Fréttablaðið - 12.01.2023, Qupperneq 21
Ertu hjátrúarfullur fyrir leik?
„Nei, engin hjátrú hjá mér.“
Hvernig bíl ekurðu?
„Audi Q7 jeppa.“
Ef þú ættir að leyfa þér einhverja svindlmáltíð,
hvernig myndi hún líta út?
„Það yrði bara beisik pitsa eða hamborgari.“
Hver er herbergisfélagi þinn í landsliðsverk-
efnum?
„Bjarki Már Elísson.“
Ertu hjátrúarfullur fyrir leik?
„Ég var rosalega hjátrúarfullur og það mikið að
ég hætti því á endanum og gerði allt til þess að
vera ekki hjátrúarfullur, það var hjátrú út af fyrir
sig. Þetta lýsti sér þannig að ég gerði allt öfugt við
það sem ég hafði tamið mér á leikdegi.
Í tengslum við landsliðið þá reyni ég að halda
eins mikilli rútínu og ég get. Ég er orðinn það
gamall í þessu að ég veit nokkurn veginn hvað
virkar fyrir mig. Þetta er bara eitthvað sem hentar
mér vel varðandi næringu, rútínu og svefn.
Svo þegar leikurinn er flautaður á þá kyssi ég
stangirnar þrjár á markinu og línuna á gólfinu fyrir
þau fjögur börn sem ég á.“
Hvernig bíl ekurðu?
„Ég er á Volvo XC 90 núna frá Bílaleigu Akureyrar.“
Ef þú ættir að leyfa þér einhverja svindlmáltíð,
hvernig myndi hún líta út?
„Þá yrði fyrir valinu SS pulsa með öllu.“
Hver er herbergisfélagi þinn í landsliðsverk-
efnum?
„Það er Ólafur Guðmundsson.“
Hvað er það versta við hann sem herbergisfélaga?
„Það sem fer mest i taugarnar á mér er þegar
hann dettur í hnerrikast um miðja nótt. Hafði alveg
þokkalegan skilning fyrir því þangað til ég komst
að því að hann rumskaði ekki sjálfur við þessi 27
hnerr sem hann tók í röð núna fyrir þremur dögum
klukkan 03.30.“
Ertu hjátrúarfullur fyrir leik?
„Ég hlusta alltaf á sama playlistann og horfi á sömu fjögur
YouTube-myndböndin. Myndbönd með tilþrifum frá Niklas Landin
(landsliðsmarkverði Dana). Ég hef gert það síðan ég byrjaði á fullu í handbolt-
anum og haldið í það.“
Hvernig bíl ekurðu?
„Ég er á Audi A1, ég er rosalega lítill bílakall.“
Ef þú ættir að leyfa þér einhverja svindlmáltíð, hvernig myndi hún líta út?
„Ég færi í KFC.“
Hver er herbergisfélagi þinn í landsliðsverkefnum?
„Elvar Örn Jónsson.“
Hvað er það versta við hann sem herbergisfélaga?
„Það versta er að vera með honum í herbergi eftir að ég hef tapað á móti
honum í FIFA. Hann er mjög rólegur og fínn, skemmtilegur herbergisfélagi.“
Á bak við tjöldin
hjá Strákunum okkar
Við leituðum til nokkurra úr hópi Strákanna okkar til þess að svara
laufléttum spurningum um sitt daglega líf, spurningum sem þeir
fá jafnan ekki í viðtölum í tengslum við verkefni sín með
íslenska landsliðinu. Ýmislegt fróðlegt kom í ljós, hver hefði
til að mynda vitað um rútínu sem Björgvin Páll gerir fyrir
hvern landsleik fyrir börnin sín? Eða þá staðreynd að
Bjarki Már þyrfti alltaf að fá sér Nocco fyrir leik?
aron@frettabladid.is
Viktor Gísli
Hallgrímsson
22 ára
markvörður
Nantes
Ertu hjátrúarfullur fyrir
leik?
„Nei, í raun ekki. Ég
reyni bara að gera
líkamann eins kláran
fyrir leik og ég get,
hvað sem það felur í
sér. En engin sérstök
hjátrú, ég er alls ekki
hjátrúarfullur.“
Hvernig bíl ekurðu?
„Ég er á jeppa, Audi-jeppa.“
Ef þú ættir að leyfa þér ein-
hverja svindlmáltíð, hvernig
myndi hún líta út?
„Ég er algjör nammigrís og get
dottið vel í nammið. Reyni þó
að passa mig eins og ég get.“
Hver er herbergisfélagi þinn í
landsliðsverkefnum?
„Það er Janus Daði Smára-
son.“
Hvað er það versta við hann sem
herbergisfélaga?
„Hann á það til að vera mikill
draslari. Það getur verið mikið
drasl í kringum hann.“
Ómar Ingi Magnússon
25 ára
leikmaður Magdeburg
Björgvin Páll
Gústavsson
37 ára
markvörður Vals
Aron Pálmarsson
32 ára
leikmaður Álaborgar, brátt FH
Hvað er það versta við hann sem
herbergisfélaga?
„Það versta við Bjarka, hann er
99% frábær og ótrúlega skemmti-
legur gæi, en það eina slæma við
hann er þegar trúðslætin í honum
fara aðeins yfir strikið. Trúðurinn
er skemmtilegur en svo velur hann
stundum móment sem maður
botnar ekkert í. Þá fær hann líka
bara gott jæja frá manni. Það er það
eina við hann en svo sem ekkert til
að kvarta yfir.“
Ertu hjátrúarfullur fyrir leik?
„Já, alveg eitthvað. Ég er samt þannig að ef eitthvað klikkar
þá fer ég ekki á taugum. Ég á samt
mína hefðbundnu rútínu fyrir leik,
fæ mér til dæmis alltaf Nocco og
er mikill Ramonade-maður þar. Svo
tek ég alltaf liðkun í hádeginu á leik-
degi. Þetta eru bara hlutir sem hafa
fundið sér leið inn í rútínuna hjá mér.
Sumir myndu segja að þetta væri
rútína, aðrir hjátrú. Svo er þetta bara
þannig að eftir því sem maður verður
eldri, því vanafastari verður maður.“
Hvernig bíl ekurðu?
„Ég er með bíl frá félaginu úti, SEAT Ar-
ona. Ég valdi þann bíl ekki, bara fékk hann
í hendurnar og það er ekkert sem mig langaði meira en
eitthvað eitthvað annað. SEAT er einn af styrktaraðilum
félagsins, maður réð engu í þessu.“
Ef þú ættir að leyfa þér einhverja svindlmáltíð, hvernig
myndi hún líta út?
„Ég myndi segja að góð pitsa yrði fyrir valinu þar. Góð
pitsa eða hamborgari.“
Hver er herbergisfélagi þinn í landsliðsverkefnum?
„Það er hann Aron Pálmarsson.“
Hvað er það versta við hann sem herbergisfélaga?
„Það er nú ekki mikið, það var morgunfúlleiki. Aron
var mjög fúll á morgnana og ég beið stundum með það
að segja eitthvað við hann á morgnana þar til hann
var búinn að segja eitthvað við mig. Hann hefur lagast
mikið með aldrinum hvað þetta varðar.
Það er oft mikill trúður í mér og þá koma stundir þar
sem hann verður þreyttur á því. Ætli það sé ekki það
leiðinlegasta við hann, að hann verði þreyttur á því.“
Bjarki Már
Elísson
32 ára
leikmaður
Vezprém
kynningarblað 7FIMMTUDAGUR 12. janúar 2023 HM í Handbolta 2023