Ítalskur marengs 100 g vatn 400 g sykur 200 g eggjahvítur Þeytið eggjahvítur. Sjóðið sykur og vatn saman í síróp í sirka 120°C. Hellið sírópinu í mjórri bunu út í eggjahvíturnar meðan þeytt er. Stífþeytið og smyrjið marengs- inum yfir kremið. n Ljúffeng lítil sítrónubaka Svona lítur eftirrétturinn hans Gulla Arnar út og er uppáhalds. sjofn@frettabladid.is Albert Eiríksson er þekktur fyrir að vera mikill matgæðingur og halda úti heimasíðu þar sem er að finna margar sælkerauppskriftir. Það er því afar spennandi að fræðast nánar um námskeið hans um hvernig borða má betur og huga um leið að alhliða heilsu og aukinni vellíðan. Albert hefur þróað og prófað námskeið sem hann kallar Borðum og lifum betur. Námskeiðið stendur í fjórar vikur og næsta námskeið hefst 9. janúar. „Í mörg ár hef ég notið handleiðslu Elísabetar Reynisdóttur næringarfræðings og lært fjölmargt af henni. Við byrj- uðum saman með námskeið og nú stend ég einn og óstuddur. Það var gaman að upplifa hve margt breyttist hjá fólki við það eitt að taka hressilega til í mataræðinu, en ég fann að fólk vildi meira,“ segir Albert og bætir við að hann hafi tekið það besta úr námskeiði sínu og Betu og bætt það á ýmsan hátt. Núna séu ýmis heimaverkefni sem fólk glími við og leysi sem eru viðbót. Fá matseðil fyrir hvern dag Albert hefur alla tíð verið mikill áhugamaður um mat og áhrif hans á líkamann. Í haust voru haldin nokkur prufunámskeið með góðum árangri. „Þátttakendur fá matseðil fyrir hvern dag allar fjór- ar vikurnar. Það er stuðningshópur á netinu og vikulega eru netfundir. Þar segjum við frá hvernig gengur, hvernig okkur líður, hvað er fram undan og annað sem nýtist,“ segir Albert. Er hér komið enn eitt megrunar- námskeiðið? „Nei, nei, þetta er ekki megr- unarnámskeið og það er tekið skýrt fram. Fólk getur lifað góðu lífi með nokkur aukakíló og ef við erum sátt í eigin skinni með kílóin þá er það fínt. Það hefur hins vegar gerst að þátttakendur hafa misst mörg kíló – lítum á það sem auka glaðning. Við erum hvorki að svelta okkur, drekka marga lítra af vatni á dag, gúffa í okkur fæðu- bótarefnum með látum né hafa þetta leiðinlegt. Á námskeiðinu er snæddur heiðarlegur, góður matur, engin framandi hráefni eða annað sem fólk ekki þekkir.“ Betri nætursvefn, minni bólgur Aðspurður segir Albert að meðal þess sem þátttakendur hafa nefnt að hafa fundið fyrir eftir þátttök- una á námskeiðinu er betri nætur- svefn, minni bólgur, það sé léttara yfir fólki, minna bakflæði, meiri orka, aukin lífsgæði og lægri blóð- þrýstingur. „Það er nú kunnara en frá þurfi að segja að matur er fyrir öllu. Hins vegar getur verið snúið að finna út hvað fer vel í okkur og hvað fer síður vel í okkur. Gott er að hafa í huga: Að stórum hluta erum við ábyrg fyrir eigin heilsu og muna að það er aldrei of seint að byrja,“ segir Albert að lokum. n Nánari upplýsingar um nám- skeiðið er að finna á heimasíðu hans: alberteldar.is Albert kennir fólki að borða og lifa betur Albert Eiríksson matarbloggari og lífskúnstner með meiru hefur þróað og prófað lífsstílsnámskeið sem ber heitið Borðum og lifum betur. MYND/AÐSEND sjofn@frettabladid.is Þegar vetrarlegt er úti og snjórinn fegrar umhverfið er yndislegur tími til að laga ljúffenga súpu sem yljar og kitlar bragðlaukana. Þessi súpa er ein af þeim sem alltaf hitta í mark og mun töfra matargestina upp úr skónum. Hægt er að sleppa kjúklingnum og öllum dýraafurðum og gera hana vegan. Allt hráefnið í þennan rétt fæst í Bónus. Dýrðleg kjúklingasúpa fyrir 6 800 g kjúklingalundir eða 4 kjúklingabringur Krydd lífsins frá Pottagöldrum, kryddið eftir smekk Ólífuolía til steikingar Hitið pönnu á hellu á aðeins meira en miðlungshita og setjið ólífuolíu á. Kjúklingalundir/bringur eru skornar í bita, snöggsteiktar með Kryddi lífsins og pipar. Kjúklinga- bitarnir eru settir til hliðar meðan súpan er löguð. 1 púrrulaukur 2 vorlaukar 2 grænar paprikur 2 rauðar paprikur 1 appelsínugul paprika 6 hvítlauksrif Ólífuolía til steikingar Byrjið á því að setja pott á hellu stillta á miðlungs hita. Allt græn- metið er saxað og brytjað smátt, sett í pott og látið krauma í ólífu- olíunni nokkrar mínútur eða þar til grænmetið verður mjúkt. Bætið eftirfarandi hráefni út í pottinn með grænmetinu: 400 g rjómaostur 2 stórir grænmetis-súputeningar (leysið upp í soðnu vatni, setjið örlítið vatn í lítið mál) 2 stórir kjúklinga-súputeningar (leysið upp í soðnu vatni, setjið örlítið vatn í lítið mál) 1 peli rjómi eða matreiðslurjómi 1,4 l vatn 4 dl kókosmjólk 1 flaska Heinz-chillisósa í litlu gler- flöskunni 2 tsk. karrí 2 tsk. paprikuduft Krydd lífsins, salt og grófur pipar eftir smekk 1 dós/krukka niðursoðnir tómatar Þegar allt hráefni er komið út í pottinn er hrært reglulega í pott- inum á miðlungs heitri hellu þar til suðan kemur upp. Léttsteiktu kjúklingabitarnir settir út í þegar suðan er komin upp og látnir malla í dágóða stund. Ljúft er að framreiða kjúklinga- súpuna með ítölsku, heimabökuðu súrdeigsbrauði, svörtu Doritos- snakki, rifnum osti, söxuðu kóríander og sýrðum rjóma. Þetta er ómótstæðilega ljúffengt saman. Njótið og verði ykkur að góðu. n Kjúklingasúpa sem yljar Kjúklingasúpa sem kitlar bragðlauk- ana á köldum vetrarkvöldum. Gulli Arnar hefur mikla ástríðu fyrir starfi sínu og töfrar fram dýrðlega smá- rétti og eftirrétti alla daga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 6 kynningarblað A L LT 7. janúar 2023 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.