Fréttablaðið - 07.01.2023, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 07.01.2023, Blaðsíða 18
Hertu púið geysilega Sígarettureykingar eru siður, eða ósiður, sem Íslendingar stunduðu af kappi á árum áður. Vitneskja um skaðsemi reyk- inga var orðin kunn árið 1973 og árið áður höfðu tóbaksaug- lýsingar verið bannaðar. Einnig voru komnar viðvaranir á pakkana um hversu óhollt það væri að nota vöruna. Það var þó sem landinn firrtist við þessu og jukust reykingar gríðarlega þetta ár. Þann 4. janúar greindi Áfengis- og tóbaksverslun ríkis- ins frá því að innflutningurinn á tóbaki hefði aukist um 70 pró- sent árið 1972 miðað við árið á undan. „Menn púa eins og þeir geta,“ sagði í frétt Vísis. Dómstóll götunnar Umræðan um dómstól götunnar varð ekki til með Harvey Weinstein málinu og MeToo- byltingunni. Nei, hún var vel víð lýði á Íslandi árið 1973. 5. janúar það ár fjallaði Morgunblaðið um hnífsstungumál þar sem 25 ára gamall sjó- maður frá Akureyri stakk 19 ára stúlku í Breið- holti í misheppnaðri ránstilraun og bar við vímuefnaneyslu. Einum lesanda Vísis, líka frá Akur- eyri, fannst það óforskammað af Morgunblaðinu að „dæma manninn löngu áður en dómstóll hefur fjallað um mál hans“. Lögreglunni fannst blaðið einnig ganga of langt og „taka sér dómsvald í hendur“. Í kjólinn eftir jólin Eftir óhóflegt át á feitu og sölt- uðu kjöti, sykruðum kökum og öli, strengja Íslendingar heit um bætt líferni og halda í líkamsræktarstöðvar. Það er gömul saga og ný. Fréttakonan Edda Andrésdóttir heim- sótti Heilsuræktina í Glæsibæ þar sem fóru fram harðar megrunaræfingar, með öndun og slökun í bland og austrænu jóga. Bauðst fólki að taka svo- kallaðan eplakúr, það er borða ekkert nema epli í þrjá daga og eina matskeið af ólífuolíu við háttatíma. Það kom hins vegar fyrir að fólk spryngi á limminu og gæfist upp á megruninni. Harðsperrur gátu reynst fólki erfiðar eftir fyrstu æfingarnar. Svo er enn. Sóldýrkendur í skammdeginu Sennilega eru hvergi jafn margir sóldýrkendur á byggðu bóli og hér á Fróni og því ekki skrýtið að þjóðin haldi sín jól á eyjunni Tenerife undan ströndum Afríku. Skammdegið fer vel í fáa og ruglar lífsklukkuna. Geðheilsu þjóðarinnar hrakar í myrkrinu og erfiðustu mánuðirnir koma eftir jólahátíðina. Eins ómerkilegt og íslenska sumarið er nú oftast þá er það alltaf vel þegið þegar það loksins kemur. Ætla mætti að nær allt hefði breyst á hálfri öld, sérstaklega eftir allar þær tækni- og samfélags- byltingar sem orðið hafa á liðnum áratugum. Margt er þó furðulega líkt með Íslandi árið 2023 og 1973. Ísland fyrir hálfri öld Kristinn Haukur Guðnason kristinnhaukur @frettabladid.is Krúnuraka afbrotaunglinga Sú hugmynd var uppi að ein leið til þess að hegna af brota- unglingum fyrir smáglæpi og vímuefnaneyslu væri að snoða hárið af þeim. Því fátt væri þeim nú kærara en þykkur makki. Sumir tóku vel í þetta en aðrir voru nútímalegri í hugsun og töldu faglega aðstoð betri lausn. Þrettándaólætin Nú á dögum er þrettándinn stundum kallaður ýludagur því að ýlur eru það eina sem fólk á eftir úr flugeldapökkunum sín- um og notar daginn til að fluðra þeim upp. Áður fyrr var hins veg- ar mikið fútt í þrettándanum og unglingar misstu gjarnan stjórn á sér. Lögreglan í Hafnarfirði var með viðbragð á þrettándanum 1973 enda höfðu skrílslæti eftir brennuna árið áður farið úr böndunum. Ákveðið var að hafa engar brennur og áskorun var dreift á öll heimili hvar foreldrar voru hvattir til þess að halda börnum sínum frá miðbænum þar sem mestu ólætin voru yfirleitt . Þetta ár voru það aðal- lega unglingar úr Reykjavík sem komnir voru í Hafnarfjörð til að leita að vandræðum. Við getum þakkað TikTok og Netflix fyrir dauða þrettándaólátanna. Sameina höfuðborgarsvæðið Hugmyndin um sameiningu sveitarfélaganna á höfuð- borgarsvæðinu hefur lengi verið uppi og árið 1973 taldi almenningur að hún væri tímaspursmál. Það eina sem hefur hins vegar þokast í þessa átt er að Álftanes varð gjaldþrota og Garðabær keypti þrotabúið. Sveitar- félögum á landsbyggðinni hefur hins vegar fækkað úr rúmlega 200 í 58. Táningar sóttu brennur. mynd/Vísir Sterk trú á drauga Draugatrú Íslendinga er ann- áluð og finnst í öllum stéttum, líka lögreglunni. Alþýðublaðið greindi frá því 12. janúar að lög- reglan sinnti útkalli í verslunar- og iðnaðarhúsi á horni Skúlagötu og Vitastígs eftir tilkynningu um umgang. Hurðin stóð opin um miðnætti en öflugt þjófavarnar- kerfi hafði ekki farið í gang. Fimm lögregluþjónar leituðu hátt og lágt í húsinu en fundu engan bófa og engu hafði verið stolið. Allt í einu fór lyfta af stað þrátt fyrir að enginn væri í henni. Þegar ýtt var á takkann kom hún mannlaus til baka. Ekki fengust neinar skýringar á þessu svo aug- ljóslega hafa draugar verið á ferð. Húsið hefur nú verið rifið enda fannst þar draugagangur. mynd/skjáskot Morgunblaðið var sakað um að brenni- merkja manninn án dóms. mynd/Vísir Viðvaranir um reykingar fóru öfugt ofan í landann. mynd/Vísir Líkamsræktarstöðvarnar fylltust eftir óhóf jólanna. mynd/Vísir 18 Helgin 7. janúar 2023 LAUGARDAGURFréttablaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.