Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.01.2023, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 07.01.2023, Qupperneq 13
Gianni Infantino, forseti FIFA, vill að allar þjóðir heims nefni einn leikvang í landi sínu í höfuðið á goð- sögninni, Pelé. Fréttablaðið skoðaði hvaða vellir koma til greina hér á landi. hoddi@frettabladid.is fótbolti Pelé lést í síðasta mánuði 82 ára að aldri en hann er talinn einn allra besti knattspyrnuleik- maður sögunnar. Gianni Infantino er vongóður um að nafn Pelé verði heiðrað um allan heim með því að nefna einn leik- vang í hverju landi með hans nafni. Pelé lék allan sinn feril í Brasilíu fyrir utan stutt stopp í Bandaríkj- unum og vann HM með þjóð sinn í þrígang. Pelé kom til Íslands árið 1991 og heimsótti þá Akranes, Akureyri, Egilsstaði, Vestmanna- eyjar og höfuðborgarsvæðið. Fréttablaðið fór á stúfana og skoðaði hvaða vellir gætu komið til greina sem næsti Pelé-völlur. n Heppilegir staðir til að heiðra minningu Pele Pelé-Krikinn Hafnfirðingar gætu heiðrað Pelé með því að breyta nafninu á Kapla- krika í Pelé-Krika. Heimsókn hans í Kaplakrika árið 1991 var fræg en þar hitti hann meðal annars Friðrik Dór Jónsson og fleiri góða kappa. Hver væri ekki til í að skora mark í Pelé-Krikanum? Svarta Perlan Valsmenn gætu svo sannarlega heiðrað minningu Pelé og með því gætu þeir nýtt sér eitt helsta kennileitið við völlinn. Pelé var oft kallaður Svarta perlan í fótboltanum en við Hlíðarenda stendur Perlan og við hlið hans gæti komið Svarta Perlan sem yrði heima- völlur Vals. Pelé Park Vilhjálmsvöllur á Egilsstöðum er nefndur eftir Vilhjálmi Einarssyni spjótkastara. Völlurinn er hins vegar oftar en ekki kallaður Villa- Park. Það væri nokkuð einföld breyting að setja þar upp Pelé Park en knattspyrnugoðsögnin átti góðar stund á Egilsstöðum. Líklega myndi heimafólki þó ekki hugnast þessi breyting enda Vilhjálmur einn dáðasti sonur Austurlands. Pelé-Garður Miðgarðshöllin í Garðabæ er vissulega töff nafn og töff höll fyrir utan smá myglu. Garðabær kom þó ekkert við sögu í heimsókn Pelé en nafnið gæti dreift athyglinni frá vandræðunum með mygluna. Pelé-Kórinn Hitastigið í Kórnum er nær því sem þekkist í Brasilíu og því gætu HK-ingar breytt nafninu á höllinni sinni í Pelé-Kórinn. HK-ingar hafa lengi barist fyrir því að fá að selja nafnið á Kórnum en gætu þarna breytt nafninu á höll sinni í Pelé- Kórinn og þar með heiðrað minningu eins merki- legasta fótboltamanns allra tíma. Pelé-Skjól Nýtt KR-svæði er handan við hornið. Og þegar það rís mun KR-inga ekki skorta neitt. Pelé var eiginlega vinur Geirs Þorsteinssonar, sem var formaður knattspyrnudeildarinnar forðum daga, og því ekkert nema tilvalið að skella Pelé- nafninu á nýja svæðið. Pelé-Völlur Hásteinsvöllur er goðsagnakennt nafn enda vallarstæðið einstakt. Pelé mætti jú með einum dáðasta syni Eyja, Ásgeiri Sigurvinssyni, og skemmti sér vel. Hann spurði meira að segja Ásgeir hvort hann ætti eyjuna. Í Eyjum afhenti Pelé enska drengjalandsliðinu verð- laun fyrir að hafa unnið svokallað Norðurlandamót sem haldið var þar þannig að þetta er í raun borðleggjandi þó að Ásgeirsvöllur ætti auðvitað vera nafnið. Pele var fyrsta stórstjarnan í fótboltanum en hann heimsótti land og þjóð árið 1991. Fréttablaðið/Getty LAUGARDAGUR 7. janúar 2023 Íþróttir 13Fréttablaðið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.