Fréttablaðið - 07.01.2023, Side 19

Fréttablaðið - 07.01.2023, Side 19
KYNN INGARBLAÐ ALLT LAUGARDAGUR 7. janúar 2023 Alla daga gegn kulda og sól Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup www.celsus.is Róbert Ísak Jónsson hefur í þrígang hampað Sjómannabikarnum. gummih@fréttabladid.is Eitt skemmtilegasta sundmót ársins er haldið í sundlauginni í Laugardalnum í Reykjavík í dag en þá fer fram hið árlega nýárs- sundmót íþróttafélags fatlaðra. Þetta sundmót er fyrir fötluð börn og unglinga og hefur ætíð skapast mikil og góð stemning á því en margir þátttakendur taka sín fyrstu skref í keppni á nýárssund- mótinu. Sjómannabikarinn verður afhentur en hann er veittur þeim keppanda sem vinnur besta afrek mótsins . Það var Sigmar Ólason, sjómaður frá Reyðarfirði, sem gaf bikar til keppninnar árið 1984 þegar fyrsta nýárssundmót fatlaðra fór fram. Willum Þór heiðursgestur Hefð hefur skapast fyrir því að bjóða heiðursgesti á mótið og hann verður að þessu sinni Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. Hann mun afhenda verðlaun og sérstaka viðurkenningu til allra keppenda í lok mótsins. Skólahljómsveit Kópavogs mætir á keppnissvæðið og mun sjá um tónlistarflutning, bæði áður en mótið hefst og við mótssetninguna en hljómsveitin setur jafnan hátíðlegan og skemmtilegan blæ á mótshaldið. Íþróttasamband fatlaðra hvetur fólk til að koma og fylgjast með skemmtilegu móti en það hefst stundvíslega klukkan 15. n Stuð og stemning í Laugardalnum Steinar Gíslason sýnir verk sín á útskriftarsýningu nemenda Ljósmyndaskólans. Sýningunni lýkur á morgun en í dag og á morgun klukkan 14.00 og 16.00 verða nemendurnir með leiðsögn um sýninguna. Í verkum sínum glímir Steinar við niðurlægjandi slanguryrði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Fáránleiki myndanna endurspeglar fáránleika orðanna Útskriftarsýningu diplómanema við Ljósmyndaskóla Íslands lýkur um helgina þar sem níu nemendur sýna verk sín. Einn þeirra, Steinar Gíslason, sýnir verk undir yfirskriftinni: Hvaða bull er þetta? Verkin eru tilraun til að varpa ljósi á kvenfyrirlitningu í íslenskri tungu. 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.