Fréttablaðið - 07.01.2023, Síða 30

Fréttablaðið - 07.01.2023, Síða 30
Við á deild loftslags og grænna lausna hjá Landsvirkjun leitum að öflugum teymisfélaga til að taka þátt í undirbúningi og framkvæmdum nýrra virkjana. Við berum virðingu fyrir náttúru landsins og ásýnd þess og leggjum áherslu á að þekkja og draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar. Helstu verkefni: – Mat á umhverfisáhættu, skipulagning ráðstafana og markmiðasetning um umhverfismál – Gerð og framfylgd umhverfisáætlana – Leyfis- og skipulagsmál og eftirfylgni krafa sem snúa að áhrifum á umhverfi og verndun þess – Samtöl við hagaðila um umhverfismál Hæfniskröfur: – Háskólamenntun á sviði verk- og tæknifræði, umhverfisfræði eða náttúruvísinda – Þekking á umhverfismálum og áhugi á náttúru Íslands – Þekking á framkvæmdaverkefnum og opinberri stjórnsýslu er kostur – Lipurð í mannlegum samskiptum – Skipulagsfærni, sjálfstæði og frumkvæði Umsóknarfrestur er til og með 17. janúar 2023 Sótt er um starfið hjá Hagvangi www.hagvangur.is Starf Leggðu okkur og umhverfinu lið! Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar og vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsafli, jarðvarma og vindi. Hjá fyrirtækinu starfa rúmlega 300 manns, víða um land. Fyrirtækið hefur metnaðarfulla jafnréttis- og mannauðsstefnu, hugar að vellíðan starfsfólks og leggur áherslu á að viðhalda orkumikilli fyrirtækjamenningu. RÁÐGJAFI á sviði starfsendurhæfingar VIRK Starfsendurhæfingarsjóður leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf ráðgjafa hjá VIRK. Um er að ræða mjög krefjandi og fjölbreytt starf og einstakt tækifæri til þátttöku í þróun og þjónustu á sviði starfs- endurhæfingar á vinnumarkaði. Helstu verkefni • Ráðgjöf, stuðningur og hvatning við einstaklinga með skerta starfsgetu • Upplýsingaöflun, skráning og mat samkvæmt gildandi verkferlum • Umsjón og eftirfylgd með einstaklingsbundnum áætlunum sem gerðar eru í samvinnu við þverfagleg teymi VIRK • Vinnur í nánu samstarfi við sérfræðinga VIRK, fagaðila í starfsendurhæfingu og vinnustaði • Samskipti við stéttarfélög og atvinnurekendur Menntunar- og hæfnikröfur • Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda, s.s. á sviði félagsráðgjafar, hjúkrunar, iðjuþjálfunar, sálfræði eða sjúkraþjálfunar • Víðtæk reynsla og þekking á sviði einstaklingsráðgjafar og/eða starfsendurhæfingar • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund • Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum • Skipulagshæfni og kostnaðarvitund • Góð þekking á vinnumarkaði • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði. VIRK hefur í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað sam- félagslegum ávinningi með aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og er leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar. Að VIRK standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekenda á vinnumarkaði. VIRK er metnaðarfullur vinnustaður þar sem lögð er áhersla á jákvæðan starfsanda og sterka liðsheild. VIRK kappkostar að skapa jákvæða menningu með traustu fagfólki. Gildi VIRK eru fagmennska, virðing og metnaður og er starfsfólk hvatt til að hafa gildin að leiðarljósi í störfum sínum. Upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir geirlaug@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 18. janúar 2023. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og einnar blaðsíðu kynningarbréf þar sem á kerfisbundinn hátt er gerð grein fyrir því hvernig viðkomandi uppfyllir hæfnikröfur starfsins.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.