Fréttablaðið - 07.01.2023, Page 56
Sviðslistamaðurinn Rebekka
A. Ingimundardóttir rann-
sakaði efri árin og þriðja
æviskeiðið sem þróaðist út í
sviðslistaverkið Ég lifi enn –
sönn saga.
tsh@frettabladid.is
Ég lif i enn – sönn saga sem er
frumsýnt í Tjarnarbíói í dag er
sjónræn og ljóðræn sýning um hið
undarlega ferðalag sem lífið er og
þá vissu að við munum öll deyja.
Verkið er innblásið af persónulegri
reynslu aðstandenda af að fylgja
sínum nánustu inn í þriðja ævi-
skeiðið og þeirra sem eru staddir
í því sjálfir.
„Okkur fannst þetta bara svo
brýn nauðsyn. Við byrjuðum að
vinna í þessu 2019 og síðan þá
hefur verið mikil vakning varðandi
þriðja æviskeiðið, verðmæti þess og
þær aðstæður sem fólk er í,“ segir
Rebekka A. Ingimundardóttir, list-
rænn stjórnandi verkefnisins.
Fór í námskeið í markþjálfun
Rebekka starfaði sem kennari á
sviðshöfundabraut Listaháskóla
Íslands þegar hún fékk hugmynd-
ina að verkefninu en hún segir
hana hafa kviknað út frá námskeiði
í markþjálfun sem hún fór í ásamt
öðrum kennurum.
„Ég ákvað að fara svo í nám hjá
Evolvia og læra markþjálfun og
ég staldraði sjálf svolítið við eldra
fólk, það talaði enginn um það. Ég
var að pæla í því og gerði smá rann-
sóknarvinnu, svo bý ég rétt hjá
Grund þannig að ég fór bara af stað
með hvað myndi hjálpa eldra fólki
að vera markþjálfuð inn í næsta
dag, næstu viku eða næsta mánuð á
þriðja æviskeiðinu,“ segir Rebekka.
Um það leyti sem Rebekka var í
þessum vangaveltum hringdi leik-
konan Þórey Sigþórsdóttir í hana
og spurði hvort hún vildi taka
þátt í verkefni um að safna saman
sögum eldra fólks.
„Í því samtali fórum við báðar á
f lug um hvernig væri að vinna með
að styrkja eldra fólk út frá rödd,
líkamsbeitingu og þjálfun. Hvern-
ig væri þá að vinna með eldra fólki
út frá þessum hugmyndum,“ segir
Rebekka.
Rebekka og Þórey byrjuðu að
móta verkefnið og fengu síðar til
liðs við sig leikstjórann Ásdísi
Skúladóttur og úr varð nokkurra
ára rannsóknarverkefni sem þró-
aðist svo út í sýninguna Ég lifi enn.
Tölum svo lítið um þetta
Er þriðja æviskeiðið kannski eitt-
hvað sem er svolítið hulið og lítið
fjallað um í samfélaginu?
„Já, þar er ég sammála þér. Ég
upplifði það í gegnum fólk sem við
unnum með og sem aðstandandi,
við vitum að við stefnum þangað
en við undirbúum okkur ekki fyrir
það og það er eins og það sé ákveð-
in hunsun í gangi.“
Rebekka bætir því við að hún
hafi sjálf nýlega fengið að upplifa
þetta sem aðstandandi en móðir
hennar lést í fyrra og faðir hennar
f lutti á hjúk r unarheimili um
svipað leyti.
„Við tölum svo lítið um þetta,
það er næstum eins og það sé tabú
að verða gamall og vera á þessum
aldri. Ég heyri rosalega mikið nei-
kvætt um það frekar en jákvætt,
fólk dettur út af vinnumarkaði
mjög snemma eða er sett út í horn.
Fyrir mig sem hef búið í tuttugu ár
erlendis, í Tékklandi og Hollandi,
sé ég að þar er reynsla metin sem
verðmæti en hérna á Íslandi er
farið eftir kennitölunni sem er
undarlegt því við erum svo lítið
samfélag.“
Vinnusmiðjur fyrir eldri
borgara
Er einhver í listræna teyminu á
þriðja æviskeiðinu?
„Já, Ásdís Skúladóttir sem fylgdi
okkur frá fyrsta námskeiðinu sem
við héldum í Hæðargarði. Við
vorum með vinnusmiðjur sem
við héldum sem hétu Augnablik
– Ég á mér rödd. Við byrjuðum í
Hæðargarði og svo sóttum við um
hjá Reykjavíkurborg að fara inn
á öll félagsheimili eldri borgara á
Reykjavíkursvæðinu og fórum inn
á sautján félagsmiðstöðvar með
þessa vinnusmiðju.“
Spurð um hvort þetta sé sýn-
ing fyrir alla aldurshópa segir
Rebek ka verk ið henta fólk i á
miðjum aldri, þeim sem eru að
nálgast þriðja æviskeiðið sem og
yngra fólki.
„Þetta er líka fyrir manneskjuna
sem er tvítug og hefur áhuga á að
kíkja aðeins inn í þennan heim
og hefur gaman af ljóðrænu, sjón-
rænu og öðruvísi leikhúsi. Ég vona
svo sannarlega að bæði eldra fólk,
fólk á miðjum aldri og yngra fólk
muni njóta þess,“ segir hún. n
Við tölum svo lítið um
þetta, það er næstum
eins og það sé tabú að
vera gamall og vera á
þessum aldri.
tsh@frettabladid.is
Miðstöð íslenskra bókmennta hefur
úthlutað nýjum styrkjum til þýðinga
á íslensku, verk eftir höfunda á borð
við Annie Ernaux, Richard Brau-
tigan, Lydiu Davis, Erich Kästner,
Antoine de Saint-Exupéry og fleiri
eru væntanleg í íslenskri þýðingu á
næstunni.
Nú var úthlutað rúmum 8 milljón-
um króna til 24 þýðinga á íslensku en
alls bárust 38 umsóknir í í nóvember
2022 í seinni úthlutun ársins.
Á meðal verka sem hlutu styrki
kennir ýmissa grasa og von er á fjöl-
breyttri útgáfu þýðinga á næstunni
fyrir börn og fullorðna. Þýtt verður
úr ensku, þýsku, frönsku, spænsku,
japönsku, hebresku og portúgölsku
og eiga lesendur því von á spennandi
bókum á íslensku víða að. n
Fjöldi nýrra þýðinga væntanlegur
Á meðal væntanlegra bóka er Le jeune homme eftir Annie Ernaux, sem hlaut
Nóbelsverðlaunin í bókmenntum 2022, í þýðingu Rutar Ingólfsdóttur.
Fréttablaðið/EPa
Á meðal verka sem hlutu þýðingastyrki eru:
n The Dictionary of Lost Words
eftir Pip Williams, í þýðingu
Ugga Jónssonar.
n Fabian. Die Geschichte eines
Moralisten eftir Erich Kästner, í
þýðingu Elísu Bjargar Þorsteins-
dóttur.
n Heaven eftir Mieko Kawakami, í
þýðingu Jóns St. Kristjánssonar.
n Skandar and the Phantom Rider
eftir A.F. Steadman, í þýðingu
Ingunnar Snædal.
n The Vanishing Half eftir Brit
Bennett. Þýðandi: Ragna
Sigurðardóttir.
n The Prime of Miss Jean Brodie
eftir Muriel Spark, í þýðingu
Árna Óskarssonar.
n Le jeune homme eftir Annie
Ernaux, í þýðingu Rutar Ingólfs-
dóttur.
n Úrval texta eftir Lydiu Davis,
í þýðingu Berglindar Ernu
Tryggvadóttur.
n Panther in the Basement
eftir Amos Oz, í þýðingu Árna
Óskarssonar.
n The Cemetery in Barnes eftir
Gabriel Josipovici, í þýðingu
Gyrðis Elíassonar.
n Litli prinsinn eftir Antoine de
Saint-Exupéry, í þýðingu Arn-
dísar Lóu Magnúsdóttur.
n The Wild Boys eftir William
S. Burroughs, í þýðingu Arnar
Karlssonar.
Nánast tabú
að verða gamall
Með aðalhlutverk í Ég lifi enn – sönn saga fara leikkonurnar Þórey Sigþórsdóttir,
Ingibjörg Gréta Gísladóttir og Halldóra Rósa Björnsdóttir. Mynd/OwEn FiEnE
Rebekka A. Ingi-
mundardóttir er
listrænn stjórn-
andi sýningar-
innar Ég lifi enn
– sönn saga.
Fréttablaðið/
valli
28 Menning 7. janúar 2023 LAUGARDAGURFréttablaðiðmenninG Fréttablaðið 7. janúar 2023 LAUGARDAGUR