Fréttablaðið - 07.01.2023, Side 23
Mosfellsbær www.mos.is 525-6700
Viltu taka þátt í sögulegri
uppbyggingu í Mosfellsbæ?
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf á íslensku, þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar, og rök
stuðningur um hæfni viðkomandi til að
gegna starfinu.
Sótt er um störfin á vefsíðunni vinnvinn.is.
Umsjón með umsóknum og nánari uppl ýs
ingar um störfin veita Auður Bjarnadóttir
audur@vinnvinn.is, og Margrét Stefánsdóttir,
margret@vinnvinn.is.
Mosfellsbær leggur áherslu á jafnrétti og
hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur um störfin er til og með
30. janúar 2023.
Undirbúningur stendur nú yfir vegna uppbyggingar íbúðasvæða
í Helgafelli og við Hamraborg. Þá er í undirbúningi uppbygging
á atvinnusvæðinu í Blikastaðalandi og í kjölfarið mun eiga sér stað
vinna við mótun skipulags fyrir 9.000 manna íbúabyggð í landi
Blikastaða sem mun byggjast upp í áföngum á næstu árum.
Uppbygging nýrra svæða einkennist annars vegar af tilkomu
Borgarlínu og hins vegar umhverfisvænum áherslum, meðal
annars á grunni BREEAMvistvottunarkerfisins.
Við leitum að einstaklingum sem eru tilbúnir að vinna með okkur
að stækkun sveitarfélagsins og fylgja verkefnum áfram innan
stjórnsýslunnar.
Ef þú vilt taka þátt í þessum spennandi verkefnum, þá hvetjum
við þig til þess að sækja um starf lögfræðings eða starf verkefna
stjóra skipulagsmála.
Lögfræðingur
Mosfellsbær leitar að kraftmiklum lögfræðingi sem hefur þekkingu
og reynslu á sviði stjórnsýslu, skipulags og umhverfismála. Um er
að ræða spennandi starf lögfræðings sem mun einkum starfa með
sérfræðingum umhverfissviðs auk samvinnu við aðra starfsmenn
sveitarfélagsins og kjörna fulltrúa.
Verkefnastjóri skipulagsmála
Mosfellsbær leitar að öflugum verkefnastjóra skipulagsmála. Um er
að ræða spennandi verkefni á sviði deiliskipulags og að undirbúningi
áætlana í samvinnu við skipulagsfulltrúa, aðra starfsmenn sveitar
félagsins og kjörna fulltrúa.
Frekari upplýsingar um störfin auk menntunar og hæfniskrafna
er að finna á vinnvinn.is og á vef Mosfellsbæjar, mos.is/storf.
Við erum að leita að lögfræðingi og verkefnastjóra skipulagsmála til að taka þátt
í þeirri miklu uppbyggingu sem mun eiga sér stað í sveitarfélaginu á næstu árum.
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára