Fréttablaðið - 07.01.2023, Blaðsíða 48
Fyrsta kvikmynd leikstjórans
Elsu Maríu Jakobsdóttur í
fullri lengd er nú sýnd í kvik-
myndahúsum. Myndin fjallar
á gamansaman hátt um
leyndarmál og vináttu. Elsa
ræðir myndina og lífið.
Ég er mjög spennt en mér
líður líka bara vel með
myndina og ég er mjög
ánægð með hana,“ segir
leikstjórinn og handrits-
höfundurinn Elsa María Jakobs-
dóttir um kvikmynd sína Villibráð.
Myndin er fyrsta mynd Elsu í
fullri lengd en Villibráð var frum-
sýnd í gær. „Þetta er búið að vera
ótrúlega skemmtilegt ferli og ég er
með hálfgert samviskubit yfir því að
enginn hafi þjáðst við gerð þessarar
myndar,“ segir Elsa glettin.
„Ég var búin að vera svona tvö ár
á undan, eftir að ég kláraði danska
kvikmyndaskólann, að púsla saman
og koma að nokkrum verkefnum
sem einhvern veginn röknuðu öll
upp og urðu að engu. Það voru mjög
frústrerandi ferlar og prósessar og
þess vegna er allt við þetta alveg
frá byrjun svo þægilegt, allt hefur
gengið svo vel,“ segir Elsa.
Villibráð fjallar á gamansaman
hátt um sjö vini sem hittast í mat-
arboði í Vesturbænum. Í boðinu
ákveða þau að fara í leik. Hann
felst í því að allir setja símana sína
á borðið og öll fallast þau á að öllum
símtölum og skilaboðum sem berast
verði deilt með samkomunni. Til-
gangurinn er að sanna að ekkert
þeirra hafi nokkuð að fela, en sú er
kannski ekki raunin.
Villibráð er endurgerð af ítalskri
kvikmynd sem hefur verið endur-
gerð í fjölmörgum löndum á fjöl-
mörgum tungumálum svo sem á
Spáni, í Tyrklandi, Frakklandi, Ind-
landi og Kína.
„Þórir Snær, sambýlismaður
minn, og dreifingarfyrirtækið hans
var með réttinn á þessari mynd og
hann var búinn að vera að máta
þetta við aðra leikstjóra og spurði
mig svo hvort ég hefði áhuga. Í
fyrstu hafði ég það ekki og fannst
það ekki vera fyrir mig að endurgera
ítalska bíómynd,“ segir Elsa.
„Ég var að vinna að orginal efni
og var algjörlega með hugann við
það en svo vorum við að ræða þetta
og hann gaf mér 24 tíma til að svara
sér,“ segir Elsa,
„Ég var búin að vera smá súr við
hann fyrst, hvort hann ætlaði ekki
að bjóða mér þetta, og eiginlega
bara til að geta sagt nei við hann
en svo þegar ég fór raunverulega að
hugsa þetta þá fannst mér þetta góð
hugmynd,“ segir Elsa en sambýlis-
maður hennar er Þórir Snær Sigur-
jónsson einn eigandi og stofnandi
framleiðslufyrirtækisins Zik Zak,
kvikmynda og framkvæmdastjóri
dreifingar- og framleiðslufyrir-
tækisins Scanbox.
Hrædd við að verða ólétt
Elsa og Þórir kynntust á 27 ára
afmælisdegi Elsu fyrir tæpum fjór-
tán árum og eiga nú saman tvær
dætur. „Við kynntumst bara uppi á
hátalaraboxi á Ellefunni, mjög bei-
sik,“ segir Elsa og hlær. „Við höfum
meira og minna verið saman síðan.
Vorum í fjarsambandi fyrstu árin
en hann bjó í Danmörku þegar við
kynntumst og svo f lyt ég til hans
þangað. Núna búum við bæði hér
og í Danmörku, erum með heimili í
Vesturbænum og í Kaupmannahöfn
og eigum tvær stelpur svo þetta
hefur tekið miklum breytingum.“
Dætur Elsu og Þóris eru níu
mánaða og þriggja ára. Hún segist
ánægð með að hafa eignast börn
með stuttu millibili en að hún hafi
ekki alltaf séð það fyrir sér.
„Ég ólst að mestu upp á Húsa-
vík en f lutti svo til Reykjavíkur á
menntaskólaaldri, fer með æsku-
ástinni hingað og byrja í MH,“ segir
Elsa. „Þegar ég var sextán ára voru
alveg nokkrar bekkjarsystur mínar
á Húsavík komnar með börn, það
var algengt að trúlofa sig á þeim
aldri og það voru margir snemma í
mörgu,“ segir hún.
„Ég tók alveg þátt í þessu en var
alltaf brjálæðislega hrædd við að
verða ólétt. Ég var svo hrædd um að
ef það myndi gerast kæmist ég aldr-
ei frá Húsavík, þyrfti bara að halda
áfram að vinna í Essó-sjoppunni og
flippa börgerum,“ segir Elsa.
„Það er ekki fyrr en eftir þrítugt
að ég fer einhvern veginn að opna á
Elsa María
stundaði nám
í leikstjórn í
Danska kvik-
myndaskól-
anum. Hún var
fyrst íslenskra
kvenna til að
komast inn í
skólann.
Fréttablaðið/
Ernir
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
Þetta er allt sem ég
var búin að óska mér Ég tók alveg þátt í
þessu en var alltaf
brjálæðislega hrædd
við að verða ólétt. Ég
var svo hrædd um að ef
það myndi gerast þá
kæmist ég aldrei frá
Húsavík.
20 Helgin 7. janúar 2023 LAUGARDAGURFrÉttablaðið