Fréttablaðið - 07.01.2023, Page 18
Hertu púið geysilega
Sígarettureykingar eru siður,
eða ósiður, sem Íslendingar
stunduðu af kappi á árum áður.
Vitneskja um skaðsemi reyk-
inga var orðin kunn árið 1973
og árið áður höfðu tóbaksaug-
lýsingar verið bannaðar. Einnig
voru komnar viðvaranir á
pakkana um hversu óhollt það
væri að nota vöruna. Það var þó
sem landinn firrtist við þessu
og jukust reykingar gríðarlega
þetta ár. Þann 4. janúar greindi
Áfengis- og tóbaksverslun ríkis-
ins frá því að innflutningurinn á
tóbaki hefði aukist um 70 pró-
sent árið 1972 miðað við árið á
undan. „Menn púa eins og þeir
geta,“ sagði í frétt Vísis.
Dómstóll götunnar
Umræðan um dómstól
götunnar varð ekki til
með Harvey Weinstein
málinu og MeToo-
byltingunni. Nei, hún
var vel víð lýði á Íslandi
árið 1973. 5. janúar það
ár fjallaði Morgunblaðið
um hnífsstungumál þar
sem 25 ára gamall sjó-
maður frá Akureyri stakk
19 ára stúlku í Breið-
holti í misheppnaðri
ránstilraun og bar við
vímuefnaneyslu. Einum
lesanda Vísis, líka frá Akur-
eyri, fannst það óforskammað af Morgunblaðinu að „dæma manninn
löngu áður en dómstóll hefur fjallað um mál hans“. Lögreglunni fannst
blaðið einnig ganga of langt og „taka sér dómsvald í hendur“.
Í kjólinn eftir jólin
Eftir óhóflegt át á feitu og sölt-
uðu kjöti, sykruðum kökum
og öli, strengja Íslendingar
heit um bætt líferni og halda
í líkamsræktarstöðvar. Það er
gömul saga og ný. Fréttakonan
Edda Andrésdóttir heim-
sótti Heilsuræktina í Glæsibæ
þar sem fóru fram harðar
megrunaræfingar, með öndun
og slökun í bland og austrænu
jóga. Bauðst fólki að taka svo-
kallaðan eplakúr, það er borða
ekkert nema epli í þrjá daga og
eina matskeið af ólífuolíu við
háttatíma. Það kom hins vegar
fyrir að fólk spryngi á limminu
og gæfist upp á megruninni.
Harðsperrur gátu reynst fólki
erfiðar eftir fyrstu æfingarnar.
Svo er enn.
Sóldýrkendur
í skammdeginu
Sennilega eru hvergi jafn margir
sóldýrkendur á byggðu bóli og
hér á Fróni og því ekki skrýtið
að þjóðin haldi sín jól á eyjunni
Tenerife undan ströndum Afríku.
Skammdegið fer vel í fáa og
ruglar lífsklukkuna. Geðheilsu
þjóðarinnar hrakar í myrkrinu og
erfiðustu mánuðirnir koma eftir
jólahátíðina. Eins ómerkilegt og
íslenska sumarið er nú oftast þá
er það alltaf vel þegið þegar það
loksins kemur.
Ætla mætti að nær allt hefði breyst á hálfri öld,
sérstaklega eftir allar þær tækni- og samfélags-
byltingar sem orðið hafa á liðnum áratugum.
Margt er þó furðulega líkt með Íslandi árið
2023 og 1973.
Ísland fyrir
hálfri öld
Kristinn Haukur
Guðnason
kristinnhaukur
@frettabladid.is
Krúnuraka
afbrotaunglinga
Sú hugmynd var uppi að ein
leið til þess að hegna af brota-
unglingum fyrir smáglæpi
og vímuefnaneyslu væri að
snoða hárið af þeim. Því fátt
væri þeim nú kærara en þykkur
makki. Sumir tóku vel í þetta en
aðrir voru nútímalegri í hugsun
og töldu faglega aðstoð betri
lausn.
Þrettándaólætin
Nú á dögum er þrettándinn
stundum kallaður ýludagur því
að ýlur eru það eina sem fólk á
eftir úr flugeldapökkunum sín-
um og notar daginn til að fluðra
þeim upp. Áður fyrr var hins veg-
ar mikið fútt í þrettándanum og
unglingar misstu gjarnan stjórn
á sér. Lögreglan í Hafnarfirði var
með viðbragð á þrettándanum
1973 enda höfðu skrílslæti
eftir brennuna árið áður farið úr
böndunum. Ákveðið var að hafa
engar brennur og áskorun var
dreift á öll heimili hvar foreldrar
voru hvattir til þess að halda
börnum sínum frá miðbænum
þar sem mestu ólætin voru
yfirleitt . Þetta ár voru það aðal-
lega unglingar úr Reykjavík sem
komnir voru í Hafnarfjörð til að
leita að vandræðum. Við getum
þakkað TikTok og Netflix fyrir
dauða þrettándaólátanna.
Sameina höfuðborgarsvæðið
Hugmyndin um sameiningu
sveitarfélaganna á höfuð-
borgarsvæðinu hefur lengi
verið uppi og árið 1973 taldi
almenningur að hún væri
tímaspursmál. Það eina sem
hefur hins vegar þokast í
þessa átt er að Álftanes varð
gjaldþrota og Garðabær
keypti þrotabúið. Sveitar-
félögum á landsbyggðinni
hefur hins vegar fækkað úr
rúmlega 200 í 58.
Táningar sóttu brennur. mynd/Vísir
Sterk trú á drauga
Draugatrú Íslendinga er ann-
áluð og finnst í öllum stéttum,
líka lögreglunni. Alþýðublaðið
greindi frá því 12. janúar að lög-
reglan sinnti útkalli í verslunar-
og iðnaðarhúsi á horni Skúlagötu
og Vitastígs eftir tilkynningu um
umgang. Hurðin stóð opin um
miðnætti en öflugt þjófavarnar-
kerfi hafði ekki farið í gang.
Fimm lögregluþjónar leituðu
hátt og lágt í húsinu en fundu
engan bófa og engu hafði verið
stolið. Allt í einu fór lyfta af stað
þrátt fyrir að enginn væri í henni.
Þegar ýtt var á takkann kom hún
mannlaus til baka. Ekki fengust
neinar skýringar á þessu svo aug-
ljóslega hafa draugar verið á ferð. Húsið hefur nú verið rifið enda fannst þar draugagangur. mynd/skjáskot
Morgunblaðið var sakað um að brenni-
merkja manninn án dóms. mynd/Vísir
Viðvaranir um reykingar fóru
öfugt ofan í landann. mynd/Vísir
Líkamsræktarstöðvarnar fylltust
eftir óhóf jólanna. mynd/Vísir
18 Helgin 7. janúar 2023 LAUGARDAGURFréttablaðið